Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 10.05.2012, Blaðsíða 50
10. maí 2012 FIMMTUDAGUR38 ÁLFASALAN 2012 Gestir og gangandi í Öskjuhlíð geta um þessar mundir skoðað verk nemenda á fyrsta ári í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Þeir fengu það verkefni að skoða og greina mismunandi not borgarbúa á Öskjuhlíðinni. Afrakstur þeirrar vinnu birtist nú í innsetningum sem nemendur hafa sjálfir smíðað og nota til að magna upp stemn- ingu eða getu á þeim stöðum sem þau eru að vinna með. Hóparnir unnu með upplifunarferli barna, samskipti kanína og manna, strekkiþörf hlaupara, leyndar lausagöng- ur hundaeigenda og trjáhús klifrarans. Verkin standa einungis í Öskjuhlíðinni í örfáa daga. Innsetningar í Öskjuhlíð NEMAR GREINDU NOT BORGARBÚA Á ÖSKJUHLÍÐ Þessi smíð er á meðal verka sem sjá má í Öskjuhlíðinni um þessar mundir. Í landi óskasteinsins nefnist mynd- listarsýning Aðalheiðar Valgeirsdótt- ur sem opnuð verður í sal íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu á laugardag. Verkin á sýningunni vann Aðal- heiður á vinnustofu sinni í Biskups- tungum. Málverkin segir hún verða til vegna beinna hughrifa frá umhverfinu í sveitinni svo úr verði birtingarmyndir samtals manns og náttúru. Aðalheiður lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1978 og BA prófi í listfræði frá Háskóla Íslands 2011. Hún hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Sýningin verður opnuð klukkan 16 og stendur til 27. maí. Í landi óskasteinsins Chrissie Telma Guðmundsdóttir heldur útskriftartónleika sína í Þjóðmenningarhúsinu á laugar- dag en hún lýkur diplómanámi á fiðlu frá Listaháskóla Íslands í vor. Á efnisskrá eru Adagio í E-dúr, KV 261 eftir W.A. Mozart, partíta nr. 2 í d-moll, BWV 1004 eftir J.S. Bach, Intermezzo úr ballettinum Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson, Jealousy eftir Jacob Gade og Fiðlusónata í A-dúr eftir C. Franck. Píanóleikari er Richard Simm en tónleikarnir hefjast klukkan 18. Leikur Bach og Mozart ÞRIÐJA BÓKIN Sögurnar um Maxímús Músíkús hafa verið þýddar á fjölda tungumála. Maxímús Músíkús bjargar ball- ettinum er heiti þriðju bókarinnar um músina tónelsku sem nýverið var gefin út. Í henni segir frá því þegar Maxímús Músíkús kemur heim eftir hressandi morgun- göngu og hittir fyrir hópa af börnum sem dansa svo vel að Maxi verður forvitinn og fer að velta fyrir sér hvar þau hafi lært svo vel að dansa. Áður eru komnar út bækurnar Maxímús heimsækir hljómsveit- ina og Maxímús trítlar í tónlistar- skólann. Höfundarnir, Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Bald- ursson, eru tónlistarmenn og leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sögurnar um Maxa hafa verið fluttar á fjölmörgum tón leikum og bækurnar um hann hafa komið út á ensku, þýsku, kóresku og færeysku. Geisladiskur fylgir bókinni. Maxímús og ballettinn AÐALHEIÐUR VALGEIRSDÓTTIR Sýnir verk sem unnin voru í Biskupstungum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.