Fréttablaðið - 15.05.2012, Síða 2
15. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
TAKTU DAGINN FRÁ
KVENNAHLAUPIÐ
16. JÚNÍ
Hreyfing til fyrirmyndar - www.sjova.is/kvennahlaup
Vignir, er framtíðin að teikna
sig upp hjá þér?
„Maður á ekki að vera hræddur
við að prófa eitthvað nýtt. Þetta er
hæfileiki sem kom mér sjálfum á
óvart.“
Vignir Þór Þórhallsson er tvítugur teiknari
sem smám saman hefur slegið í gegn
með myndasögum á Facebook. Vignir
byrjaði að teikna þegar honum leiddist í
grunnskóla.
REYKJAVÍKURBORG Arkitekt
Ráðhúss Reykjavíkur hefur
spurst fyrir um það hjá bygg-
ingarfulltrúa borgarinnar
hvort koma megi fyrir flot-
bryggju í Tjörninni framan
við Ráðhússkaffi.
Bjarni Brynjólfsson, upplýs-
ingafulltrúi Reykjavíkurborg-
ar, segir málið enn á algjöru
frumstigi. „Hugmyndin teng-
ist hins vegar veitingarekstr-
inum í Ráðhúsinu og því að
hægt verði að sitja úti á góð-
viðrisdögum,“ segir Bjarni.
Í fyrirspurn Steve Christers
arkitekts til byggingafulltrúa
kemur fram að hugmyndin sé
að flotbryggjan verði þrjá-
tíu fermetrar. Bryggjan verði
með handrið og súlur hvíli á
tjarnarbotninum til að tryggja
stöðugleika. - gar
Reykjavíkurborg veltir fyrir sér að útvíkka starfsemi veitingastaðar í Ráðhúsinu:
Útiveitingastaður á flotbryggju
GÓÐVIÐRISPALLUR VIÐ RÁÐHÚSIÐ Hér sést hvar flotbryggjan á að vera við suðausturhorn
Ráðhússins. SAMSETT MYND/FRÉTTABLAÐIÐ
SKIPULAGSMÁL Stjórn Faxaflóa-
hafna hefur samþykkt tillögu for-
mannsins Hjálmars Sveinssonar
um að láta kanna mögu leika þess
að koma fyrir dorgaðstöðu fyrir
almenning í tengslum við uppsát-
ur fyrir smábáta við Eyjarslóð.
„Aðstaða sem þessi er í senn
tækifæri til þess að veita almenn-
ingi bætt aðgengi að sjó við
gömlu höfnina og endurvekja
með bættri aðstöðu þá gömlu iðju
barna og fullorðinna að renna
fyrir fisk. Mikilvægt er að örygg-
is við aðstöðu sem þessa sé gætt
eins og kostur er,“ segir í grein-
argerð með tillögunni. - gar
Möguleikar í Reykjavíkurhöfn:
Almenningur
fái dorgaðstöðu
DORGVEIÐIMAÐUR Það er víða hægt að
ná sér í soðið.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Hvols-
velli lýsir eftir manni sem hefur
stungið af frá hótelum í umdæm-
inu án þess að borga fyrir gist-
ingu. Reikningarnir nema allt að
40 þúsund krónum.
„Hann er búinn að svíkja
á mörgum stöðum og stund-
um hefur reikningurinn verið
umtalsverður,“ segir varðstjóri
lögreglunnar. „Við vitum hver
þetta er og höfum lýst eftir bíln-
um.“
Maðurinn, sem er af erlendu
bergi brotinn, keyrir um á bíla-
leigubíl, dökkgráum Chevrolet
Alegro. - sv
Lögreglan lýsir eftir manni:
Stingur af án
þess að borga
SVÍÞJÓÐ Réttarhöld hófust í gær
yfir Peter Mangs, manninum
sem er talinn hafa borið ábyrgð
á fjölda skot-
árása í Malmö í
Svíþjóð.
