Fréttablaðið - 24.04.2012, Qupperneq 22
FÓLK|HEILSA
Streita
Ástæður streitu geta verið margvíslegar, m.a.
áhyggjur af vinnu, fjölskyldu og fjármálum. Dæmi
um einkenni sem geta gefið til kynna streitu eru:
einbeitingarleysi, tilfinning um að ráða ekki við
aðstæður, lítið sjálfstraust, vandræði með svefn
eða svefnleysi, hár blóð þrýstingur, höfuðverkur,
meltingartruflanir, aukin áfengisneysla og matar-
æði. Einstaklingur þarf að finna fyrir einu eða
fleiri af ofantöldum ein kennum til að teljast þjást
af streitu. Einföld skýring á streitu er uppsöfnuð
þreyta í líkama og sál.
Streita líður oft hjá, svo sem þegar streitu-
valdandi atburður er ekki lengur til staðar. Gestir
á Heilsuhóteli Íslands hafa náð góðum árangri
og unnið sig út úr streituvaldandi aðstæðum og
áttað sig á að raunverulegra breytinga var þörf.
Þetta hafa þeir gert með því að mæta á tveggja
vikna námskeið sem nú eru haldin fyrsta föstu-
dag í hverjum mánuði og hafa um 3000 manns
nýtt sér þjónustuna með dvöl á hótelinu.
Dvöl á Heilsuhóteli ,sem byggir á hvíld og
slökunarmeðferðum svo sem heilsubætandi
nuddi, jóga og fleira en umfram allt jákvæðu
og skemmtilegu umhverfi, hefur víðtæk áhrif á
árangur til enn betri heilsu.
Heilsuhótelið er að mínu mati skóli sem allir ættu að sækja sér til heilsubótar,“ segir
Monika Abendroth.
„Líkami okkar er kraftaverk, en
allt þar til líffæri okkar byrja að
klikka er flestum tamt að hugsa
lítið sem ekkert um þá þrotlausu
vinnu sem líffærin skila í okkar þágu
hvern einasta dag. Í stað þess væri
eðlilegra að styðja þau meðvitað í
starfinu og lifa lífinu þannig að líf-
færin haldist heil sem lengst, og þá
er gott að fara á Heilsuhótelið til að
fá fræðslu til betra lífs.“
Monika notaði tækifærið til að
efla heilsu sína og sinna sjálfri sér
um leið og hún tók að sér hörpu-
leik í slökunar- og hugleiðslutímum
Heilsuhótelsins í nýliðnum mars.
„Ég hef tröllatrú á því að ómeng-
aður líkami geti hjálpað sér sjálfur.
Hins vegar hefur hann ekki hug-
mynd um hvað hann á að gera við
öll eiturefnin sem herja á hann í
matvælum og umhverfinu, og því
setjast þau að í líffærum okkar,
vöðvum og vefjum,“ segir Monika,
sem fann rétta staðinn til afeitrunar
á Heilsuhótelinu.
„Mér fannst dásamleg upplifun
að taka frá tíma fyrir sjálfa mig í
vernduðu umhverfi og með fólki á
sömu forsendum,“ segir Monika,
endurnærð eftir dvölina sem var
kærkomið dekur að hennar sögn.
„Á okkar tímum er mikið álag á
fólki. Flestir þurfa að vinna mikið
og sinna öllu með hraði hingað og
þangað um bæinn. Því er dýrmætt
að geta stimplað sig út og dekrað
við sjálfan sig með hvíld, heilnæmu
fæði, fræðslu, hreyfingu, útivist og
skemmtun,“ segir Monika sem með
líðandi tónum hörpunnar kenndi
fólki að slaka enn betur á en ella.
„Öllum er nauðsynlegt að hvílast
vel eftir daglega streitu og enda-
lausar kröfur. Síðast en ekki síst
hafa fjölmargar áhyggjur dunið á
þjóðinni síðustu misseri. Tónlist
gefur okkur andlega næringu og fer
inn á til finninga sviðið, en sál og til-
finningar er ekki hægt að aðskilja frá
líkamanum. Því þykir mér jákvætt að
hugað er að öllum þáttum vellíðunar
á Heilsuhótelinu, sem svo eykur enn
á ánægjulega og árangursríka dvöl,“
segir Monika.
