Fréttablaðið - 27.04.2012, Qupperneq 2
27. apríl 2012 FÖSTUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
Markmið:
Ný
tt
Sk
yr
.is
Ert þú með markmið?
Segðu frá því á www.skyr.is. Þú gætir unnið flug
og gistingu fyrir tvo innanlands eða gjafabréf. PRÓTEINRÍKT OG FITULAUST
AÐ KEPPA Á ÓLYMPÍU-
LEIKUNUM Í LONDON
Í SUMAR
Jakob Jóhann Sveinsson
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
2
-0
3
5
3
Einar, ætla
bændur
ekki að
reyna að
mjólka
þetta
eitthvað
meira?
Nei, bændur
vilja auðvitað
mjólka kúna,
en umfram
allt vilja þeir gera vel við kúnna.
Samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ er lítri
af nýmjólk eina varan í matarkörfunni
sem kostar það sama í öllum verslunum,
115 krónur. Einar Sigurðsson er forstjóri
Mjólkursamsölunnar.
Vinnuálag í starfi mínu er mikið Ég finn fyrir streitu í starfi mínu Ég er uppgefin/n að loknum vinnudegi
Meirihluti finnur fyrir miklu vinnuálagi og streitu
■ Nær alltaf ■ Oft ■ Stundum ■ Sjaldan ■ Aldrei
5737
6 19
3035
16
4131
11 17
STJÓRNSÝSLA Forstöðumenn ríkis-
stofnana upplifa meira álag og
streitu í starfi nú en fyrir fimm
árum. 94 prósent þeirra telja nær
alltaf eða oft mikið álag í starfi
sínu. Þetta kemur fram í könnun
á störfum og starfsskilyrðum for-
stöðumanna ríkisstofnana, sem
gerð var á vegum fjármálaráðu-
neytisins, Félags forstöðumanna
ríkisstofnana og Stofnunar stjórn-
sýslufræða og stjórnmála við
Háskóla Íslands.
„Könnunin var einnig gerð árið
2007 og það er mjög áberandi
hvað það hafa orðið miklar breyt-
ingar á starfsumhverfi forstöðu-
manna á þessum tíma,“ segir
Ómar H. Kristmundsson, prófess-
or í stjórnmálafræði, sem vann að
skýrslunni.
Rúmur helmingur forstöðu-
manna segir gott jafnvægi milli
vinnu sinnar og einkalífs. Aðeins
25 prósent forstöðumanna í æðstu
stjórnsýslu voru þessarar skoðun-
ar, en hlutfall þeirra var 92 pró-
sent fyrir fimm árum. Þá voru 35
prósent forstöðumanna heilbrigð-
isstofnana á því að jafnvægi væri á
milli vinnu og einkalífs, en 59 pró-
sent voru þeirrar skoðunar fyrir
fimm árum.
Þá taka átta af hverjum tíu for-
stöðumönnum vinnutengd verk-
efni iðulega með sér heim og sex-
tíu prósent segjast nær alltaf eða
oft vera uppgefin að loknum vinnu-
degi. Þetta hlutfall var 40 prósent
fyrir fimm árum.
Um 90 prósent forstöðumann-
anna eru á heildina litið ánægð
í starfi sínu, og tæpur helming-
ur segist mjög ánægður. Níu af
hverjum tíu telja einnig að góður
starfsandi sé ríkjandi innan stofn-
unar sinnar.
Þá segir Ómar að veruleg
óánægja sé með kaup og kjör og
forstöðumenn séu ekki sáttir við
núverandi fyrirkomulag í launa-
málum. Óánægja þeirra hefur
aukist milli kannana, 80 prósent
eru óánægð og tíu prósent ánægð.
Árið 2007 voru fimm af hverjum
tíu óánægðir en þrír af hverjum
tíu ánægðir með laun sín. Algeng-
ast er að forstöðumenn telji að
launin séu ekki í samræmi við
ábyrgð, vinnuframlag og álag, en
launaóánægjan eykst með auk-
inni stærð stofnunarinnar. Þrír af
hverjum fjórum forstöðumönnum
eru óánægðir með fyrirkomulag
við ákvörðun launa. 25 prósent
telja að ráðuneyti eigi að ákveða
launin, 15 prósent að stjórn stofn-
unarinnar eigi að gera það, 28 pró-
sent telja að semja eigi um laun í
kjarasamningum en 32 prósent
vilja annað fyrirkomulag.
thorunn@frettabladid.is
Undir meira álagi
og ósáttari við laun
Forstöðumenn ríkisstofnana eru undir meira álagi nú en fyrir fimm árum.
