Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 4

Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 4
15. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR4 Mér urðu á þau leiðu glöp í greininni „Það gefur á bátinn” sem birtist í Fréttablaðinu í gær að tala um þyrlu- kaup og Guðmund útgerðarmann í Brimi í sömu andrá. Þar sló saman í hausnum á mér tveimur útgerðar- mönnum því að nafni minn í Brimi mun ekki hafa átt í slíkum viðskiptum og bið ég hann hér með afsökunar á þessum ruglingi. Guðmundur Andri Thorsson LEIÐRÉTT DÝRALÍF Krían er komin í Snæ- fellsbæ og er fjórum dögum fyrr á ferðinni en í fyrra, að því er fram kemur á Skessuhorni.is. Stór kríuhópur sást í ósnum á Rifi á laugar- dagskvöld en krían kemur yfirleitt á svæð- ið á bilinu 9. til 14. maí. Enginn fugl í heiminum ferðast jafn langa leið á milli varp- og vetrarstöðva og krían. - kh Sumarið að ganga í garð: Krían komin til Snæfellsbæjar KRÍA LÖGREGLUMÁL Ríkissaksóknari telur líklegt að ákvörðun verði tekin á næstu vikum um hvort ákæra verði gefin út í máli Egils Einarssonar og unnustu hans, er greint var frá á fréttavef Vísis. Kona kærði Egil og unnustu hans fyrir nauðgun í lok nóvem- ber á síðasta ári. Lögregla sendi málið til ríkissaksóknara um miðjan janúar, sem sendi það aftur til lögreglu. Önnur stúlka kærði síðan Egil fyrir nauðgun. Málið hefur verið á borði ríkis- saksóknara síðan í febrúar. Egill og unnusta hans neita sök. - sv Kæra gegn Agli Einarssyni: Ákvörðun tekin á næstu vikum LÖGREGLUMÁL Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhald- andi gæsluvarðhald til 11. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu. Mennirnir, sem eru pólskir, eru grunaðir um að flutt til landsins um 8,5 kíló af amfetamíni. Þeir voru handteknir um miðjan apríl, sama dag og þeir komu með flugi frá Póllandi. Það var fíkniefna- hundurinn Nelson sem kom upp um smyglið á fíkniefnunum. Teknir með eiturlyf í kílóavís: Dópsmyglarar áfram í haldi VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 24° 21° 17° 9° 13° 14° 15° 15° 27° 10° 24° 19° 31° 13° 11° 21° 13°Á MORGUN Víða fremur hægur vindur, hvassara NA-til FIMMTUDAGUR Víða fremur hægur vindur -4 1 1 3 2 4 4 4 1 -1 0 4 7 3 4 13 8 8 8 16 9 7 3 3 4 6 2 6 7 5 4 2 KALDIR DAGAR en þó hýnandi. Él NA- til í dag og dálítil á morgun. Bjart um V-vert landið í dag en dregur svo fyrir og líkur á skúrum á fi mmtudag. Þá birtir til fyrir austan. Hitastigið á leið upp á við, kemst þó hægt fari. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður FERÐAÞJÓNUSTA Félagið Rauðka ehf., sem er í eigu Róberts Guð- finnssonar athafnamanns, hefur gert víðtækt samkomulag við sveitarfélagið Fjallabyggð um uppbyggingu tengda afþreyingu og ferðamennsku á Siglufirði. Rauðka er þegar umsvifamikil í ferðaþjónustu á Siglufirði og rekur þar meðal annars Gallerí Rauðku og veitingahúsin Hannes Boy og Kaffi Rauðku. „Samkomu- lagið felur í sér atriði sem við teljum vera mikilvæg til þess að byggja grundvöll fyrir hótel. Það tengist ýmsum umhverfismálum og skíðasvæðinu og golfvellinum,“ segir Finnur Yngvi Kristinsson, verkefnisstjóri hjá Rauðku og tengdasonur Róberts. Markmið samkomulags Rauðku og Fjallabyggðar er sagt vera „að skapa byggðarlaginu sérstöðu og gera það eftirsóknarvert í augum ferðamanna í framtíðinni“. Kveðið er á um skipulagsbreyt- ingar í miðbænum í nánu sam- starfi við Rauðku, úthlutun lóðar til félagsins undir nýtt hótel við smábátahöfnina og uppbyggingu skíðasvæðis og golfvallar bæjar- ins. „Það er verið að taka á ýmsum málum sem mönnum finnst nauð- synlegt að kippa í liðinn,“ segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, um samkomulagið. Undir séu skipu- lagsmál, atvinnumál, umhverfis- mál og útvistarsvæði bæjarins. „Þetta er alveg einstakt.