Fréttablaðið - 10.05.2012, Side 60

Fréttablaðið - 10.05.2012, Side 60
48 10. maí 2012 FIMMTUDAGUR Tónleikar til styrktar Galtarvita verða haldnir í Gamla bíói í kvöld og munu sveitir á borð við Til- bury og Hjaltalín stíga á svið um kvöldið. Allur ágóði tónleikanna rennur í uppbyggingu á lista- smiðju á staðnum. Ólafur Jónasson, eða Óli viti eins og hann er gjarnan nefndur, keypti vitann árið 2000 og hefur rekið listasmiðju á svæðinu síðan 2001. Meðlimir hljómsveitarinnar Múm voru fyrstir til að nýta sér aðstöðuna árið 2001 og hafa verið dyggir stuðningsmenn Galtarvita allar götur síðan. „Ríkið seldi vitann árið 2000 og ég ákvað að bjóða í hann og fékk hann. Ég heimsótti þó ekki svæðið fyrr en ég hafði eignast vitann og kolféll þá fyrir staðnum og út frá því fæddist hugmyndin um að nota staðinn undir hvers kyns listsköp- un,“ útskýrir Ólafur. Vitinn stend- ur í Keflavík á Vestfjörðum og þangað liggja engir bílvegir. Þess í stað kýs fólk annað hvort sjóleið- ina eða að ganga með föggur sínar frá Skálavík. Þar er heldur ekkert símasamband og eina útvarpsstöð- in sem næst er gamla góða Gufan. „Þarna losnar maður algjörlega undan öllu áreiti,“ segir Ólafur og bætir við að hugmyndin sé að reka áfram athvarf fyrir skapandi fólk og ferðamenn á staðnum. „Hér verður hægt að fara í gönguferðir, njóta lista og hugleiða, það er allt inni í þessu,“ segir hann og hlær. Hljómsveitirnar Hjaltalín, Til- bury, Mr. Silla, Borko og Snorri Helgason koma fram á tón- leikunum í kvöld og mun ágóði þeirra renna til áframhaldandi uppbyggingu og viðhalds á húsa- kosti Galtarvita. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og kostar 1.500 krónur inn. - sm Keypti Galtarvita TÓNLEIKAR FYRIR GALTARVITA Ólafur Jónasson stendur fyrir tónleikum til styrktar Galtarvita. Hljómsveitirnar Tilbury og Hjaltalín eru á meðal þeirra sem munu koma fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Leikarinn Johnny Depp sagðist í viðtali við The Sun vera ánægður í dag og mundi ómögulega vilja endurlifa æskuár sín. Foreldrar Depp skildu þegar leikarinn var fimmtán ára gamall og upplifði hann mikla sorg í kjölfarið. „Maður verður svo- lítið brotinn eftir slíkt og svo þegar manni vegnar loks vel kann maður ekki að gleðjast yfir því. Maður finnur fyrir tómleika og ég var reiður allt þar til ég stofnaði mína eigin fjölskyldu. Fram að því kunni ég ekki að meta lífið en sem betur fer rankaði ég við mér,“ sagði Depp og þakkar börnum sínum tveimur þennan aukna lífskraft. Glaður í föð- urhlutverki ÁNÆGÐUR Í DAG Johnny Depp segist ekki hafa kunnað að meta lífið þar til hann varð pabbi. NORDIPHOTOS/GETTY Blunderbuss er fyrsta sólóplata Jacks White. Fram að þessu hefur hann gefið út efni með hljóm- sveitunum sínum White Stripes, The Raconteurs og Dead Weather ásamt því að stjórna upptökum og gefa út aðra listamenn hjá plötu- fyrirtækinu Third Man Records sem hann starfrækir í Nashville. White hefur allan ferilinn byggt sína tónlist á gömlum grunni. Tón- list White Stripes var til dæmis gamall blús, uppfærður og að- lagaður að nýjum tíma og nýjum hlustendahópi. Tón listin á Blunder- buss er líka endurvinnsla, aðal- lega á tónlist áttunda áratugar- ins. Platan byrjar á stefi spiluðu á Fender Rhodes píanó og rafmagns- gítar, gæti verið tekið frá einhverri 70´s proggsveitinni. Næsta lag byrjar svo