Fréttablaðið - 24.04.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.04.2012, Blaðsíða 6
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR6 Níu dómarar stóðu að meiri- hlutaáliti Landsdóms í gær en þar var Geir H. Haarde sýknaður af þremur ákæru- liðum af fjórum. Hann var sakfelldur fyrir að hafa ekki uppfyllt skyldur er kveðið er á um í 17. grein stjórnarskrárinnar. Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, var sýknaður í Landsdómi í gær af þremur ákæruliðum af fjórum. Hann var sakfelldur fyrir ákærulið 2 sem lýtur að því að hann hafi ekki haldið ráðherrafundi um mikil- væg mál, en kveðið er á um það í 17. grein stjórnarskrárinnar. Um fjóra ákæruliði var að ræða. Landsdómur er þríklofinn í niðurstöðu sinni. Níu dómarar stóðu að meirihlutaáliti. Fimm dómarar stóðu að öðru minni- hlutaáliti og vildu sýkna Geir af öllum ákæruatriðum. Sigrún Magnús dóttir skilaði séráliti og vildi einnig sýkna Geir af öllum ákæruliðum. 1.3. Sýknaður Meirihlutaálit Landsdóms er varðar lið 1.3 er að ekki verði annað séð en að samráðshópur um fjármálastöðugleika hafi í meginatriðum starfað í samræmi við hlutverk sitt. Hins vegar hafi skort á það, á grundvelli þeirra hugmynda og upplýsinga sem þar komu fram, að mótuð væri pólitísk stefna til að takast á við hættuna, sem steðjaði að íslenskum fjármálafyrirtækjum og ríkinu frá því í febrúar og fram í október 2008. Dómurinn lítur hins vegar svo á að þær athafnir sem Geir var gefið að sök að hafa vanrækt, hefðu einar og sér ekki getað bægt frá þeirri hættu sem vofði yfir íslensku samfélagi eða getað dregið úr henni. 1.4. Sýknaður Í meirihlutaáliti Landsdóms er varðar lið 1.4 segir að Geir hljóti að hafa verið ljós sú hætta sem steðjaði að fjármála stofnununum og ríkinu. Hins vegar segir að skylda til að bregðast við hafi ekki verið ljós fyrr en á síðari stigum og þótt Geir hefði með stefnumótun í ríkisstjórn, og í krafti stöðu sinnar sem forsætis- ráðherra, beitt sér fyrir því að Seðlabankinn og Fjármálaeftir- litið neyttu valdheimilda sinna til að þrýsta á bankana til að minnka efnahagsreikninga sína, sé enginn grundvöllur lagður að því í málinu af hálfu ákæruvalds- ins að slíkar aðgerðir hefðu getað afstýrt hættu. Fallist er á þau rök í dómnum að erfitt hefði reynst að selja eignir á þeim tíma sem nauð- synlegt var og enn fremur að slík sala eigna hefði getað haft þau áhrif að fall bankanna hefði borið fyrr að. Landsdómur kemst einnig að þeirri niðurstöðu að af hálfu ákæruvaldsins hafi engum stoðum verið rennt undir að Geir hefði átt þess kost að knýja á um flutning höfuðstöðva einhvers bankanna þriggja úr landi fyrr en löngu síðar. Hins vegar kemur fram að Seðla- bankinn gat nýtt vald heimildir sínar til að þrýsta á bankana um að minnka efnahagsreikninga sína. Geir beitti sér hins vegar aldrei fyrir því að mótuð yrði stefna í ríkisstjórn svo unnt yrði að beina þeirri kröfu eða tilmælum til Seðlabankans að bankinn nýtti þessar valdheimildir. 1.5. Sýknaður Meirihluti Landsdóms segir að ákæruvaldið hafi ekki skýrt með viðhlítandi hætti hvað felist að öllu leyti í orðalagi ákæru- liðar 1.5. Eins hafi ákæru valdið ekki fært rök fyrir því að að- gerðir, sem ríkið hefði getað framkvæmt til að stuðla að flutningi Icesave-reikninganna til erlends dótturfélags, hefðu getað verið fólgnar í öðru en að verða við óskum bankans um lánveitingar eða ábyrgðir til að brúa bil á milli eigna og þessara skuldbindinga dótturfélagsins. Landsdómur telur að ekki hafi verið hægt að gera þá kröfu til Geirs að hann hefði frumkvæði að því að ríkið eða Seðlabanki Íslands veittu lán eða ábyrgðir til þess að flutningur reikninganna gæti náð fram að ganga. „Það er með öllu ósannað í málinu að aðrar ráðstafanir, sem ákærði hefði getað haft frumkvæði að, hefðu getað afstýrt hættu,“ segir í niðurlagi um þennan ákærulið. 