Fréttablaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 24
4 • LÍFIÐ 9. MARS 2012
GLÆSILEGAR Á FRUMSÝNINGU
Vesalingarnir, einn allra vinsælasti söngleikur leikhússögunnar, var frumsýndur á
fjölum Þjóðleikhússins í flutningi einvala liðs leikara og söngvara um síðustu helgi.
Frumsýningargestir voru glæsilegir í hátíðarskapi. MYNDIR/ELLÝ OG KOLBRÚN
ÓLÖF ÁGÚSTA KARLSDÓTTIR
LÆKNARITARI
UNNUR ÖSP
STEFÁNSDÓTTIR
LEIKKONA
TINNA GUNNLAUGSDÓTTIR
LEIKHÚSSTJÓRI
ANDREA GYLFADÓTTIR
SÖNGKONA
SIGRÍÐUR THORLACIUS
SÖNGKONA
KRISTBJÖRG
SIGURÐARDÓTTIR
FJÁRFESTIR
ÞÓRA
SIGURÐARDÓTTIR
RITHÖFUNDUR
SIGRÍÐUR EYRÚN
FRIÐRIKSDÓTTIR
LEIKKONA
Hver er konan? Selma Björns-
dóttir hérna megin.
Starf? Leikstjóri í Þjóðleikhúsinu,
leikstjóri talsetninga í Myndformi,
söngkona og leikkona.
Bakgrunnur/menntun? Verslunar-
skóli Íslands, Bristol Old Vic
Theater School, Ferðamálaskóli
Flugleiða, masterclass í Complete
Vocal Technique.
Hvernig kom það til að þú tókst
að þér að leikstýra Vesalingunum?
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleik-
hússtjóri boðaði mig á fund sinn
fyrir tæpu ári síðan og bauð mér
þetta glæsilega verkefni. Ég þurfti
ekki að hugsa mig lengi um.
Ætlaðir þú alltaf að verða leik-
stjóri? Ó nei! Ég ætlaði að verða
lögfræðingur og kántrísöngkona í
Dallas. Er reyndar kántrísöngkona
í frístundum en get ekki sagt að
lögfræðin heilli mig lengur.
Megum við eiga von á að sjá þig
aftur á sviði? Já já, er einmitt að
fara að stökkva inn í tvær leik-
sýningar núna í mars og apríl.
Annars vegar Dubbeldusch með
Vesturporti í Gamla bíói í lok mars
og hins vegar Rómeó og Júlíu
með Vesturporti í Borgarleik-
húsinu í apríl.
Áttu þér draumaverkefni? Já en
þau eru leyndó. Vil ekki að aðrir
viti um þau fyrr en þau verða að
veruleika.
Hvernig gengur að samtvinna
ferilinn og móðurhlutverkið? Það
gengur vel. Þegar ég tek stór
verkefni að mér skipulegg ég mig
vel og set líf mitt í mjög fastar
skorður til að ná að klára dags-
verkið. Svo á ég stórkostlega
foreldra sem hjálpa mér mikið og
systur og vini sem leggja mér lið.
Hvað gerirðu þegar þú ert ekki
að vinna? Mér lætur illa að hafa
lítið að gera því þá hellist yfir mig
þvílík leti að ég geri ekki hand-
tak! En þegar ég á lausa stund
frá vinnu þá fer ég í ræktina til
hennar Ásthildar Björns dóttur í
Laugum og hún pískar mér út,
hitti vini mína, fer í sund, út að
borða, í leikhús, í sveitina og
margt fleira.
Hvert er þitt mottó í lífinu? Að
gera betur í dag en í gær, njóta
hverrar stundar, hlæja brjálæðis-
lega, elska fólkið mitt og vini
mína og lifa í núinu.
ÆTLAÐI AÐ VERÐA LÖGFRÆÐ-
INGUR OG KÁNTRÍSÖNGKONA
ATHAFNAKONAN
MYND/GASSI
Kjólar í miklu úrvali st. 36-48
Verð frá 14.990
Fyrir fermingarveisluna