“ Stofna á sjálfseignarstofn- unina Leyning ses. sem ætlað er að byggja upp skíðasvæðið og golfvöllinn. Sveitarfélagið leggur Leyningi til öll núverandi mann- virki á skíðasvæðinu en Rauðka skuldbindur sig til að borga 300 milljónir króna inn í Leyning. Meðal annars á að reisa skíða- skála á næsta ári. Rauðka hefur látið frumhanna nýja hótelið og bærinn hefur skuldbundið sig til að úthluta félaginu lóð. Opna á nýja hótelið árið 2015. Finnur segir gert ráð fyrir að það taki á bilinu 120 til 130 næturgesti í 64 herbergjum. Áætlað sé að bygging þess kosti um 900 milljónir króna. Aðspurður segir Finnur Rauðku þegar hafa lagt 600 milljónir í fjárfestingar á Siglufirði. Gangi þær áætlanir eftir sem nefndar eru í samkomulaginu bætast um 1.200 milljónir við á næstu árum svo heildarfjárfesting Rauðku í bænum verður um 1.800 milljón- ir króna. gar@frettabladid.is Rauðka fjárfestir fyrir 1.200 milljónir á Sigló Félag í eigu Róberts Guðfinnsonar og Fjallabyggð hafa samið um uppbyggingu á Siglufirði. Róbert leggur 300 milljónir króna í skíðaskála og fleira og fær lóð undir 900 milljóna króna hótel. Áður hefur félagið fjárfest fyrir 600 milljónir. Á SIGLUFIRÐI Umsvif Róberts Guðfinnssonar í heimabæ hans hafa verið vaxandi síðustu ár. Meðal annars rekur félag hans þar veitingastaðinn Kaffi Rauðku. MYND/FRIÐRIK LÍBÍA Eftir ítarlegar rannsóknir á vettvangi og viðtöl við fjölda fólks hafa mannréttindasamtök- in Human Rights Watch komist að þeirri niðurstöðu að loftárás- ir NATO á íbúðarhús á átta stöð- um í Líbíu á síðasta ári kostuðu að minnsta kosti 72 almenna borgara lífið. Þar af eru 28 karlar, 20 konur og 24 börn innan 18 ára aldurs. Alls var meira en 7.700 sprengj- um varpað á Líbíu þessa sjö mán- uði sem loftárásirnar stóðu. NATO hefur frá upphafi sagt að aðeins hafi verið ráðist á skotmörk sem hafi haft hernaðarlega þýðingu. „NATO gerði allt til að draga úr hættunni fyrir almenna borg- ara, en í flóknum hernaði getur sú hætta aldrei verið engin,“ segir Oana Lungescu, talskona NATO. „Við hörmum innilega öll dauðsföll almennra borgara sem NATO gæti hafa borið ábyrgð á.“ Human Rights Watch segist hins vegar ekki hafa fundið neinar vís- bendingar um að árásir á tvo af þessum átta stöðum hafi haft raun- verulega hernaðarlega þýðingu. Í skýrslunni segir að á fimm staðanna hafi fundist veikar vís- bendingar um að hugsanlega hafi skotmörkin haft einhverja hernað- arlega þýðingu, og á einum stað er hugsanlegt að háttsettur herforingi í liði Gaddafís hafi fallið ásamt sjö almennum borgurum. Samtökin segja NATO ekki hafa birt upplýsingar sem geti staðfest fullyrðingar um að skotmörkin hafi verið lögmæt. „NATO ber skylda til þess að rannsaka trúverðugar ásakanir um brot á lögum um hernað, veita þeim sem ábyrgð bera hæfilega refsingu og greiða fórnarlömbum ólöglegra árása bætur,“ segir jafnframt í skýrslunni. - gb Ný skýrsla sýnir að sjö mánaða loftárásir NATO á Líbíu kostuðu að minnsta kosti 72 almenna borgara lífið: Tugir barna féllu í loftárásum á Líbíu ÚTFÖR Í MAJER Þann 9. ágúst var fjöldi manns borinn til grafar í bænum Majer, daginn eftir að sprengjur féllu þar á hús tveggja fjölskyldna. NORDICPHOTOS/AFP REYKJAVÍK Stóreflis birkitré rifnaði upp með rótum á lóð við Reyni- mel í hvassviðrinu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið á aðfaranótt mánudags. Jón Kári Eldon, einn íbúa húss- ins, segir í samtali við Fréttablaðið að trjáfellirinn hafi blasað við um morguninn, en engin hætta hafi verið á ferðum. Tréð hafi nú verið fjarlægt úr garðinum. „Þetta var gamalt tré og stærsta tréð í garðinum þannig að það er hálf tómlegt um að lítast hérna eftir að það er farið,“ segir Jón Kári. - þj Trjáfellir í hvassviðrinu: Tómlegt eftir fall risatrés RIFNAÐI UPP MEÐ RÓTUM Stærðar- innar birkitré féll á hliðina í Vesturbæ Reykjavíkur í fyrrinótt. MYND/JÓN KÁRI ELDON GENGIÐ 14.05.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 224,3802 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,24 126,84 202,88 203,86 162,47 163,37 21,854 21,982 21,353 21,479 18,014 18,12 1,578 1,5872 193,57 194,73 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is NÝ KILJA! Það er verið að taka á ýmsum málum sem mönnum finnst nauðsynlegt að kippa í liðinn. SIGURÐUR VALUR ÁSBJARNARSON BÆJARSTJÓRI FJALLABYGGÐAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.