Fréttablaðið - 27.04.2012, Blaðsíða 54
27. apríl 2012 FÖSTUDAGUR34
„Það er búið að bjóða okkur á mót
í Lundi í Svíþjóð næsta vetur og
stefnan er tekin þangað í desemb-
er,“ segir Alexander Harðarson,
frístundaleiðbeinandi og hægri
skytta eina hjólastólahandbolta-
liðs landsins.
Í liðinu, sem starfar undir
merkjum íþróttafélagsins HK,
eru um fimmtán manns. Alexand-
er segir það hafa markað tíma-
mót þegar HK ákvað að bjóða
upp á íþróttir fyrir fatlaða innan
félagsins. Hjólastólahandbolta-
liðið var stofnað fyrir rúmum
tveimur árum en styttra er síðan
þjálfari var fenginn til að þjálfa
liðið. Liðið er eina hjólastólaliðið
sem starfrækt er á landinu og því
þurfa Alexander og félagar hans
að ferðast út fyrir landsteinana
til að geta keppt í íþróttinni. „Við
höfum náttúrulega aldrei keppt
áður og erum því ekki sérstaklega
vel undirbúnir, en góðir hlutir ger-
ast hægt.“
Lítill hópur byrjaði að spila
handbolta saman að sögn Alex-
anders, en hann hefur nú stækk-
að. „Það voru tveir í stjórn HK
sem fannst vanta aukið úrval í
íþróttir fatlaðra. Hingað til hafa
fatlaðir helst tekið þátt í ein-
staklingsíþróttum en þetta er til
dæmis fyrsta hópíþróttin sem fólk
í hjólastól getur stundað,“ segir
hann. „Ég komst sjálfur inn í ferl-
ið í gegnum vini mína í stjórn HK
og fyrst var þetta lítill hópur vina
sem spilaði þjálfaralaust. Okkur
fannst svo orðið tímabært að fá
fleiri í hópinn og auglýstum eftir
fólki meðal annars á Facebook og
síðan þá hefur þetta stækkað skref
af skrefi og nú erum við meira að
segja komnir með þjálfara.“
Liðið spilar eftir sömu reglum
og í hefðbundnum handbolta en
með einhverjum áherslubreyt-
ingum. Dómarinn er til að mynda
utan vallar, mörkin eru lækkuð og
enginn línumaður er í liðinu. Liðs-
menn liðsins koma einnig frá ólík-
um bakgrunni að sögn Alexand-
ers, sumir hafa verið í hjólastól frá
fæðingu, aðrir hafa lent í slysum
en svo spilar einnig með þeim einn
ófatlaður einstaklingur.
Inntur eftir því hvort önnur lið
ætli að fylgja í fótspor HK segist
Alexander vona að svo verði. „Fólk
er mjög áhugasamt um íþróttina
og ég hef heyrt að aðrir séu í svip-
uðum pælingum en hef ekki fengið
það staðfest. Okkur þætti frábært
ef fleiri bættust í hópinn og við
fengjum andstæðing til að keppa
á móti,“ segir hann að lokum.
sara@frettabladid.is
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Hingað til hafa fatlaðir
helst tekið þátt í ein-
staklingsíþróttum.
ALEXANDER HARÐARSON
HÆGRI SKYTTA
„Það er líklega lagið David með
Gusgus.“
Óskar Þór Axelsson, leikstjóri.
Björk hefur aflýst tónleikum sem
hún ætlaði að halda í Sao Paulo í
Brasilíu 11. maí vegna hnúðs á
raddböndunum.
Hún hefur verið á tónleika-
ferðalagi um Suður-Ameríku að
undanförnu en stutt er síðan hún
þurfti að aflýsa tvennum tónleik-
um í Buenos Aires í Argentínu
vegna veikindanna. Eftir að hafa
gengist undir læknisskoðun kom í
ljós að ef hún hvíldi röddina ekki
lengur gæti hún átt það á hættu að
skemma röddina til frambúðar.
„Því miður get ég ekki sungið á
Sonar-hátíðinni í Brasilíu sem er
synd vegna þess að þeir listamenn
sem eiga að spila þar eru frábær-
ir og ég elska Brasilíu,“ skrif-
aði Björk á Facebook-síðu sína
og bætti við að hún yrði að vera
í þagnarbindindi eitthvað fram í
maí samkvæmt læknisráði.
