Fréttablaðið - 04.05.2012, Síða 32

Fréttablaðið - 04.05.2012, Síða 32
10 • LÍFIÐ 4. MAÍ 2012 RÆKTAR ANDANN ÞÓRA KARÍTAS ÁRNADÓTTIR 32 ÁRA LEIKARI OG SJÓNVARPSKONA 1. Aldrei betri. Þá er lífsorkan í fullu fjöri, góður fókus í gangi og enginn tími til að velta sér upp úr neinu eða hafa áhyggjur af einhverju sem skiptir ekki máli. Ef álagið keyrir fram úr hófi þá fer ég að hlakka til þess að hafa meiri tíma fyrir sjálfa mig og reyni að næla mér í kyrrðarstundir yfir daginn. 2. Ég er að byggja mig upp í augnablikinu eftir samfellda tíu mánaða vinnutörn og nýt þess fram í fingurgóma að vera í rólegheitum, borða hollan og góðan mat, rækta andann og slappa af með dásamlegum vinum og fjölskyldu. 3. Oft er gott að gera eitthvað ævintýralegt og í tengslum við náttúruna – ég fékk tækifæri til að dýfa mér ofan í heita vatnið í Grjótagjá í vor þegar ég var í sýningartörn fyrir norðan og það var algjör endurfæðing og vel hressandi fyrir ónæmiskerfið. En annars finnst mér mikilvægt að fá góðan nætursvefn, hlæja í góðra vina hópi og ætli ég verði ekki líka að mæla með hreyfingu og skipulagðri slökun. 4. Eyði tíma með vinum – horfi á góða bíómynd eða les bók, fer í göngutúr, sólbað þegar það er hægt. SPÝTIR Í LÓFANA NADÍA KATRÍN BANINE FLUGFREYJA, TAMNINGAKONA OG HÖNNUÐUR 1. Þá bretti ég upp ermarnar og spýti í lófana. 2. Þá skiptir miklu máli að að skipu- leggja sig vel, nálgast verkefnin með yfirvegun og vera sáttur með það sem maður kemst yfir. 3. Setja sér markmið sem eru framkvæman leg og skipuleggja tímann og leiðina vel að settu mark miði. Það sem ég hef helst lært er að ætla sér ekki um of, reyna ekki að vera alltaf með of mörg járn í eldinum og það er enginn heimsendir þótt að það sé ekki allt fullkomið. Læra að segja nei við sjálfan sig og aðra. 4. Ég slaka helst á með því að horfa út um gluggann minn á fegurðina allt í kring. Sófinn og góð bók, eða einn Friends-þáttur til að létta lundina gera líka kraftaverk. HE IL SU HE IM UR HVERNIG ERTU UNDIR MIKLU ÁLAGI? Við höfum öll áhyggjur á einhverjum tímapunkti lífsins, erum kvíðin, leið eða finnum til streitu. Lífið ræddi við flottar konur sem takast á við álag á mismunandi máta. Þær leggja áherslu á góðan svefn, hreyfingu og skipulag. SPILAR GOLF SIRRÝ HALLGRÍMSDÓTTIR 41 ÁRS VIÐSKIPTA- STJÓRI 1. Ég held ég sé bara svona frekar afslöppuð undir miklu álagi. Ég á auðvelt með að vinna undir miklu álagi. Ég er vön því. Í flestum störfum sem ég hef unnið hef ég verið undir miklu álagi. Það hentar mér eiginlega betur en hitt. 2. Ég passa upp á svefninn númer eitt, tvö og þrjú og hreyfa mig reglulega. Vera líkamlega fit. Ég er í golfi en það er mjög afslappandi og ég syndi og hleyp. Ég spila líka einstaka sinnum badminton. 3. Fara snemma að sofa. Vakna snemma. Mæta áður en aðrir mæta í vinnuna og undirbúa daginn. Það er það besta sem þú getur gert. 4. Ég slaka á í góðum félagsskap og spila golf eða fara í göngutúra. 1. Hvernig ertu undir miklu álagi? 2. Hvað gerir þú til að standast álag og ná jafnvægi í leik og starfi? 3. Áttu gott ráð til að takast á við álag en ná árangri á sama tíma? 4. Hvernig slakar þú á? SPURNINGARNAR MATARDAGBÓKIN Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka Ég reyni eftir fremsta megni að borða hollan og góðan mat. Nammi- græðgi samstarfsfélaga minna spillir reyndar stundum því góða plani sem ég legg upp með á morgnana. Ég kenni þeim að sjálfsögðu um allt sem miður fer í hollustunni. Mér finnst rosalega gott að fá mér sjeik á morgnana þar sem ég er yfirleitt frekar lystarlítil í upphafi dags. Grænbrúnt jukk Í uppáhaldssjeiknum mínum er spínat, engifer, banani, brómber, mango, lucuma, haframjöl og smá skvetta af appelsínusafa. Úr þessu verður til grænbrúnt jukk sem er þó alveg himneskt á bragðið. Yfir- leitt borða ég mikið af grænmeti, kjúklingi og fiski. Mér finnst gaman að elda og prófa nýjar upp skriftir en nýjasta æðið mitt er að hægelda mat. Með þeim hætti varðveitir maður betur næringuna í matnum fyrir utan að allt sem kemur upp úr þessum potti er sjúklega gott. Hollt nesti í golfið Ég er svo búin að lofa mér því að vera dugleg að grípa með mér hollt nesti á golfvöllinn en ég á það til að grípa næstum það sem hendi er næst þegar ég er orðin svöng úti á velli. Hrósið að þessu sinni fær Krist- ín Einars dóttir, verslunareigandi sem rekur Sigurbogann á Laugavegi og hefur gert það síðastliðin tuttugu ár. Tíma- mótunum fagnar hún að sjálfsögðu með afmælis hátíð um næstkomandi helgi með til heyrandi gleði og glamúr. Lífið óskar Kristínu til hamingju með áfangann. Iso la B io r ísm jólk in f æs t í ö llum he lstu m atv öru ver slu nu m um lan d a llt Rísmjólk úr hágæða ítölskum lífrænum hýðishrísgrjónum Isola Bio rísmjólkin er einstaklega bragðgóð og hentar vel í þeytinginn, út á grautinn, í baksturinn og að sjálfsögðu ein og sér, ísköld! hrein með kalki með vanillu með kókos með möndlu rísrjómi fernur - góðar í nestisboxið! Án sykurs Allar án sykurs/sýróps/sætuefna nema möndlu- og súkkulaði sem eru sættar með lífrænu agave. 41 ÁRA 45 ÁRA 32 ÁRA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.