Fréttablaðið - 28.04.2012, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 28. APRÍL 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson. benediktj@365.is. s. 512-5411
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Dýragarðar heimsins eru margir og sitt sýnist hverj-um þegar kemur að því
hvað sé skemmtilegt að skoða.
Sumum finnst að dýr ættu bara
alls ekki að vera lokuð inni í dýra-
görðum meðan öðrum finnst fátt
yndislegra en að geta skoðað dýr
frá öllum heimsálfum á einum
stað. En hvert á að fara vilji maður
sjá sem flest dýr? Fjórir stærstu
dýragarðar heimsins eru í Berlín í
Þýskalandi, Peking í Kína og í New
York og Nebraska í Bandaríkjun-
um. Stærsti dýragarður á Íslandi
er Húsdýragarðurinn.
Reykjavík
Húsdýragarðurinn í Reykjavík var
stofnaður árið 1990. Hann stendur
á níu hektara lóð og hefur alls um
30 dýr. Þar er að finna helstu hús-
dýr Íslands ásamt selum, refum,
minkum og einum snák.
New York
Fjórði stærsti dýragarður í heimi,
sé miðað við fjölda tegunda, er
Bronx-dýragarðurinn í New York.
Hann var opnaður árið 1899.
Bronx-garðurinn er stærsti dýra-
garður Bandaríkjanna sem stað-
settur er innan borgarmarka.
Hann stendur á 107 hektara land-
svæði með yfir 4.000 dýr og 650
tegundir og eru mörg dýranna í út-
rýmingarhættu.
Peking
Þriðji stærsti dýragarðurinn er í
Peking í Kína og var stofnaður árið
1906. Hann stendur á 219 hekt-
ara svæði með 14.500 dýr og yfir
450 tegundir. Þar að auki er hann
einnig með yfir 500 sjávartegund-
ir. Garðurinn er þekktastur fyrir að
hýsa sjaldgæfar dýrategundir frá
Kína, þar á meðal risapöndur sem
eru aðalaðdráttarafl hans.
Nebraska
Í öðru sæti er Henry Doorly Zoo,
dýragarður í Nebraska í Banda-
ríkjunum sem var stofnaður árið
1894. Hann nær yfir 53 hektara
landsvæði með um 17.000 dýr og
962 tegundir. Garðurinn hefur
meðal annars að geyma gríðar-
stórt og fjölbreytt kattardýrasvæði
með yfir 30 kattartegundum. Þar
er einnig gríðarstór inni-eyðimörk
sem staðsett er í stærstu glerhvelf-
ingu heims og inni- mýrarsvæði.
Berlín
Í fyrsta sæti er dýragarðurinn
í Berlín sem var stofnaður árið
1844 og er því elstur af þeim fjór-
um görðum sem fjallað er um hér.
Hann er staðsettur í miðju Berlín-
ar á 34 hektara svæði. Fjöldi dýra
er yfir 17.000 og hann er með flest-
ar dýrategundir heims af öllum
dýragörðum eða yfir 1.500 tegund-
ir. Hann er hvað þekktastur fyrir
pandabjörninn Bao Bao og ísbjörn-
inn Knut sem dó árið 2011.
Heimild:www.touropia.com
Stærsti dýra-
garðurinn í Berlín
Stærsti dýragarður í heimi er í Berlín, með yfir 1500 dýrategundir. Stærsti dýragarður á
Íslandi er Húsdýragarðurinn með um 30 tegundir og einn snák.
Fíll að gæða sér á ljúffengum ísmola með góðgæti í.
Pandabjörn á klifri.Tígrisdýr í návígi.
Fyrirsögnin gæti verið hluti úr gátlista manneskju á leið til Boston.
Manneskju sem veit að það er fátt verra en að fara að sofa án þess að
bursta tennurnar. Nema þá kannski að lenda í bandarískum toll-
vörðum án passans. Þeir eru nógu erfiðir þótt maður sé með hann,
fjandakornið.
En þó fyrst og fremst mann-
eskju, sem langar að setja sig inn
í kynngimagnaða sögu Boston
– og þar af leiðandi Bandaríkj-
anna – en barasta nennir ekki
að lesa þykkar og þungar sagn-
fræðiskruddur til þess arna. Held-
ur verða sér bara úti um frábæra
sjónvarpsseríu HBO um John
Adams, fyrrum forseta Bandaríkj-
anna og lykilmann í frelsisstríði
Bandaríkjanna, og horfa á í einum
rykk. Sögukennsla verður nefni-
lega ekkert mikið skemmtilegri.