2.0. Sakfelldur Níu dómarar af fimmtán, er standa að meirihlutaálitinu, sak- felldu Geir fyrir að hafa ekki haldið ráðherrafundi um mikil- væg mál í aðdraganda efnahags- hrunsins. Í dómnum segir að þótt tíðkast hafi um langt árabil að oddvitar stjórnarflokka hafi haft með sér óformlegt samráð um mál, sem varða ríkisstjórnarsamstarfið, getur slíkt samráð ekki leyst for- sætisráðherra undan skyldunni, sem mælt er fyrir um í 17. grein stjórnarskrárinnar. Forsætisráð- herra geti heldur ekki skotið sér undan þeirri skyldu þótt hann óttist að aðrir ráðherrar muni ekki gæta þagmælsku um mál sem eru þess eðlis að þau verði að fara leynt. Í meirihlutaálitinu segir að þegar Geir barst vitneskja um að hætta steðjaði að íslensku bönkunum, sem kynni að ógna fjármálastöðugleika í landinu og þar með stöðu ríkissjóðs, hafi honum átt að vera ljóst að rann- saka þyrfti án tafar hvort þessar upplýsingar ættu við rök að styðjast. Upplýsingar um yfir- vofandi háska sem Geir bjó yfir, eða hlaut að búa yfir, áttu að verða honum sem forsætisráð- herra tilefni til að taka málið til um fjöllunar á ríkisstjórnarfundi, ef ekki þegar í stað þá að minnsta kosti svo fljótt sem verða mátti. Eftir því sem leið á árið 2008 „varð sky ta sér fyrir að málið yrði rann- sakað og því síðan ráðið til lykta á vettvangi ríkisstjórnarinnar.“ Þá telur Landsdómur það full- sannað að störf samráðshóps um fjármálastöðugleika og við búnað hafi ekki komið til umræðu á fundum ríkisstjórnarinnar á því tímabili, sem ákæra í málinu tekur til. Landsdómur rökstyður sak- fellingu í löngu máli en kemst að þeirri niðurstöðu í lokin „að virða ákærða það til stórkost- legs gáleysis að hafa látið farast fyrir að taka þau málefni, sem áður voru rakin, til um fjöllunar á fundum ríkisstjórnarinnar, enda var honum ljóst eða mátti að minnsta kosti vera ljóst að þau væru svo mikilvæg og að auki þess eðlis, sem þáttur í efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar, að honum bæri skylda til þess“. Dómsuppsaga í Landsdómi Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? HÁÞRÝSTIDÆLUR Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Húsavík Vestmannaeyjum 1400W, 360 min/lit/klst Þolir 50C heitt vatn 5 metra barki, sápubox Black&Decker háþrýstidæla 110 bör 14.900,- 1700W, 370 min/lit/klst Þolir 50C heitt vatn 5,5 metra barki, sápubox Black&Decker háþrýstidæla 130 bör 27.900,- 2100W, 420 min/ lit/klst Þolir 50C heitt vatn, 8 metra málmbarki, sápubox, með bursta Black&Decker háþrýstidæla 150 bör 49.980,- 1400W, 300 L/mín Drive háþrýstidæla 105 bör 9.990,- 1/2” slanga 15 metra með byssu og tengjum 1.390,- Í kvöld á Stöð 2 FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS Geir dæmdur fyrir stjórnarskrárbrot Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is LANGRI BIÐ AÐ LJÚKA Þungt var yfir Geir H. Haarde á meðan hann beið þess að niðurstaða dómsins yrði lesin upp. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1.3 Fyrir að hafa vanrækt að gæta þess að störf og áherslur samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika og viðbúnað, sem stofnað var til á árinu 2006, væru markvissar og skiluðu tilætluðum árangri. Sýknaður. 1.4 Fyrir að hafa vanrækt að hafa frumkvæði að virkum aðgerðum af hálfu ríkisvaldsins til að draga úr stærð íslenska bankakerfisins á tímabilinu frá febrúar 2008 og fram í byrjun október. Sýknaður. 1.5 Fyrir að hafa ekki fylgt því eftir og fullvissað sig um að unnið væri með virkum hætti að flutningi Icesave-reikninga Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi yfir í dótturfélag og síðan leitað leiða til að stuðla að fram- gangi þessa með virkri aðkomu ríkisvaldsins. Sýknaður. 2.0 Fyrir að hafa á framangreindu tímabili látið farast fyrir að framkvæma það sem fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrár lýðveldisins um skyldu til að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Sakfelldur. Landsdómur vísaði frá tveimur ákæruliðum af sex þann 3. október 2011. Geir ákærður fyrir Landsdómi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.