Mangs er
ákærður fyrir
að hafa drepið
tvo karlmenn
af erlendum
uppruna árið
2003 og sænska
konu sem var í
bíl með manni
af erlendum uppruna árið 2009.
Þá hefur hann verið ákærður
fyrir tólf morðtilraunir til við-
bótar.
Mangs viðurkenndi að hafa
framið skemmdarverk með því
að skjóta á tvö götuskilti. Að öðru
leyti neitaði hann sök. Lögfræð-
ingur hans sagði fyrir dómi í
gær að hann væri ekki kynþátta-
hatari, en árásirnar hafa verið
tengdar kynþáttafordómum. - þeb
Fjöldi morða og morðtilrauna:
Morðinginn í
Malmö neitar
PETER MANGS
STJÓRNMÁL Samþykki ríkisstjórnin
að fara í almennar skuldaniðurfell-
ingar og beita sér í öðrum málum
sem þingmenn Hreyfingarinn-
ar vilja að nái fram að ganga mun
þingflokkur Hreyfingarinnar verja
stjórnina vantrausti.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar
funduðu með þingmönnum Hreyf-
ingarinnar á sunnudag. Hugmynd-
ir hafa verið uppi frá því milli jóla
og nýárs að gera samkomulag þessa
efnis, segir Þór Saari, formaður
þinghóps Hreyfingarinnar.
Hann segir að unnið sé að því
að ná samkomulagi, en þingmenn
Hreyfingarinnar vilja að reynt verði
til þrautar fyrir vikulokin.
„Þeir eru með eins manns meiri-
hluta, sem þýðir í raun að allir
stjórnarþingmenn hafa neitunarvald
í öllum málum, og það er greinilegt
að þeir eru að beita því óspart,“ segir
Þór. Hann segir að þó stjórnin sé
ekki minnihlutastjórn geti hún stað-
ist þrýsting einstakra þingmanna
betur sé hún varin vantrausti af
þremur þingmönnum Hreyfingar-
innar.
Hreyfingin hefur sett fram
ákveðnar kröfur til að það verði
að veruleika. Þór segir þær kröfur
snúast annars vegar um víðtækar
lýðræðisumbætur, til dæmis þjóð-
aratkvæðagreiðslu um tillögu stjórn-
lagaráðs að nýrri stjórnarskrá og
persónukjör í kosningum.
Hins vegar segir hann að þing-
menn Hreyfingarinnar vilji að tekið
verði á skuldamálum heimilanna og
verðtryggingunni.
„Ríkisstjórnin hefur verið að
reyna að laga það svöðusár með
smáplástrum,“ segir Þór. Hann segir
ljóst að aðgerðir ríkisstjórnarinnar
séu ekki að virka. Fólk sem tekið
hafi fasteignalán hafi orðið fyrir
forsendubresti vegna brasks banka-
manna.
Þór segir það kröfu þingmanna að
höfuðstóll skulda heimilanna verði
færður niður umtalsvert, og verð-
tryggingin felld niður.
„Okkur finnst ekki góður bragur
á því að ríkisstjórn sem var kosin
í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar
skuli ekki sinna þeim helstu málum
sem hún var kosin út á, og voru
helstu ástæður búsáhaldabyltingar-
innar,“ segir Þór.
„Við teljum að sú ríkisstjórn hafi
kannski ekkert með það að gera að
sitja allt kjörtímabilið ef hún ætlar
ekki að sinna þeim málum, þá á að
gefa almenningi kost á að segja sína
skoðun á því í kosningum.“
Ekki náðist í Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra við vinnslu
fréttarinnar í gær. brjann@frettabladid.is
Almenn niðurfærsla
forsenda stuðnings
Ríkisstjórnin og Hreyfingin reyna nú að ná samkomulagi um að þingmenn
Hreyfingarinnar verji ríkisstjórnina vantrausti. Hreyfingin krefst lýðræðisúr-
bóta og aðgerða í skuldamálum heimilanna. Vilja niðurstöðu fyrir vikulokin.
