Fréttablaðið - 04.05.2012, Qupperneq 35
Markmið Ísfugls er að framleiða góða og ódýra hversdagsvöru en alifuglaafurðir hafa verið
framleiddar undir merki Ísfugls síðan
árið 1979.
Undanfarin ár hefur sala á alifugla-
kjöti aukist, bæði á fersku kjöti og
úrbeinuðu. Þessi aukning skýrist meðal
annars af vitundarvakningu í þjóð-
félaginu, því að margir vilja í dag fitu-
minni mat. Alifuglakjöt er góður kostur
fyrir þá sem vilja borða heilsusamlega
því kjötið er næringarríkt og fitulítið.
Nokkuð er mismunandi hvernig vörur
fyrirtækisins eru merktar. Frosið kjúk-
lingakjöt er eingöngu merkt Ísfugli en
aðrar vörur hafa sérstök vörumerki.
Ferskir kjúklingar eru til dæmis
framleiddir undir vörumerkinu Kjúlli –
langflottastur, steiktir kjúklingar undir
merkinu Kjúlli Steikti og kalkúnakjöt
undir merkjunum Hvíti kalkúninn eða
Kalkúnakrásir. „Við reynum að vera dug-
leg að koma með nýjungar. Í fyrra settum
við á markaðinn grillútgáfu af kalkúna-
sneiðum og tóku neytendur vel á móti
þeirri nýjung og fyrir skömmu hófum við
að selja fitulitlar kalkúnapylsur sem hafa
farið mjög vel af stað,” segir Helga Lára
Hólm framkvæmdastjóri Ísfugls.
Kalkúnapylsurnar frá Ísfugli eru
kjötmeiri en margar aðrar pylsur og
með kryddaðra bragði. Pylsurnar eru
til valdar sem uppistaða í ýmsum réttum
því hægt er að matreiða þær með marg-
víslegum hætti. Kalkúnapylsurnar
bragðast vel grillaðar og því látum við
hér fljóta með uppskrift að skemmti-
legum grillteinum sem gaman væri að
prófa með hækkandi sól.
HOLLUR OG ÓDÝR
HVERSDAGSMATUR
GÓÐUR KOSTUR Fitulitlar kalkúnapylsur eru nýjasta viðbótin hjá Ísfugli, en
þær eru bæði kjötmeiri og kryddaðri en margar aðrar pylsur á markaðnum.
Uppskriftin er fyrir fjóra
8 kalkúnapylsur
Paprikur, laukur og sveppir eftir smekk
4 þykkar sneiðar af grófu brauði
3-4 msk. af olíu
1 hvítlauksgeiri
Salt, svartur pipar, paprikuduft
Pylsurnar og grænmetið er skorið í bita
og brauðsneiðarnar eru skornar í teninga.
Þessu er raðað til skiptis á grillteina.
Blandið muldum hvítlauk, 1/2 tsk. af salti, 1/4 tsk. af svörtum pipar og
1/2 tsk. af paprikudufti út í olíuna. Penslið kalkúnapylsurnar og brauðið
með olíunni og leggið teinana á grillið u.þ.b. 10 cm frá glóðinni.
Snúið teinunum oft og penslið pylsurnar og brauðið nokkrum
sinnum.
Rétturinn bragðast vel með fersku grænmetissalati, sterku sinnepi
eða öðru meðlæti eftir smekk.
KALKÚNAPYLSUR, BRAUÐ OG
GRÆNMETI Á GRILLTEINI
UM ÍSFUGL
Ísfugl ehf. rekur
slátur hús, kjötvinnslu
og dreifingarstöð fyrir
afurðir úr alifuglum.
Í sláturhúsinu er
slátrun á kjúklingum
og kalkúnum allan
ársins hring.
Helstu vörumerkin
eru: Ísfugl, Kjúlli
og Hvíti kalkúninn.
Vörumerkið Ísfugl
hefur verið í notkun
frá árinu 1979.
Framkvæmdastjóri
Ísfugls er Helga Lára
Hólm.
Ísfugl er skráð einka-
hlutafélag hjá hluta-
félagaskrá og starfar
undir eftirliti Emb-
ættis yfirdýralæknis
og Heilbrigðiseftirlits
Kjósarsvæðis.
Aðsetur: Reykjavegi
36, Mosfellsbæ
Sími: 566 6103 • Fax:
566 6762 • Netfang:
isfugl@isfugl.is www.
isfugl.is
Tengiliður verk-
efnis : Guðrún Anna
Magnúsdóttir hjá
Grafika sími 896-1896
|FÓLKMATUR