Í þáttaröðinni, sem sýnd var á Stöð 2 árið 2010, fær áhorfandinn
einstaklega góða innsýn inn í átök pílagrímanna við breska kon-
ungsveldið, sem síðan leiddu til stofnunar Bandaríkjanna. Staðir
lifna við. Hugtök skýrast. Menn og málefni fá dýpri merkingu. Já, og
ferðin vestur um haf verður í kjölfarið ánægjulegri, jafnvel þótt hún
snúist á endanum upp í búðarráp og bjórsull. Maður er þá altént að
rápa og sulla … upplýstur á söguslóðum. Sem hljómar strax betur.
Tannbursti, passi,
John Adams
Leikarinn Paul Giamatti hlaut Emmy-
verðlaunin fyrir túlkun sína á John
Adams.
Ískalt, fjarlægt og leyndardómsfullt eru lýsingarorð sem Kínverjar
tengja oftast við Ísland. Það gæti þó átt eftir að breytast eins og segir
í frétt sem birtist 21. apríl á fréttavef ChinaDaily.
Eftir að þjóðirnar tvær
skrifuðu undir samkomu-
lag um vegabréfsáritan-
ir til Íslands árið 2004
hafa tækifæri Kínverja til
ferðalaga til Íslands auk-
ist. Árið 2009 heimsóttu
7000 Kínverjar Ísland. Þá
hafa lýsingar kínverskra
ferðamanna á bloggum
og á heimasíðum kveikt
ferðahug í fleirum og fékk
mynd af Bláa lóninu sem
birtist á Weibo.com, vinsælli bloggsíðu í Kína, fjölda athugasemda.
Meðal annars sagði einn að „hjarta hans þráði“ að komast þangað!
Þá lét kínverski athafnamaðurinn Huang Nubo, sem reyndi ítrek-
að að kaupa land á Íslandi, hafa eftir sér að stórbrotið landslagið hefði
heillað hann strax í fyrstu heimsókn árið 2010. Umfjöllun um athafnir
hans á Íslandi í fjölmiðlum vöktu einnig mikla athygli í Kína.
Þá er talið að nýleg heimsókn forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao,
verði til þess að gera Ísland enn sýnilegra augum Kínverja og muni
hvetja fleiri til að heimsækja fjarlægu eyjuna í norðri.
Heimild: www.usa.chinadaily.com
Kínverjar vilja til Íslands
Bloggfærslur um Bláa lónið kveikja ferðaþrá í
hjörtum Kínverja. MYND/GVA
DAGSFERÐIR TIL EYJA HAFA MARGFALDAST
Það hefur orðið gjörbylting á
ferðamannaiðnaði í Vestmanna-
eyjum eftir að Herjólfur hóf að sigla
úr Landeyjahöfn.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrar-
stjóri Herjólfs og forseti bæjar-
stjórnar í Vestmannaeyjum, segir
að í raun sé þetta eins og dagur og
nótt frá því sem áður var, þvílík varð
breytingin.
„Um leið og Herjólfur fór að sigla
að Landeyjahöfn fundum við fyrir gjörbreytingu hvað varðar þau tungumál sem töluð voru
um borð. Erlendir ferðamenn margfölduðust og bókanir í sumar eru þegar orðnar miklar.
Allt stefnir í mjög gott sumar. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi fjölgun erlendra ferða-
manna og stefnum á að nota Landeyjahöfn í allt sumar,“ segir Gunnlaugur enn fremur.
„Aðstaða þeirra sem reka veitingahús, verslanir og gistiheimili hefur gjörbreyst eftir að
Landeyjahöfn var tekin í notkun,“ segir Gunnlaugur. „Bæjarlífið hefur sömuleiðis tekið
stakkaskiptum. Bærinn er fullur af fólki á meðan þessar siglingar standa yfir og allt lifnar
við. Margar rútur með innlendum og erlendum ferðamönnum koma núna til Eyja og flestar
í dagsferð. Það hefur einmitt komið okkur mest á óvart hversu margir koma í dagsferð. Það
er ánægjulegt að sjá þessa breytingu þótt við viljum vitaskuld hafa gestina okkar sem allra
lengst.
Gunnlaugur segir
gjörbyltingu hafa
orðið í Eyjum.