Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.05.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 10.05.2012, Qupperneq 4
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR4 MUNDU AÐ EFNI SEM ÞÚ SETUR Á NETIÐ ER ÖLLUM OPIÐ, ALLTAF! www.saft.is GENGIÐ 09.05.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 223,4809 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,87 125,47 201,17 202,15 161,90 162,80 21,772 21,900 21,386 21,512 18,180 18,286 1,5677 1,5769 192,13 193,27 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is STJÓRNSÝSLA Til stendur að kalla ráðherra á fund fjárlaganefndar Alþingis vegna skuldahala ríkis- stofnana. Í ábendingu Ríkis endur- skoðunar í gær var kallað eftir slíkum fundi. Í henni áréttar Ríkisendurskoðun að taka verði á vanda stofnana sem sitji uppi með verulegan uppsafn- aðan rekstrarhalla frá fyrri árum. „Að mati stofnunarinnar þjónar engum tilgangi að láta slíkan halla hvíla á stofnun- um ef ekki er talið raunhæft að ætla að þær muni geta greitt hann upp,“ segir þar. Ríkisendur- skoðun telur upp 19 stofnanir sem stóðu með hlut- fallslega mestan uppsafnaðan halla í árslok 2011. Þar af eru þrjár sem ekki voru með neinn halla árið á undan. Þá kemur einnig fram að sumar þessara stofnana hafi verið reknar innan fjárlaga hvers árs undanfarin ár, en ekki getað unnið á uppsafnaða hallanum. Þar á meðal eru Landspítalinn og lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Landspítalinn er með langmestan uppsafnaðan halla, eða tæpa þrjá milljarða króna. Þar á eftir kemur Heilsugæslan á höfuðborgar- svæðinu með 449 milljóna króna halla og svo Landbúnaðarhá skólinn með 317 milljóna króna halla. „Samkvæmt gildandi reglum skulu rekstraráætlanir stofnana rúmast innan fjárheimilda þeirra. Þetta þýðir að ráðuneyti mega ekki samþykkja rekstraráætlanir nema að þar sé gert ráð fyrir að halli frá fyrri árum, sé um hann að ræða, verði að fullu greiddur á viðkom- andi ári. Engu að síður eru dæmi um að ráðuneytin hafi samþykkt áætlanir þar sem ekki var gert ráð fyrir slíkri uppgreiðslu,“ bendir Ríkisendurskoðun á og hvetur fjárlaganefnd til að kalla mennta- málaráðherra, innanríkisráðherra, velferðarráðherra og umhverfis- ráðherra á sinn fund og krefja þá svara um hvernig tekið verði á rekstrarvanda stofnana með veru- legan uppsafnaðan halla. Sigríður Ingibjörg Inga dóttir, formaður fjárlaganefndar, segir að fyrr á árinu hafi nefndin fundað með ráðuneytisstjórum hluta þessara ráðuneyta, auk þess sem farið hafi verið yfir veikleikamat fjármálaráðuneytisins á fram- kvæmd fjárlaga 2012. Hún kveðst fagna ábendingu Ríkisendurskoðunar, sem sé í takt við þá vinnu sem þegar hafi verið hafin á vettvangi nefndarinnar. Á næstu dögum verði kallaðir fyrir nefndina þeir ráðherrar sem málið varðar. „Enda var það niðurstaða okkar í nefndinni, eftir að hafa fundað með ráðuneytisstjórunum, að eðlileg næstu skref væru að fá til fundar ráðherra sem bera á mál- inu pólitíska ábyrgð.“ Í framhald- inu segir hún standa til að fjárlaga- nefnd skili, í fyrsta sinn, skýrslu til Alþingis um framkvæmd fjárlaga 2012, en nefndin hafi, af því til- efni, fundað um uppfært veikleika- mat með Ríkisendurskoðun og fjár- málaráðuneyti í gær. - óká SIGRÍÐUR INGI- BJÖRG INGADÓTTIR FYLGJAST MEÐ Á ALÞINGI Starfsfólk Landspítalans fjölmennti á þingpalla í nóvember síðastliðnum þegar rædd voru fjárlög þessa árs. Landpítalinn hefur mátt þola mikinn niðurskurð síðustu ár og er með langmestan skuldahala frá fyrri árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vilja láta taka á uppsöfn- uðum halla ríkisstofnana Ráðherrar þurfa að svara fyrir uppsafnaðan halla stofnana á fundi með fjárlaganefnd. Ríkisendurskoðun gagnrýnir skort á viðbrögðum vegna vandans og bendir á 19 stofnanir með mestan uppsafnaðan halla. Stofnanir með verulegan uppsafnaðan vanda Stofnun Halli í árslok 2011 (m.kr.) Staða m.v. áætlun 2012 Landspítali 2.967 Óleystur Heilsugæsla á höfuðb.svæðinu 449 Óleystur Landbúnaðarháskóli Íslands 317 Óleystur Lyfjastofnun 184 Óleystur Vatnajökulsþjóðgarður 169 Engin svör Lögreglustjórinn á Suðurnesjum 141 Óleystur Heilbrigðisst. Suðurlands 137 Óleystur Hólaskóli - Háskólinn á Hólum 134 Óleystur Sólvangur, Hafnarfirði 