á gítarriffi í anda AC/DC og svo blandast inn í gítarrokkið þessi fíni Hammond-orgelhljómur. Og á sama hátt er hægt að finna skírskotun í tónlistar söguna í flestum lögunum á plötunni. Níunda lagið, Trash Tongue Talker, er til dæmis eins og rokkuð útgáfa af Elton John… Þó að White sæki mikið í söguna, þá er þetta engin hermi plata; við erum langt frá sveitum eins og The Darkness svo dæmi sé nefnt. Jack White býr til nýtt úr gömlu og útkoman er fyrst og fremst hans. Blunderbuss hefur sterkan heildar- svip sem næst með söngnum, gítar- leiknum og hljómnum á plötunni sem er mjög flottur. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hvert öðru betra. Ein af bestu plötum ársins hingað til. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Jack White með eina af plötum ársins. Endurvinnslukóngurinn NÚMER EITT Blunderbuss er fyrsta sólóplata Jacks White og sú fyrsta eftir hann sem fer á topp bandaríska Billboard-listans. Tónlist ★★★★★ Blunderbluss Jack White MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Miðasala: 412 7711 www.bioparadis.is / midi.is Hluti af Europa Cinemas ÍSLENSKUR TEXTI / ENGLISH SUBTITLES FIMMTUDAGUR: CORIOLANUS 17:30, 20:00, 22:30 JANE EYRE 17:30, 20:00, 22:30 IRON SKY 18:00, 20:00, 22:30 LÓNBÚINN 18:00, 19:00 SVARTUR Á LEIK (ÍSL. TEXTI) 20:00, (ENG. SUBS) 22:00 SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! SAMI AFSLÁTTUR FYRIR ÖRYRKJA OG ELDRI BORGARA. 6.-9. MAÍ NÁTTÚRAN KENNIR SKEPNUM AÐ ÞEKKJA VINI SÍNA CORIOLANUS RALPH FIENNES / GERARD BUTLER SJÁÐU DAGSKRÁNA Á WWW.SHORTSDOCSFEST.IS FRÁ FRAMLEIÐENDUM BRAVEHEART KEMUR FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ MEL GIBSON Í FANTAFORMI! - T.V., KVIKMYNDIR.IS - T.V., KVIKMYNDIR.IS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 5.50 - 10.10 16 GRIMMD (BULLY) KL 5 45 8. . - 10 21 JUMP STREET KL. 10.15 14 MIRROR MIRROR KL. 5.40 L HUNGER GAMES KL. 9 12 SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 - V.G. - MBL. FASTEST ÓTEXTUÐ KL. 8 16 HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 5.50 - 8 - 10.10 16 THE AVENGERS 3D KL. 5 - 8 - 10.30 10 THE AVENGERS 3D LÚXUS KL. 5 - 8 10 21 JUMP STREET KL. 8 - 10.30 14 MIRROR MIRROR KL. 3.30 L L ÍORAX - SLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L HUNGER GAMES KL. 5 12 S ÁVARTUR LEIK KL. 5.30 16 HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 8 - 10 16 THE RAID KL. 10 16 (GRIMMD B )ULLY KL. 8 10 21 JUMP STREET KL. 6 14 MIRROR MIRROR KL. 6 L - T.V., KVIKMYNDIR.IS -Þ.Þ., FT/SVARTHÖF IÐI. S THE RAID 8 og 10.10 THE AVENGERS 3D 7 og 10 21 JUMP STREET 8 AMERICAN PIE: REUNION 5.30 HUNGER GAMES 10.20 LORAX 3D 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar STÆRSTA OFURHETJUMYND ALLRA TÍMA T.V. -SÉÐ OG HEYRT HÖRKU HASAR www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar 5% Empire Total film Variety Tommi, Kvikmyndir.is Stærsta ofurhetjumynd allra tíma! EGILSHÖLL 16 16 14 KRINGLUNNI ÁLFABAKKA V I P 12 12 12 12 12 L L 10 10 10 10 10 10 STÆRSTA FRUMSÝNINGARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI ! KEFLAVÍK 16 12 10 12 12 10 AKUREYRI UNDRALAND IBBA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI STÓRSKEMMTILEG TEIKNIMYND TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á YFIR 37 ÞÚS. BÍÓGESTIR !

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.