Fréttablaðið - 28.04.2012, Side 6
28. apríl 2012 LAUGARDAGUR6
Nú er upplagt að skella sér í helgarferð til Kaupmannahafnar á hagstæðum
kjörum og láta WOW ferðir sjá um allan pakkann. Hægt er að rölta um
borgina, virða fyrir sér mannlífið og njóta menningarinnar, matarins og lífsins
almennt. Við biðjum að heilsa hafmeyjunni.
Verð á
mann
í tvíbýli: 69.900 kr.
Innifalið er flug
með sköttum og
gisting í 3 nætur
með morgunverði.
WOW ferðir | Grímsbæ, Efstalandi 26 | 108 Reykjavík | +354 590 3000 | wowair@wowair.is
Hamingjurík
helgi í Köben
wowferdir.is
8.–11. júní
15.–18. júní
22.–25. júní
6.–9. júlí
LÖGREGLUMÁL Fjárframlög ríkisins
til lögreglunnar voru þau sömu í
fyrra og árið 2007, eða um 7,2
milljarðar króna. Lögreglu-
mönnum hefur fækkað um 111 á
sama tímabili, en síðustu þrjú ár
hafa engir nemar verið í lögreglu-
skólanum eins og áður tíðkaðist.
Landssamband lögreglumanna
(LL) ályktaði í vikunni um að
„leggja lögregluna á Íslandi niður
í núverandi mynd“ sökum fjár-
skorts. Ályktunin var samþykkt
einróma á þingi LL.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir gilda hið sama um
lögregluna og aðrar opinberar
stofnanir og að hún hafi vissu-
lega þurft að sæta niðurskurði.
„En við vonumst til að sólin rísi á
hinum efnahagslega himni og þar
með vænkist hagur hennar,“ segir
Ögmundur.
„Ég er sammála LL um að
standa vörð um löggæsluna, en
leyfi mér að vekja athygli á því að
það að leggja til að lögreglan verði
lögð niður því hún sé orðin einskis
nýt er stílbragð og það má alveg
deila um hversu smekklegt það er.
Eitt er víst að það er ekki raunsætt
og ekki meint samkvæmt orðanna
hljóðan.“
Ekinn kílómetrafjöldi lögreglu-
bifreiða hefur dregist verulega
saman undanfarin ár, þó mis-
mikið eftir umdæmum. Mest
hefur akstur dregist saman hjá
em bættinu á Akranesi, eða um 55
prósent, 53 prósent hjá lög reglunni
í Borgarnesi og 42 prósent hjá
Blönduósslögreglunni. Hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
dróst akstur saman um 31 prósent
frá 2007 til 2011.
Í bráðabirgðatölum ríkislög-
reglustjóra fyrir síðasta ár kemur
fram að afbrotum hafi fækkað
gríðarlega á milli áranna 2010 og
2011, eða um tæp 25 prósent. Kyn-
ferðisbrotum og fíkniefnabrotum
fjölgaði milli ára. Ekki náðist í
Snorra Magnússon, formann LLí
gær. sunna@frettabladid.is
Ráðherra vill standa
vörð um lögregluna
Landssamband lögreglumanna ályktar um að láta leggja lögregluna niður í
núverandi mynd. Innanríkisráðherra gagnrýnir ályktunina og kallar hana stíl-
bragð. Glæpum hefur fækkað um fjórðung og fjárframlög ríkisins eru þau sömu
5,5
5,14
4,5
4,2
3,9
2007
2008
2009
2010
2011
800
700
600
500
400
300
200
100
0
712 660 712 661 652
20007 2008 2009 2010 2011
Nemar
Starfandi lögreglumenn
Eknir kílómetrar (milljón)
Útgjöld ríkissjóðs til lögreglu
(milljarðar)
2007 2008 2009 2010 2011
8
7
6
7,2 7,8 7,8 7,8 7,2
DANMÖRK Tveir sjóliðar af dönsku
drottningarsnekkjunni Danne-
brog voru í gær dæmdir í átján
mánaða fangelsi fyrir nauðgun,
fyrir rétti í Nuuk.
Þeir eru á þrítugsaldri og eru
sakfelldir fyrir að hafa nauðgað
grænlenskri konu um borð í
snekkjunni þegar hún lá við
höfn í Nuuk í júlí síðastliðnum,
á meðan á heimsókn Margrétar
Þórhildar drottningar stóð.
Vefmiðillinn Sermitsiaq.ag
segir frá, en þar kemur jafnframt
fram að þeir hafi verið dæmdir til
skaðabótagreiðslu að upphæð 70
þúsund danskar krónur.
Mennirnir áfrýjuðu báðir
dómum sínum. - þj
Afbrot um borð í Dannebrog:
Nauðgað á skipi
drottningar
DANNEBROG Brotið átti sér stað um
borð í snekkju drottningar á meðan á
opinberri heimsókn til Grænlands stóð.
REYKJAVÍKURBORG Tillaga um ýmsar
breytingar á stjórnkerfi borgar-
innar var lögð fram í borgarráði á
fimmtudag. Sett verður á laggirnar
nýtt umhverfis- og skipulags-
svið og ný skrifstofa eigna og
atvinnuþróunar. Jafnframt á að
breyta skipuriti fyrir miðlæga
stjórnsýslu hjá Reykjavíkurborg
og stofna embætti umboðsmanns
borgarbúa.