127 Engin svör Heilbrigðisst. Austurlands 114 Óleystur Lögreglustj. á höfuðb.svæðinu 73 Óleystur Ríkislögreglustjóri 59 Óleystur Veðurstofa Íslands 56 Óleystur Útlendingastofnun 29 Óleystur Tilr.st. Háskólans að Keldum 25 Óleystur Sýslumaðurinn í Borgarnesi 25 Óleystur Fjölbrautaskólinn við Ármúla 18 Gæti leyst Rannsóknanefnd umferðarslysa 8 Óleystur Rannsóknanefnd flugslysa 5 Óleystur HEIMILD: RÍKISENDURSKOÐUN Í leiðara blaðsins á þriðjudag var sagt að aukinn kostnaður atvinnulífs og heimila vegna fjölgunar skipulags- daga væri fjórar milljónir króna sam- kvæmt útreikningum SA. Þar átti að standa fjórir milljarðar. LEIÐRÉTT TÆKNI Tæknirisinn Google hefur fengið leyfi til að nota bíl án ökumanns í Nevada-ríki í Banda ríkjunum. Bíllinn notar mynda vélar, GPS-tæki og fjar- lægðarmæla til að komast leiðar sinnar, samkvæmt fréttavef BBC. Áður höfðu fengist leyfi til að aka bílnum í tilraunaskyni, en þá með því skilyrði að ökumaður væri um borð til að taka við stjórninni ef tölvukerfið klikkaði. Bíllinn, sem er af gerðinni Toyota Prius, hefur nú ekið um 225 þúsund kílómetra. Hann hefur einu sinni lent í óhappi, þegar ökumaður annars bíls ók aftan á mannlausa bílinn. - bj Google þróar mannlausan bíl: Fá leyfi fyrir bíl án ökumanns BRETLAND Rúmlega fertug bresk kona, sem til þessa hefur gengið undir nafninu Dawn McManus, hefur skipt um nöfn. Í staðinn fyrir eitt eiginnafn og eitt ættar- nafn eru nú komin 160 eiginnöfn og svo kenninafnið Dreams. Nafnaromsan byrjar svona: „Red Wacky League Antlez Broke the Stereo Neon Tide Bring Back Honesty Coalition Feedback,“ svo blábyrjunin sé tilgreind, og svo kemur í lokin þessi runa: „Dani- el Mayes Matthew Kitching Josh Bennett Evolution Dreams.“ Þetta er nú löglega skráð nafn hennar hjá breskum stjórnvöldum. - gb Bresk kona skiptir um nöfn: Ber nú hundrað og sextíu nöfn DÓMSMÁL Kaupsýslumaðurinn Aron Pétur Karlsson neitaði alfarið sök þegar fjársvikamál á hendur honum var þingfest í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Aron er sakaður um að hafa svikið 114 milljónir króna af Arion banka, Glitni og Íslandsbanka vegna viðskiptafléttu með stórhýsi sem hann seldi kínverska alþýðulýð- veldinu undir sendiráðsbústað. „Ég lýsi mig saklausan af öllum sakargiftum,“ sagði Aron þegar Ragnheiður Harðardóttir héraðs- dómari innti hann eftir afstöðu hans til ákærunnar. Þá mótmælti hann jafnframt kröfu um upptöku milljónanna 114, sem beint er gegn eignar haldsfélagi hans, AK fasteignum. Í málinu er Aron sakaður um að hafa blekkt bankana til að létta veðum af fasteigninni með því að kynna þeim marklaust til- boð í hana frá indversku fyrir- tæki, þegar fyrir hafi legið að Kínverjar væru reiðubúnir að kaupa það á mun hærri fjárhæð. Saksóknarinn Finnur Vil- hjálmsson mótmælti fyrir dómi í gær skipun Jóns Þórs Ólasonar sem verjanda AK fasteigna, þar sem Jón Þór væri á lista ákæru- valdsins yfir vitni í málinu. Mál- flutningur verður um þetta atriði í næstu viku. - sh Tekist á um hvort vitni ákæruvaldsins má vera verjandi í sakamáli: Aron neitar sök í sendiráðsmáli EKKERT AÐ SEGJA Aron Pétur vildi ekkert tjá sig um málið við fjölmiðla í Héraðs- dómi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM NOREGUR Tveir norskir piltar, 18 og 19 ára gamlir, hafa verið hand- teknir grunaðir um að hafa staðið fyrir umfangsmiklum netárásum undanfarnar vikur. Á fréttavef BBC kemur fram að piltarnir séu meðal annars grunaðir um að hafa gert svo- kallaðar álagsárásir á vef bresks lögregluembættis sem berst gegn skipulegum glæpasamtökum. Þeir eru einnig grunaðir um sams konar álagsárásir á vef- svæði norska lottósins og þýska dagblaðsins Bild. - bj Tveir norskir piltar handteknir: Grunaðir um árásir á netinu VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 25° 26° 25° 15° 26° 27° 16° 16° 24° 17° 26° 21° 30° 10° 26° 21° 15° Á MORGUN 5-10 m/s. MÁNUDAGUR Vaxandi S-átt. 3 4 4 4 7 7 1 5 5 6 6 5 5 6 5 4 3 3 5 4 2 2 10 9 9 8 8 10 12 9 9 8 BREYTINGAR Á NÆSTUNNI Rólegt og gott veður víð- ast hvar á landinu í dag en seint á morgun nálgast landið lægð með vaxandi sunnanátt og rigninu á laugar- dag. Á sunnudag snýst hvassa norð- austanátt með kólnandi veðri. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.