Að sögn Moniku er samfélagið á
Heilsuhótelinu skemmtilegt og hún
líkir innrauðum hitaklefa við pínulitla
félagsmiðstöð þar sem gott var að
láta sér líða vel með fólki frá öllum
heimshornum.
„Ég féll kylliflöt fyrir innrauða
klefanum sem er byggður á japanskri
tækni. Þar svitnar maður undan inn-
rauðum geislum sem fara djúpt inn
í vöðva og vefi líkamans og losa um
eiturefni sem koma út með svitanum.
Þá hefur verið rannsakað að tveir
tíundu hlutar svitans séu útskilnaður
þungmálma og eiturefna,“ upplýsir
Monika sem nú er farin að lesa grannt
innihaldslýsingar matvæla eftir
dvölina á Heilsuhótelinu.
„Ég vil ekki eitra líkamann aftur
og neita nú að borða gúmmí í hvaða
formi sem er,“ segir hún hlæjandi og
á meðal annars við uppáhaldsísinn
sinn.
„Hans mun ég aldrei aftur njóta
því við nánari skoðun reyndist ísinn
minn uppfullur af gúmmíi og auka-
efnum.“
Monika er kökumanneskja en á
Heilsuhótelinu er sneitt hjá öllum
sykri og hvítu hveiti.
„Það tók satt að segja á og ég var
slæpt fyrstu vikuna. Síðan fann ég
fyrir hreinni orku og hreinni tilfinn-
ingu sem gerði mig tvíeflda á eftir.“
Hún segir sér hafa komið á óvart
hvað Heilsuhótelið er hlýlegt, fallegt
og rúmgott, og að starfsfólkið hafi allt
lagt sig fram við að gera dvölina sem
besta.
„Þá er ég heilluð af þeirri stað-
reynd að nú sé að finna þorp heilsu,
vellíðunar og mennta á stað sem var
áður herstöð með neikvæðum tilfinn-
ingum stríðsrekstrar.“
Og Monika ætlar aftur á Heilsu-
hótelið.
„Bestu meðmælin eru auðvitað
þau að flestir koma aftur og aftur. Mig
langar aftur og mun koma að ári liðnu
með hörpuna mína til slökunar.“
HREIN OG TÆR ORKA
Monika Abendroth,
hörpuleikari og farar-
stjóri, kolféll fyrir inn-
rauðum hitaklefa á
Heilsuhótelinu og segir
hann hafa minnt sig á
pínulitla félagsmiðstöð
þar sem líkaminn fékk
úthreinsun eiturefna í
bland við skemmtilegan
félagsskap fólks úr öllum
heimshornum.
MYND/VALLI
HLUSTAR Á LÍKAMANN
HEILSUHÓTEL KYNNIR Hljóðfæraleikarinn og fararstjórinn Monika Abendroth fór með hörpu sína, líkama og sál á Heilsuhótelið á
vordögum. Hún segist nú harðneita að borða gúmmí af nokkurri sort og hefur gefið uppáhaldsísinn sinn upp á bátinn.
HEILSUHÓTEL ÍSLANDS – NÆSTU NÁMSKEIÐSTREITU OG ÞREYTU GEFIÐ
HORNAUGA Á HEILSUHÓTELI
Heilsuhótel Íslands hefur sl. þrjú ár unnið með fólki sem
vill bæta eigin lífsstíl, draga úr streitu og bæta svefn.
Heilsunámskeið (detox) tvær vikur
4.-18. maí (örfá pláss laus)
1.-15. júní (laus pláss)
6. – 20. júlí
3. – 17. ágúst
Munið að panta tímanlega.
Heilsuhelgi – skóli lífsins
18.-20. maí.
Tilboðsverð, 2 fyrir 1.
Kr. 45.000 helgin.
Fæði, hreyfing og fræðsla innifalin.
Slökun og skemmtilegur tími.
Hættum að reykja
Biðskráning í síma 5128040.
Sumarið 2012 – opnir dagar
Frá 22. júní-27. ágúst 2012.
Val um 3, 4, eða 7, 14 daga.
Aðgengi að Heilsulind. Bláa lónið.
Hollt og gott fæði, fræðsla og hreyfing.
Spennandi og uppbyggilegur val-
kostur fyrir alla.
Kynnist þessu einstaka hóteli.
Nánari upplýsingar
www.heilsuhótel.is
heilsa@heilsuhotel.is
Sími 512 8040