SAMSTARF Þingmenn Hreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Þór Saari, vilja verja ríkisstjórnina vantrausti
verði gengið að kröfum Hreyfingarinnar í ákveðnum málaflokkum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GRIKKLAND, AP Karolos Papúlias,
forseti Grikklands, lagði til í gær
að skipuð yrði utanþingsstjórn, til
að binda enda á stjórnarkreppu
sem hefur ríkt síðustu tíu daga
eftir þingkosningar.
Forsetinn hitti forsvarsmenn
þriggja stærstu stjórnmálaflokk-
anna í gær og áformar að hitta
fulltrúa frá öllum flokkum, nema
öfgaflokknum Gylltri dögun, til
að finna lausn á málinu og kom-
ast hjá því að boða þurfi nýjar
kosningar í næsta mánuði.
Gyllt dögun fékk um sjö pró-
sent atkvæða í kosningunum, en
samkvæmt skoðanakönnunum
hefur flokkurinn misst helming
fylgis síns síðan. - gb / þj
Grikklandsforseti með tillögu:
Stingur upp á
utanþingsstjórn
MENNTAMÁL Tekið verður upp
samráð við foreldra þegar skóla-
stjórar eru ráðnir, nái tillaga
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
fram að ganga. Hún var lögð
fram á síðasta fundi skóla- og frí-
stundaráðs en afgreiðslu frestað.
Lagt er til að stjórnir foreldra-
félaga fái að kynna sér gögn um
umsækjendur og hitta þá. Verði
því við komið geti stjórnir efnt
til funda fyrir foreldra og í fram-
haldinu skilað til skóla- og frí-
stundaráðs áliti á því hver hæf-
asti umsækjandinn sé. - þeb
Skólastjórar ráðnir í borginni:
Foreldrar komi
að ráðningum
SJÁVARÚTVEGUR Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra gagn-
rýndi harkalega hugmyndir sem
eru til umræðu innan ESB um
refsiaðgerðir gegn Íslandi vegna
makríldeilunnar, á fundi EES-
ráðsins í gær. Þar voru fulltrúar
EFTA-ríkjanna og Danir fyrir
hönd ESB.
„Ég gagnrýndi ályktun sjáv-
arútvegsnefndar Evrópuþings-
ins og þau drög sem af hálfu þess
liggja fyrir um mögulegar aðgerð-
ir sem kann að verða gripið til
gegn Íslandi og Færeyjum,“ sagði
Össur. Hann sagðist þó hafa tekið
skýrt fram að vilji Íslendinga væri
að ná niðurstöðu um málið til að
koma í veg fyrir ofveiði úr stofn-
inum.
Össur segist hafa sagt sumar
þær aðgerðir sem lagðar eru til
ganga gegn reglum Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar, innri mark-
aðarins, sem Íslendingar eru aðil-
ar að, og sérstaklega bókun níu í
EES-samningnum.
„Ég sagði það lítinn álitsauka
fyrir EES á 20 ára afmælisári
samningsins, ef ESB ætlaði að
beita ólögmætum aðgerðum í deil-
unni um makrílveiðar. Ég sagðist
ekki trúa að svo yrði fyrr en hönd-
in væri lögð í sárið.“
Össur sagði að honum hafi skil-
ist af ræðu Jonas Gahr Støre,
utanríkisráðherra Noregs, á fund-
inum að Støre teldi að aðgerðir
yrðu að vera í samræmi við EES
samninginn og það væri ánægju-
efni. - þj
Utanríkisráðherra ræddi makríldeiluna á fundi EES-ráðsins í gær:
Gagnrýndi fyrirhugaðar aðgerðir ESB
Ég sagðist ekki trúa
að svo yrði fyrr en
höndin væri lögð í sárið.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
UTANRÍKISRÁÐHERRA