Flestir taka vinnuna oft með sér heim og meirihluti er oft uppgefinn að loknum
vinnudegi. 80 prósent eru óánægð með launin, en 90 prósent ánægð í starfi.
DÓMSTÓLAR Sextán ára fangelsis-
dómur yfir Reduoane Naoui
sem varð
manni að bana
á skemmti-
staðnum Monte
Carlo í júní
2011 var stað-
festur í Hæsta-
rétti í gær.
Í dómi
Héraðsdóms
Reykjavíkur,
sem stendur
óraskaður, var Naoui einnig
dæmdur til að greiða dótt-
ur mannsins sem hann réðist
á tæplega 3,1 milljón króna í
bætur, auk vaxta.
Maðurinn sem Naoui stakk í
hálsinn með hnífi lést á spítala
tæpum hálfum mánuði eftir
árásina. - óká
Stakk mann í hálsinn:
Hæstiréttur
staðfesti 16 ára
fangelsisdóm
REDOUANE NAOUI
50
40
30
20
10
0
Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
SKOÐANAKÖNNUN Tæplega helmingur aðspurðra
svaraði því til í nýrri skoðanakönnun Félags-
vísindastofnunar að hann myndi greiða Þóru
Arnórsdóttur atkvæði sitt í komandi forseta-
kosningum. Þóra hefur 49% fylgi, Ólafur Ragn-
ar Grímsson mælist með 34,8% fylgi og Ari
Trausti Guðmundsson 11,5% fylgi. Þrjú prósent
aðspurðra hyggjast kjósa Herdísi Þorgeirsdótt-
ur en innan við eitt prósent aðspurðra þá Ástþór
Magnússon, Jón Lárusson og Hannes Bjarna-
son.
Sami hópur fólks var spurður um afstöðu
sína til frambjóðendanna 17. apríl, áður en
Ari Trausti tilkynnti um framboð sitt. Könn-
unin bendir til að Ari Trausti sæki fylgi sitt til
óákveðinna í fyrri könnun en þriðjungur stuðn-
ingsmanna hans ætlaði að kjósa Þóru en 11%
Ólaf Ragnar.
Kannað var nú hvað vegur þyngst í ákvörðun
svarenda um það hverjum þeir ætla að greiða
atkvæði sitt. Þekking og reynsla frambjóðenda
vegur þyngst ásamt heiðarleika frambjóðand-
ans.
Þekking og reynsla Ólafs Ragnars vegur
þungt í ákvörðun svarenda en það nefnir 61%
þeirra sem styðja forsetans. Heiðarleika nefna
18% stuðningsmanna hans.
Þóru er helst talið til tekna framkoma og
heiðarleika nefna 45%. Þekking og reynsla Þóru
nefna 24% svarenda.
Könnunin var send á 1.961 þátttakanda og alls
svöruðu 1.379. Svarhlutfallið var 70%. - shá
Forsetaslagurinn er milli þriggja frambjóðenda, er niðurstaða könnunar:
Þóra með afgerandi forystu
Fylgi forsetaframbjóðenda
■ Ari Trausti Guðmundsson
■ Ástþór Magnússon
■ Hannes Bjarnason
■ Herdís Þorgeirsdóttir
■ Jón Lárusson
■ Ólafur Ragnar Grímsson
■ Þóra Arnórsdóttir
49,034,811,5 0,8 0,3 3,0 0,6
%
DANMÖRK Að meðaltali var til-
kynnt um 200 reiðhjólaþjófnaði
dag hvern í Danmörku á árunum
2007 til 2010. Það jafngildir því
að reiðhjóli sé rænt á áttundu
hverri mínútu. Vefur Politiken
segir frá þessu.
Afar sjaldgæft er að reiðhjóla-
þjófnaðir upplýsist, en árið 2010
gekk dómur í 277 málum, sem
jafngildir innan við hálfu pró-
senti af tilkynntum þjófnuðum.
