Fréttablaðið - 24.04.2012, Síða 40
32 24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR
Uppistandarinn Rökkvi Vésteins-
son er nýkominn heim frá Berlín
þar sem hann steig þrisvar á svið
og fór með gamanmál á þýsku í
fyrsta sinn.
„Merkilegt nokk tókst mér að láta
Þjóðverjana hlæja þó að þýskan sé
erfitt mál fyrir uppistand,“ segir
Rökkvi, sem nýtti tækifærið til
uppistands þegar hann var staddur
í Þýskalandi í mánaðarlöngu fríi
með fjölskyldunni sinni.
Fyrstu tvö kvöldin voru á opnu
sviði í grínklúbbi. „Fyrsta kvöldið
í grínklúbbnum bjargaði það
mér alveg að þar var par sem sat
fremst og sprakk úr hlátri yfir öllu
sem ég sagði. Annars var salurinn
frekar dauður,“ segir Rökkvi, sem
hefur talað þýsku síðan hann
var au-pair í Þýskalandi. Hann á
einnig þýska konu sem aðstoðaði
hann við að þýða uppistandið.
Á þriðja uppistandi hans á opnu
sviði á bar nokkrum fékk hann
bestu viðbrögðin. Öll kvöldin girti
hann niður um sig uppi á sviðinu
og sýndi áhorfendum beran
bossann, sem er hluti af atriði
hans. „Sumir vissu ekki hvaðan á
sig stóð veðrið en aðrir hlógu.“
Rökkvi hefur þar með verið með
uppistand á fjórum mismunandi
tungumálum, eða þýsku, íslensku,
ensku og sænsku. Hann vantar
bara eitt í viðbót, dönsku, til að
hafa farið með gamanmál á öllum
tungumálunum sem hann kann.
- fb
Reyndi að vera
fyndinn á þýsku
GAMANMÁL Á ÞÝSKU Rökkvi Vésteins-
son fór með gamanmál á þýsku í Berlín.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nýjasta kvikmynd Mels Gibson,
Get the Gringo, verður sýnd í
sjónvarpi aðeins tæpum tveimur
vikum eftir að hún var frumsýnd
í bíó. Myndin var aðeins sýnd
eitt kvöld í völdum kvikmynd-
húsum en verður næst sýnd í
sjónvarpi, gegn gjaldi.
„Við lifum á breyttum tímum.
Margir vilja bara sjá myndir
heima hjá sér. Þetta er ein leið til
að gera hlutina. Ég held að þetta
sé framtíðin,“ sagði Gibson, sem
er einnig að undirbúa mynd um
Júdas Makkabeus, sem var uppi
fyrir Krists burð.
Sýnd strax
í sjónvarpi
Í SJÓNVARPI Nýjasta mynd Mels Gibson
verður sýnd í sjónvarpi á næstunni.
NORDICPHOTOS/GETTY
Save the Children á Íslandi
Bíó ★★★★ ★
The Cabin in the Woods
Leikstjórn: Drew Goddard
Leikarar: Kristen Connolly, Chris
Hemsworth, Anna Hutchison, Fran
Kranz, Jesse Williams, Richard
Jenkins, Bradley Whitford
Fimm menntskælingar ætla að
eyða helginni í gömlum skógar-
kofa og djamma frá sér allt vit. Á
leiðinni að kofanum stoppa þau
á afskekktri bensínstöð þar sem
brúntenntur bensíntittur segir
þeim að snúa við, en að gömlum sið
graðra hrollvekjuungmenna hlæja
þau að við vörunum hans og halda
för sinni áfram. Þetta eru aðeins
fyrstu klisjurnar í röð margra, og
áhorfandinn býr sig undir beru
kvenmannsbrjóstin, vímuefna-
neysluna og subbulegu morðin sem
yfirleitt fylgja í kjölfarið. Þetta fær
hann allt saman og gott betur.
Það er auðvelt að skemma það
góða fjör sem myndin býður upp á
með of ítarlegri umfjöllun. En eins
og stjörnugjöfin gefur til kynna
er Skógarkofinn meira en bara
klisjurnar. Tilvísanir í eldri hroll-
vekjur eru óteljandi og er því óhætt
að fullyrða að sjóaðir hryllings-
reynsluboltar muni skemmta sér
betur en hinn almenni áhorfandi.
