Fréttablaðið - 24.04.2012, Qupperneq 12
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR12
Dómsuppsaga í Landsdómi
frjalsilif.is – 444 7000
Ársfundur
Frjálsa
lífeyrissjóðsins
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn á morgun 25. apríl
kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
5. Kosning stjórnar
Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og einn
varamann til eins árs. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins má
nálgast á frjalsilif.is.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
6. Kjör endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar
á samþykktum sjóðsins
8. Laun stjórnarmanna
9. Önnur mál
Fjárfestum í eigin landi
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins efna til fundar um opinberar fjárfestingar í ljósi
ramma- og samgönguáætlana og nýs Landspítala
Miðvikudaginn 25. apríl kl 8:30 - 10.00 á Hilton Reykjavík Nordica
Opinberar fjárfestingar og atvinnusköpun
Kristján L. Möller, formaður atvinnuveganefndar Alþingis
Rammaáætlun
Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá SI
Nýr Landspítali
Gunnar Svavarsson, form. byggingarnefndar um nýjan Landspítala
Opinberar fjárfestingar og lífeyrissjóðirnir
Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður í Gildi og framkvæmdastjóri hjá Eimskip
Afstaða þingflokka til verkefnanna
Sjálfstæðisflokkur, Bjarni Benediktsson
Framsókn, Sigurður Ingi Jóhannesson
Samfylking, Magnús Orri Schram
Vinstri græn, Björn Valur Gíslason
Panelumræður
Fundarstjóri: Sigþór Sigurðsson,
formaður Mannvirkis
Skráning á www.si.is
SJÓNVARPSSTÖÐIN ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER EINGÖNGU Í BOÐI Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á WWW.STOD2.IS
„Niðurstaðan sýnir að málið átti erindi þangað sem það fór.
Að öðru leyti er réttast að dómurinn tali fyrir sig sjálfur og
horft sé til þess rökstuðnings sem þar er fram færður,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon ráðherra. Hann segir að það hafi
verið ljóst frá því að formenn flokkanna sammæltust um að
setja rannsóknarnefnd Alþingis á fót að einhver slík niður-
staða gæti litið dagsins ljós. Nefndinni hafi verið gert að líta
til ábyrgðar stjórnmálamanna.
Spurður hvort um áfellisdóm yfir stjórnsýslunni sé að
ræða segir hann að fara þurfi varlega í þann samjöfnuð.
„Þetta voru náttúrulega ekki hversdagsleg málefni sem
dómurinn laut að. Það er gagnlegt að lesa reifunina og
rökstuðninginn og setja það í ákveðið samhengi. Það var
náttúrulega ekki sakfellt bara fyrir formsatriði, heldur verður
það efnislegt í samræmi við það sem dómurinn segir um
það mál.“ - kóp
Sýnir að málið átti erindi fyrir dóminn
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
„Það sem stendur að sjálfsögðu upp úr í þessu máli er að
allir dómarar í Landsdómi voru sammála um að Geir væri
saklaus í öllum ákæruliðum sem mest var rætt um á Alþingi.
Þetta eru þeir ákæruliðir sem haldið var fram að hefðu haft
með hrun bankakerfisins að gera,“ segir Bjarni Benediktsson.
Hann segir þann lið sem sakfellt var fyrir vera formsatriði.
Í dómnum sjálfum sé því ekki mótmælt að verið sé að
sakfella fyrir áratuga venju í íslenskri stjórnsýslu. Það sæti
furðu að það hafi þótt tilefni til sakfellingar og ekki sé skrítið
að dómurinn hafi klofnað í afstöðu sinni til þess.
„Varðandi heildarniðurstöðuna er auðvitað nærtækt að
horfa til þess að í fyrsta lagi var búið að vísa frá tveimur
ákæruliðum, hann er fundinn saklaus af öllum efnislegum
ákæruliðum, honum er ekki gerð nein refsing og ríkið
situr uppi með allan sakarkostnað. Þetta er því sem næst
fullnaðar sigur fyrir Geir.“
Bjarni segir þá sem stóðu fyrir ákærunum þurfa að svara
því hvort þeir séu reiðubúnir að láta sömu mælikvarða gilda
fyrir sig. Það hafi verið mjög pólitísk ákvörðun að ákæra fyrir
það atriði sem Geir var sakfelldur fyrir. - kóp
Því sem næst fullnaðarsigur fyrir Geir
BJARNI
BENEDIKTSSON
„Umfjöllun dómsins um þann lið
sem var sakfellt fyrir sýnir hvað
þetta voru alvarlegar sakargiftir.
Niðurstaðan er talsverður áfellis-
dómur [yfir Geir H. Haarde], og
sama má segja um umfjöllun
dómsins um hina liðina,“ segir
Sigríður J. Friðjónsdóttir, sak-
sóknari Alþingis.
„Í umfjöllun dómsins sést að
það var fullt tilefni til að láta
dómstólinn fjalla um þetta. Þarna
segir að Geir hafi gert ýmis-
legt rangt, og það er fjallað um
ýmiss konar vanrækslu þó hann
sé ekki sakfelldur fyrir þetta allt
saman,“ segir Sigríður.
„Auðvitað vænti ég þess sem
saksóknari í málinu að það yrði
sakfellt fyrir meira, en það
þýðir ekki að deila við dómar-
ana,“ segir Sigríður. Hún segist
gjarnan hafa viljað betri niður-
stöðu, en málið hafi haft annan
aðdraganda en önnur mál, þar
sem Alþingi hafi ákært Geir og
hún farið með málið fyrir hönd
þingsins.
„Þetta er minna en lagt var upp
með, það er alveg ljóst, en auðvitað
var þetta talsvert á brattann að
sækja,“ segir Sigríður.
Hún segir að erfitt hafi verið
að sýna fram á hvað Geir hefði
átt að gera og hvernig hann hefði
getað komið í veg fyrir tjón með
þeim gögnum sem málshöfðunin
hafi byggt á. „Maður vissi ekki
hvernig þetta myndi fara, ég
vonaðist til þess að þetta væri
nóg en svo reyndist ekki vera.“
„Auðvitað var það mat ákær-
andans, sem var Alþingi, að
meiri líkur en minni væru á sak-
fellingu. Í sjálfu sér fannst mér
erfitt að segja til um hvort þetta
væri líklegt til sakfellis. Ég taldi
þó meiri líkur en minni á því að
það yrði sakfellt,“ segir Sigríður.
- bj
Saksóknari segir að á brattann hafi verið að sækja:
Segir Geir sakfelldan
fyrir alvarlegt brot
DÓMUR Fullt tilefni var til að fá Landsdóm til að fjalla um ákæruefnin á hendur Geir
segir Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Auðvitað vænti ég
þess sem saksóknari
í málinu að það yrði sakfellt
fyrir meira, en það þýðir ekki
að deila við dómarana.
SIGRÍÐUR J. FRIÐJÓNSDÓTTIR
SAKSÓKNARI ALÞINGIS