Fréttablaðið - 28.04.2012, Síða 74
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2012
Eitt af því sem Íslendingar gera mikið af þegar þeir fara til útlanda er
að versla. Stórar verslunarmiðstöðvar þar sem hægt er að fá nánast
allt sem hugurinn girnist á einum og sama staðnum eru því vinsælir
áfangastaðir í huga margra. Vefsíðan Touropia hefur tekið saman lista
yfir tíu stærstu verslunarmiðstöðvar heims og þar kemur fram að átta
þeirra eru í Asíu.
Stærsta verslunarmiðstöð heims er samt sem áður líklega ekki fýsi-
legasti kosturinn ef tilgangurinn er að versla sem mest. New South
China Mall í borginni Dongguan í Kína er sú verslunarmiðstöð sem
er talin vera stærst ef farið er eftir flatarmáli sem ætlað er til leigu. Það
er þó ekki nóg að vera stærst til að vera best því það sem miðstöðina
vantar eru viðskiptavinir. Þrátt fyrir að státa af eftirlíkingu af Sigur-
boganum franska, gondólum sem sigla um á síkjum og rússíbana eru
99 prósent allra verslananna í miðstöðinni tómar. Einu svæðin sem
eru í leigu í verslunarmiðstöðvarferlíkinu eru við útgangana þar sem
vestrænar skyndibitakeðjur hafa lagt undir sig rýmið.
Þannig hefur þetta verið síðan verslunarmiðstöðin opnaði árið 2005
og því ekki skrítið að hún hafi verið uppnefnd stærsta „draugaverslun-
armiðstöð“ í heimi.
Stærst í heimi en samt tóm
Það eru ekki margir að versla í stærstu verslunarmiðstöð heims.
Tyrkland hefur yfir sér fram-andi blæ hjá Íslendingum og Vala Ósk var spurð hvern-
ig henni liði í Istanbúl. „Það er
skemmtilegt að búa hérna því á
hverjum degi lærir maður og kynn-
ist einhverju nýju en það getur líka
verið þreytandi að búa í þessari
stóru og mannmörgu borg. Sumir
segja að hér búi 15 milljónir en
aðrir skjóta á tölur nærri 20 millj-
ónum. Samgöngur eru skrautleg-
ar og það getur tekið langan tíma
að komast á milli staða. Það segir
sig því eiginlega sjálft að stundum
getur maður orðið þreyttur. Ég hef
búið hér síðan í september og mér
finnst enn þá svolítið skrítið að búa
í þessari mögnuðu borg þar sem
austrið mætir vestrinu.“
Eru Tyrkir almennilegir í dag-
legum samskiptum?
„Ég hef mjög góða reynslu af dag-
legum samskiptum mínum við
heimafólk. Fæstir tala ensku og
þar sem tyrkneskukunnátta mín
er enn mjög takmörkuð þá þarf ég
oft að nota einhvers konar táknmál
og stök orð í stað setninga.“
Hvaða staðir eru mest spennandi
í þínum huga?
„Istanbúl tilheyrir bæði Evrópu
og Asíu en borgin er byggð beggja
vegna við Bospórussund. Ég bý As-
íumegin í borginni og þar líður mér
best. Stemningin í hverfinu mínu,
Kadiköy, er frekar eins og í smá-
borg en stórborg. Evrópumegin eru
helstu ferðamannastaðirnir, versl-
unargötur og hverfi með veitinga-
stöðum og kaffihúsum og skemmti-
leg hverfi þar eru t.d. Beyoglu og
Galata Saray, Ortaköy og Nisan-
tasi.“
Skemmtilegar gönguleiðir?
Ég bý í þriggja mínútna fjarlægð
frá sjónum og það er yndislegt að
ganga meðfram honum á fallegum
dögum. Evrópumegin í borginni er
auðvitað mikið um fallegar bygg-
ingar í spennandi hverfum og því
best að leyfa sér að týnast smá til að
kynnast borginni sem best.