Hjólaeigendur eru flestir
tryggðir fyrir þjófnaði og nema
greiðslur tryggingafélaga vegna
slíkra mála hálfum sjötta millj-
arði íslenskra króna. - þj
Bífræfnir þjófar í Danmörku:
Hjóli rænt með
8 mínútna bili
HJÓLAÓÐ ÞJÓÐ Danir eru ein mesta
reiðhjólaþjóð heims. Þar eru reiðhjóla-
þjófnaðir landlægt vandamál.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
UMHVERFISMÁL Átta manna hópur sérfræðinga frá
Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og
Íslenskri erfðagreiningu hafa sent flutningsmönn-
um þingsályktunartillögu um bann við útiræktun
erfðabreyttra lífvera opið bréf, þar sem spurt er
hvaða upplýsingar eða rök liggja að baki því að til-
lagan um bannið sé endurupptekin á þinginu.
Sambærileg tillaga var flutt á þinginu 2010-2011
og hópurinn bendir á að 37 sérfræðingar í erfða-
fræði og skyldum greinum hafi í athugasemdum við
þá tillögu sýnt fram á að nú þegar séu í gildi ströng
lög og reglur um erfðabreyttar lífverur og því sé
tillagan óþörf.
Samkvæmt þingsályktunartillögunni skal skipa
starfshóp sem vinni að breytingum á lögum og
reglugerðum í þeim tilgangi að banna útiræktun á
erfðabreyttum plöntum eigi síðar en 1. janúar næst-
komandi. Rökin eru að nauðsynlegt sé að leggja
slíka ræktun af til að „vernda hreinleika íslenskr-
ar náttúru og með tilliti til siðferðislegrar skyldu
núlifandi kynslóðar til að koma í veg fyrir að
einkenni hennar glatist“.
Áttmenningarnir spyrja af hverju aðstandendur
tillögunnar taki ekki tillit til álits helstu sérfræð-
inga þjóðarinnar um efnið enda hafi ekkert nýtt
komið fram eftir að álit 37 manna hópsins var
skrifað. - shá
Átta sérfræðingar furða sig á tillögu um bann við útiræktun erfðabreyttra lífvera:
Segja engin ný rök komin fram
GRÓÐURHÚS ORF LÍFTÆKNI Inniræktun er óumdeild en hug-
myndir um útiræktun, ekki síst hjá ORF Líftækni, hafa valdið
deilum. MYND/ORF LÍFTÆKNI
STJÓRNMÁL Stjórnmálasamtökin
Dögun hófu í gær undirskrifta-
söfnun gegn kvótafrumvarpi rík-
isstjórnarinnar. Samtökin hvetja
stjórnvöld til að virða loforð í
kvótamálum og hvetja forseta
Íslands til þess að synja frum-
varpinu annars staðfestingar.
Í tilkynningu frá samtökunum
segir að báðir ríkisstjórnarflokk-
arnir hafi verið á þeirri skoðun
að leggja ætti niður kvótakerfið
og taka upp nýtt kerfi. Í nýju
frumvarpi sé öllum úrbótum sem
lofað var kastað fyrir róða. - þeb
Stjórnmálasamtökin Dögun:
Undirskriftalisti
gegn frumvarpi
STJÓRNMÁL Upptaka ríkisdals og
flatur tuttugu prósenta flatur
skattur eru meðal stefnumála
Hægri grænna, flokks fólksins,
sem kynntu forystu sína og
stefnu sína í gær.
„Hægri grænir standa fyrir
lága skatta, sem minnst ríkis-
afskipti og friðsöm milliríkjavið-
skipti og náttúruvernd númer
eitt, tvö og þrjú,“ sagði Guðmund-
ur Franklín Jónsson, formaður
flokksins.
Meðal stefnumála er einnig að
hætta aðildarviðræðum við ESB
og leggja niður tolla og vörugjöld.
Fram kom á fundinum að stefnu-
skrá flokksins er 75 kaflar og
rúmlega þúsund blaðsíður. Fram
kom að 1.100 manns hafa skráð
sig í Hægri græna. - jmg
Hægri grænir kynna stefnu:
Vilja ríkisdal og
20% flatan skatt