„Umboðsmaðurinn fær það hlut-
verk að leiðbeina borgarbúum sem
telja að á sig hafi verið hallað að
einhverju leyti í borgarkerfinu og
vera okkur jafnframt til ráðgjafar
um hvað megi
betur fara ,“
segir Dagur B.
Eggertsson, for-
maður borgar-
ráðs.
Við breyting-
arnar verður
framkvæmda-
og eignasvið
lagt niður og
sett undir nýtt
umhverfis- og skipulagssvið sem
starfa á í umboði nýs skipulags- og
umhverfisráðs. Ný skrifstofa eigna
og atvinnuþróunar á að taka yfir
hluta verkefna framkvæmda- og
eignasviðs, meðal annars málefni
eignasjóðs borgarinnar.
Minnihluti Sjálfstæðisflokks og
Vinstri grænna í borgarráði sagði
óvíst með fjárhagslegan ávinning af
breytingum og gerði athugasemdir
við vinnslu málsins.
Dagur segir breytingarnar
verða gerðar í áföngum og að fullu
komnar til framkvæmda fyrir lok
ársins. „Það verður byrjað á því að
auglýsa eftir yfirmönnum yfir nýja
sviðinu og skrifstofunni sem munu
síðan leiða annað starfsfólk í að
móta þessa nýju starfsstaði.“ - gar
Borgin ætlar í umbyltingu í sviðakerfinu og breytir skipuriti stjórnsýslunnar:
Auglýst eftir nýjum yfirmönnum
DAGUR B.
EGGERTSSON
STJÓRNSÝSLA Ríkisstjórnin hefur
samþykkt, að tillögu Oddnýjar G.
Harðardóttur iðnaðar- og fjár-
málaráðherra, að skipa ráðgjafa-
hóp til að kanna möguleikana á
því að leggja sæstreng frá Íslandi
til meginlands Evrópu.
Í hópnum munu eiga sæti full-
trúar allra þingflokka, aðilar
vinnumarkaðarins og fulltrúar
helstu hagsmunaaðila. Hópurinn
á að skila greinargerð um málið í
lok þessa árs. Sérstök verkefnis-
stjórn, sem skipuð verður full-
trúum stjórnvalda, mun starfa
samhliða ráðgjafarhópnum. - kóp
Ráðgjafahópur skipaður:
Kanna lagn-
ingu sæstrengs
DÓMSTÓLAR Sautján ára piltur
hefur verið úrskurðaður í áfram-
haldandi gæsluvarðhald til 11.
maí að kröfu lögreglunnar á
höfuð borgarsvæðinu.
„Pilturinn var handtekinn í
Kópavogi um síðustu helgi eftir
að lögreglu barst tilkynning um
alvarlega líkamsárás. Þar hafði
hann veitt konu á þrítugsaldri
áverka með hnífi,“ segir í til-
kynningu lögreglu. Fram kemur
að pilturinn sé vistaður á við-
eigandi stofnun í samráði við
barnaverndaryfirvöld. - óká
Áfram í gæsluvarðhaldi:
17 ára á viðeig-
andi stofnun
FÓLK Krabbameinsfélagið fékk
í gær rúmlega eina og hálfa
milljón króna í styrk frá heilsu-
vörufyrirtækinu Artasan.
Fyrirtækið flytur inn Nicoti-
nell nikótínvörur og ákvað að
láta allan söluhagnað í mars
renna til Krabbameinsfélagsins.
Að sögn Krabbameinsfélagsins
lét fjöldi fyrirtækja söluhagnað
eða annars konar stuðning renna
til átaksins Mottumars, en enn
er verið að skila inn styrkjum.
Heildarupphæðin verður tekin
saman og eru vonir bundnar við
að hún hækki töluvert. - þeb
Krabbameinsfélagið fær styrk:
Gáfu hagnað af
sölu nikótínlyfs
AFHENDING Jón Viðar Stefánsson
afhenti Ragnheiði Haraldsdóttur for-
stjóra Krabbameinsfélagsins styrkinn.
Myndir þú vilja kafa í gjánni
Silfru?
JÁ 36,6%
NEI 63,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér að gera eigi saksókn
vegna hatursáróðurs á netinu
auðveldari?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
UMHVERFISMÁL Hveragerði varð í
gær fyrsta samfélagið í heimin-
um til þess að fá viðurkenningu
sem Toucan grænt samfélag.
Toucan Eco eru algjörlega
umhverfisvænar hreinsivörur
og allar stofnanir í Hveragerði
notast nú við slík efni. Geoff
Bowers, sem fann upp hreinsi-
efnið, afhenti bæjarstjóra Hvera-
gerðis, Aldísi Hafsteinsdóttur,
viðurkenningu vegna þessa í gær.
Efnið er unnið úr vatni og matar-
salti og hefur verið notast við það
í nokkra mánuði í bænum. - þeb
Hveragerði fær viðurkenningu:
Fyrsta græna
samfélagið
KJÖRKASSINN