Hefur þú prófað góða veitinga-
staði?
Tyrknesk matarmenning er ótrú-
lega mögnuð og fjöldi rétta virðist
vera óendanlegur. Kjötréttir eins og
kebab og köfte (hakkaðar lamba-
kjöts-„bollur“ með kryddi eldaðar á
ýmsa vegu), alls konar eldað græn-
meti (eggaldin er mjög vinsælt) og
fyllt vínviðarlauf með hrísgrjóna-
og kjötblöndu eru dæmi um nokkra
algenga rétti en með þessu er borð-
að jógúrt og brauð. Fyrir matgæð-
inga er því af nógu að taka. Hins
vegar er erfitt að finna góða veit-
ingastaði með mat frá öðrum þjóð-
um. Hér eru alþjóðlegir skyndibita-
staðir eins og McDonalds og Ken-
tucky Fried Chicken en þá daga
sem mig langar í sushi, taílenskan
mat eða góðan ítalskan pastarétt
neyðist ég til að láta mig dreyma.
Mjög vinsæll og góður tyrk-
neskur staður hérna Asíumegin er
Ciya (www.ciya.com.tr). Þetta eru
reyndar þrír veitingastaðir sama
eiganda sem allir heita sama nafn-
inu og eru nánast hlið við hlið! Þeir
bjóða þó upp á mismunandi matar-
gerð. Einn þeirra býður upp á fjöl-
breytta rétti alls staðar að frá Tyrk-
landi á meðan hinir tveir einbeita
sér að kebabréttum.
Er gott að versla?
Matur og drykkur er ekki dýr nema
ef talað er um innfluttar vörur.
Þegar kemur að fatnaði og slíku er
hægt að gera góð kaup til dæmis
á skóm. Nánast önnur hver versl-
un selur skó og ég uppgötvaði ný-
lega að skóárstíðirnar hér eru ansi
margar, alltaf nýjar og nýjar send-
ingar eftir veðri! Það er mikið um
markaði hér. Þeir sem heimsótt hafa
borgina kannast eflaust við Grand
Bazaar en þar er selt allt milli him-
ins og jarðar. Líkt og nafnið gefur til
kynna er hann ansi stór. Þegar ég fæ
gesti fer ég gjarnan á minni mark-
að í Eminönuhverfinu sem heitir
Misir Carsisi (e. Spice or Egyptian
Bazaar). Þar er hægt að kaupa
krydd, þurrkaða ávexti og hnetur
ásamt alls konar smávöru.
Hefur þú ferðast út fyrir borgina?
Á dagskrá er að fara til Suður-Tyrk-
lands á næstu vikum til Antalya,
Kas og jafnvel Bodrum en Íslend-
ingar ættu að kannast við þá staði.
Hvernig eyðir þú frítíma þínum í
borginni?
Á næstunni mun ég hefja tyrknesku-
nám fyrir alvöru og þá fer eflaust
mikið af frítímanum í lærdóm.
Þar sem austrið mætir vestrinu
Vala Ósk Bergsveinsdóttir kennir ensku í Özyegin Universitesi í Istanbúl. Hún hóf störf í september og ætlar að starfa þar áfram næsta vetur.
„Dæmigerð búð á markaðsgötunni minni,
ólífur, ostar, þurrkaðir ávextir, hnetur og
margs konar gúmmelaði.”
Vala Ósk fyrir framan hina þekktu Bláu mosku.
6
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
52
10
8
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
13.900 kr.flug frá
á lægsta verðinu árið 2012!
Billund
Heimsferðir bjóða þér beint flug til Billund í
sumar. Flogið verður alla mánudaga frá 21. maí til
10. september frá Billlund til Keflavíkur. Flug frá
Keflavík til Billund verður alla miðvikudaga frá 23.
maí til 12. september.
Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við og
næla sér í flug til Billund á lægsta verðinu.
Skráðu þ
ig í
netklúb
b
Heimsfe
rða og
fáðu sen
d öll
tilboð.