Björk greindist fyrst með hnúð á
raddböndunum árið 2008 og óttaðist
að hún gæti ekki sungið framar,
eða ekki eins og hún var vön. Hún
vildi ekki fara í aðgerð af ótta við
að hún myndi skemma röddina.
Þess í stað gerði hún æfingar til að
teygja á raddböndunum.
Björk þarf að hvíla raddböndin
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
Í SÍLE Björk á Lollapa-
looza-hátíðinni í Síle í
síðasta mánuði.
„Við heilluðumst af öllum litlu þorpunum sem
er að finna lengst inni í fjörðum um allt land og
veltum mikið fyrir okkur hvernig líf fólks sem
byggi á svo afskekktum stöðum væri,“ segir
Loralee Grace, sem er væntanleg til landsins,
ásamt eiginmanni sínum Philip Carrel, í lok maí
að gera heimildarmynd um Þingeyri.
Philip er lærður kvikmyndagerðamaður og
hefur starfað við það í nokkur ár. Hann mun að
mestu sjá um gerð myndarinnar en með aðstoð
eiginkonu sinnar sem er listmálari. Þau komu
fyrst til Íslands síðastliðið sumar í tilefni brúð-
kaupsafmælis síns. „Við leigðum okkur lítinn
VW Polo og keyrðum um landið í 16 daga og
gistum á 14 mismunandi hótelum. Þetta var
pínu brjálæði, en alveg rosalega gaman,“ segir
Loralee. Þau urðu bæði yfir sig ástfangin af
Íslandi og láta sig dreyma um að flytja hingað
einhvern daginn. „Það má eiginlega segja að við
séum orðin Íslands-fíklar,“ segir hún og hlær.
Loralee og Philip bauðst vinna á kaffihúsinu
Simbahöllinni á Þingeyri í tvo mánuði sumar
og ákváðu að taka því og gera heimildarmynd
um staðinn í leiðinni. „Við vonumst til að kynn-
ast þorpinu og heimamönnunum og fá að upp-
lifa það sjálf hvernig lifnaðarhættir eru á svo
afskekktum stað,“ segir Loralee.
Hjónin fjármagna myndina að miklu leyti
sjálf, auk þess sem þau hafa sótt um ýmsa
styrki. „Svo erum við með síðu á vefsíðunni
Kickstarter þar sem fólk getur lagt okkur lið
og heitið á okkur. Við eigum samt bara nokkra
daga eftir þar, svo vonandi náum við takmark-
inu,“ segir Loralee, en síðan virkar þannig að
nái þau ekki settu takmarki fá þau ekkert af
peningnum sem búið er að safnast þar. - trs
Bandarísk hjón gera mynd um Þingeyri
Á SEYÐISFIRÐI Loralee og Philip fóru meðal annars í
fjallgöngu á Seyðisfirði á ferð sinni um Ísland síðast-
liðið sumar. MYND/PHILIP CARREL
ALEXANDER HARÐARSON: FÓLK ER MJÖG ÁHUGASAMT UM ÍÞRÓTTINA
Handboltalið í hjólastólum
stefnir á mót í Svíþjóð
Grímsbær-Bústaðarvegi
Efstaland 27, 108 Rvk., Sími 527-1999
Opið: mán-fös. 11-18
laugd. 11-15 Vertu vinur á facebook ;)
OPNA KLUKKAN 11.00 MEÐ
STÚTFULLA VERSLUN AF
GLÆNÝJUM SUMARLEGUM
LITRÍKUM VÖRUM
Sjáumst í Grímsbæ við Bústaðaveg...
Sendi líka hvert á land sem er.
25% AFSLÁTTUR
AF VÖLDUM VÖRUM!
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
Glæný Bláskel
frá Stykkishólmi
Ferskur Túnfiskur
Alla föstudaga og laugardaga
Humar 2.350 kr.kg
Óbrotinn fyrsta flokks humar
Fiskibollur
að dönskum hætti
(lax, þorskur, dill, rjómi, krydd)
Harðfiskurinn
frá Stykkishólmi
Þessi sjúklega góði
Humarsoð
frá
Hornarfirði
HART BARIST Alexander Harðarson spilar stöðu hægri skyttu í hjólastólahandboltaliði
HK. Liðið er hið eina sinnar tegundar sem starfrækt er á landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI