Fréttablaðið - 28.04.2012, Qupperneq 73
KYNNING − AUGLÝSING28. APRÍL 2012 LAUGARDAGUR
Borgarferðir sækja nú aftur í sig veðrið og mikil eftir-spurn er eftir rómantískum,
sögulegum borgum í Evrópu,“
upplýsir Þorsteinn Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Úrvals Útsýnar,
sem býður heillandi borgarferðir
til Prag nú í maí og til Berlínar og
Barcelona í haust.
„Í stað verslunarferða áður vilja
landsmenn nú fara í menningar-
reisur til að upplifa áfanga staðina
betur og því mætum við með
auknu framboði skoðunarferða
með reyndum fararstjórum,“ segir
Þorsteinn sem ríður á vaðið með
einstakri vorferð til Prag helgina
16. til 20. maí næstkomandi.
„Þá förum við sérstaka forseta-
ferð í tilefni af síðustu opinberu
heimsókn Ólafs Ragnars Gríms-
sonar á kjörtímabilinu. Forseta-
hjónin verða um borð í vélinni og
mun ferðafólkið strax upplifa höfð-
inglegar móttökur heimamanna.
Þá verður Íslandsstofa með
skemmtilega kynningu á Íslandi í
Prag og Andrea Gylfa dóttir treður
upp með tékkneskum listamönn-
um. Vitaskuld eru allir frjálsir
ferða sinna, og geta upplifað róm-
antískt vor í Prag sem er töfrandi
borg og mikið augnayndi; full af
menningu, listum og mannlífi.“
Þess má geta að forseta f lugið
til Prag verður jómfrúrferð Ice-
land Express en eftir það flýgur
flugfélagið vikulega til tékknesku
höfuð borgarinnar.
Hausttöfrar Evrópu
Þegar haustar stendur Úrval
Útsýn fyrir spennandi helgar-
ferðum til Berlínar og Barcelona,
og áfram verður ferðaskrifstofan
með borgar ferðir til enska strand-
bæjarins Brighton sem stundum
er kallaður Litlu-Lundúnir og til
Dyflinnar, höfuðborgar Írlands.
„Dyflinn er með líflegri borgum
Evrópu og veitingahús, krár og ný-
tísku hótel hafa lífgað upp á miðbæ
Dyflinnar svo um munar. Borgin
iðar af fjöri fyrir jafnt unga sem
aldna og allir finna skemmtun,
menningu og stemningu við hæfi.
Þá nýtur hin undurfagra Brighton
alltaf jafn mikilla vinsælda, og nú
finnum við fyrir miklum áhuga á
Berlín og Barcelona,“ segir Þor-
steinn um þessar fjórar miklu
menningarborgir.
„Barcelona er hrífandi sólar-
landaborg sem hefur verið fun-
heit frá Ólympíuleikunum 1992
og alltaf slegist um hvert sæti.
Þaðan er stutt í sjarmerandi, ná-
læga strandbæi og borgin sjálf
mjög lifandi með lokkandi mann-
lífi og menningu,“ segir Þorsteinn
um spænska djásnið Barcelona,
en Berlín hefur ekki síður slegið í
gegn hjá íslensku ferðafólki.
„Þar er áhrifamikið að skoða
ummerki Berlínarmúrsins og
þær leifar sem eftir standa af að-
skilnaði menningarheima vesturs
og austurs í kalda stríðinu, en
borgin sjálf er uppfull af lífsins
dásemdum og sannarlega hægt
að dekra við líkama og sál í fal-
legri Berlín,“ segir Þorsteinn sem
hefur heimsótt allar þessar borgir
en hefur þó enga í dálæti umfram
aðra.
„Að bera þessar borgir saman
er eins og að bera saman epli,
appelsínu, banana og sítrónu.
Allar eru þær ólíkir karakterar með
stóran sjarma og hver þeirra sinn
kaflinn í bókinni um heiminn, en
allt borgir sem hver og einn ætti að
upplifa á lífsleiðinni.“
Rómantískt vor
og stórborgasjarmi
Dregur hugurinn þig stundum til Prag, Dyflinnar, Berlínar, Barcelona eða Brighton?
Úrval Útsýn er með freistandi tilboð á helgarferðum til fimm evrópskra heimsborga í
vor, sumar og haust.
Prag er talin með fegurstu borgum Evrópu og eru elstu hverfi hennar á heimsminjaskrá Unesco. Höfuðborgin er sú stærsta í Tékklandi,
staðsett í miðju landsins og í gegnum hana rennur Moldá.
Þorsteinn Guðjónsson er framkvæmdastjóri Úrvals Útsýnar. Hann segir Íslendinga nú
þyrsta í menningarreisur í stað verslunarferða um stórborgir heims. MYND/STEFÁN
BORGAR-
FERÐIR Á
FRÁBÆRU
VERÐI
MEIRA Á urvalutsyn.is Ferðaskrifstofa
á mann m.v. 2 fullorðna í
tvíbýli með morgunmat.
Brottför: 19. október.
(Aðrar brottfarir í boði)
79.900kr.*
BERLÍN
Flug + gisting
í 3 nætur frá:
á mann m.v. 2 fullorðna í
tvíbýli með morgunmat.
Brottför: 18. október.
(Aðrar brottfarir í boði)
97.900kr.*
PRAG
Fáðu tilboð fyrir hópinn þinn!
Flug + gisting
í 3 nætur frá:
á mann m.v. 2 fullorðna í
tvíbýli með morgunmat.
Brottför: 22. nóvember.
(Aðrar brottfarir í boði)
79.900kr.*
BRIGHTON
Flug + gisting
í 3 nætur frá:
á mann m.v. 2 fullorðna í
tvíbýli með morgunmat.
Brottför: 1. nóvember.
89.900kr.*
DUBLIN
Flug + gisting
í 4 nætur frá:
*
In
ni
fa
lið
: F
lu
g
, s
ka
tt
ar
, g
is
ti
ng
o
g
ís
le
ns
k
fa
ra
rs
tj
ór
n
(h
áð
lá
g
m
ar
ks
þ
át
tt
ök
u)
. V
er
ð
m
ið
as
t
vi
ð
að
b
ók
að
s
é
á
ne
ti
nu
. P
re
nt
að
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
v
ill
ur
.