Á leið út úr sýningarsalnum heyrði
ég einn segja myndina þá bestu
sem hann hefði séð á meðan annar
bölvaði því að hafa ekki gengið út í
hléi. Mig grunar að sá fyrrnefndi
hafi lært betur heima en hinn.
Sjálfur hef ég ekki skemmt mér
jafn vel yfir hryllingsmynd lengi og
það er einhver undirliggjandi fersk-
leiki hér sem gerir gæfumuninn. Ég
telst í flokki gallharðra hrollvekju-
hunda en myndin var ávallt tveimur
skrefum á undan mér. Of snemmt
er þó að segja til um langvarandi
áhrif hennar á hrollvekjuna sem
listform, en líkt og gerðist í kjölfar
myndarinnar Scream um miðbik 10.
áratugarins eru líkur á að nú muni
höfundar jafnt sem áhorfendur
staldra við og hugsa sinn gang.
Eftir að nýjabrumið var farið af
Scream rann því miður allt í sama
farið og líklegt er að það sama
muni gerast hér. The Cabin in the
Woods er þrátt fyrir það fyrirtaks
skemmtun og kærkomin blóðgjöf í
visnandi kropp hrollvekjunnar.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Hressandi hrollur sem
kemur áhorfandanum sífellt á óvart.
Kærkomin blóðgjöf
ÓTELJANDI TILVÍSANIR Hryllingsmyndareynsluboltar skemmta sér vel yfir Skógar-
kofanum, enda óteljandi tilvísanir í eldri hrollvekjur í myndinni.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
CAFÉ/BAR, opið 17-23 / www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas
ÞRIÐJUDAGUR: THE WOMAN IN THE FIFTH 18:00, 20:00,
22:00 LAXNESS HÁTÍÐ: KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
18:00 LAXNESS HÁTÍÐ: SALKA VALKA 20:00 IRON
SKY 18:00, 20:00, 22:00 CARNAGE 22:20 SVARTUR Á
LEIK (ENGL. SUBS) 17:40, 22:00
ÍSL. TEXTI ENG. SUBS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ: 950 kr. miðinn!
23.-28. APRÍL
LAXNESS
Í LIFANDI MYNDUM THE WOMAN IN THE FIFTH
IRON SKY
KÖLT-GRÍN-
MYND ÁRSINS!
ETHAN
HAWKE
KRISTIN
SCOTT-THOMAS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
SÉÐ OG HEYRT/KVIKMYNDIR.IS FRÉTTABLAÐIÐ- T.V., KVIKMYNDIR.IS - D.M.S. MBL
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
“FYNDNASTA MYND SEM ÉG
HEF SÉÐ Í LANGAN TÍMA!”
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
TOPPMYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
DREPFYNDIN MYND!
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
21 JUMP STREET KL. 5.50 - 8 - 10.10 14
BATTLESHIP KL. 10.10 12
AMERICAN PIE: REUNION KL. 5.50 - 8 12
21 JUMP STREET KL. 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 5.40 - 8 - 10.20 L
IRON SKY KL. 5.45 - 10.30 12
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.15 10
HUNGER GAMES KL. 9 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 16
21 JUMP STREET KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
21 JUMP STREET LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 3.20 - 5.40 - 8 L
BATTLESHIP KL. 5.15 12
AMERICAN PIE: REUNION KL. 8 - 10.30 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.15 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L
HUNGER GAMES KL. 5 - 8 12
SVARTUR Á LEIK KL. 10.20 16
21 JUMP STREET 5.45, 8, 10.20
MIRROR MIRROR 5
BATTLESHIP 7, 10
HUNGER GAMES 7, 10
LORAX 3D ISL TAL 5
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
ÍSL TAL
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
T.V. - Kvikmyndir.isH.V.A. - FBL
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
5%
- séð og heyr/kvikmyndir.is
MÖGNUÐ SPENNUMYND
Hörku Spennutryllir
frá framleiðendum
“Girl with the Dragon
Tattoo” og “Safe
House”.
Ö Ý Í
SAM WORTHINGTON ROSAMUND PIKE RALPH FIENNES LIAM NEESON
EGILSHÖLL
16
16
16
14
12
12
12
12
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
16
ÁLFABAKKA
12
12
12
14
V I P
V I P
L
16
14
12
12
AKUREYRI
16
12
SELFOSS
16
7
12
12
L
L
ISÁ SAMBIO.ÉR MIÐA ÞTRYGGÐU
GÍ DAÓ ÍÞRIÐJUDAGSB