Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 6

Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 6
15. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR6 tvær nýjar bragðtegundir! E N N E M M / S IA / N M 46 40 7 E N N E M NÝ BRAGÐTEGUND- SÍTRÓNA OG KARRÍ NÝ BRAGÐTEGUND- BÉARNAISE Aðalfundur Bakkavör Group ehf. verður haldinn miðvikudaginn 23. maí nk. kl. 10:30 á Hótel Sögu, Hagatorgi, 107 Reykjavík. Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins: 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár, ásamt áritun endurskoðanda, lagður fram til samþykktar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og jöfnun taps fyrir síðastliðið reikningsár. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5. Kosning stjórnar félagsins samkvæmt 17. gr. samþykkta félagsins. 6. Kosning endurskoðunarfélags. 7. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu. 8. Kynning á fyrirhugaðri breytingu á skipan samstæðunnar. 9. Tillaga um eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins. a. Heimilisfangi félagsins skv. 1. gr. verði breytt í 3 Sheldon Square, 5th Floor, Paddington, London W2 6HY, Bretlandi. b. Breyting á (g) lið 10. gr. sem heimilar stjórn félagsins að semja um að flýta breytingu á breytanlegu láni félagsins. 10. Tillaga um lækkun A hluta í allt að kr. 500.000 að nafnverði til greiðslu til hluthafa skv. 2. tölul. 2. mgr. 34. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, með hlutum í Bakkavor Holdings Limited. 11. Tillaga um staðfestingu aðalfundar á fyrirhugaðri breytingu á skipan samstæðunnar. 12. Önnur mál. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis viku fyrir aðalfund. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um framboð til stjórnar skulu vera aðgengilegar hluthöfum á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl. 9:30 á fundarstað. Athygli er vakin á að atkvæðisréttur miðast við hlutaskrá að morgni 21. maí 2012. Fundur hluthafa í B flokki Boðað er til fundar hluthafa í B flokki hlutafjár félagsins sama dag. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu við Hagatorg og hefst kl. 9:00. Fundarefnið er tilnefning stjórnarmanns hluthafa í B-flokki í stjórn Bakkavör Group ehf. í samræmi við 17. gr. samþykkta félagsins. Athygli er vakin á að atkvæðisréttur miðast við hlutaskrá að morgni 21. maí 2012. Reykjavík 14. maí 2012 Stjórn Bakkavör Group ehf. Aðalfundur Bakkavör Group ehf. STJÓRNSÝSLA „Vandi núgildandi stjórnarskrár er að í upplausnar- ástandi gæti forseti hreinlega tekið völdin af ríkisstjórn.“ Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmála- fræðingur í grein í nýjasta hefti Skírnis. Greinin fjallar um breytta stöðu forseta Íslands og frumvarp Stjórnlagaráðs. Eiríkur segir núgildandi stjórn- arskrá svo óskýra að innan marka hennar gæti forseti farið sínu fram og túlkað völd sín með eigin nefi. „Skipist veður svo í lofti í íslensku samfé- lagi að Alþingi og ríkisstjórn séu trausti rúin er ekki með öllu útilokað að vinsæll forseti geti nýtt sér slíkt ástand og virkj- að ýmis ákvæði stjórnarskrárinn- ar um valdheimildir sem hingað til hafa aðeins verið taldar formlegar og í raun í höndum ráðherra,“ segir í grein Eiríks. Dæmi um þetta segir hann meðal annars vera skip- un ráðherra, veitingu opinberra embætta, útgáfu bráðabirgðalaga og gerð þjóðréttarsamninga við önnur ríki. „Þessi stjórnarskrárákvæði um forsetann eiga sér rætur í valda- miklum konungi nítjándu aldar og við virka beitingu þeirra, án atbeina ráðherra, væri stjórnskip- unin vitaskuld öll komin á slig,“ segir Eiríkur. Hann segir tilurð forsetaembættisins hafa ráðist af þeim vanda sem við blasti við lýðveldistökuna árið 1944, þegar Íslendingar samþykktu eigin stjórnarskrá, um það hvað ætti að gera við konunginn. Í nafni sam- stöðu hafi verið ákveðið að gera sem minnstar breytingar á full- veldisstjórnarskránni frá árinu 1920. Hún var að uppistöðu byggð á dönsku stjórnarskránni, sem var nánast óbreytt frá lokum einveldis- ins um miðja nítjándu öld. Þar, líkt og í mörgum eldri stjórnarskrám sem urðu til við umskipti frá einveldi til fulltrúa- lýðræðis, voru konungar sagðir framkvæma ýmsar stjórnarat- hafnir sem þeir gerðu í raun ekki lengur. „Slíkt leppsorðalag var notað til að raungera breytinguna frá einveldi til lýðræðis á borði án þess þó að segja það beint í orði. Í stað þess að skrifa breytinguna hreint út er sagt að ráðherrar fari með vald þjóðhöfðingjans.“ Þaðan segir Eiríkur að sú arfleið komi að forseti sé sagður fara með ýmis völd sem í raun séu í höndum ráðherra. „Stjórnarskráin færir forsetanum þannig ýmis völd sem hún svo kippir til baka í greinum þar sem segir að forseti sé ábyrgð- arlaus af stjórnarathöfnum og að forseti láti ráðherra framkvæma vald sitt.“ Stjórnarskráin endur- spegli því togstreitu nítjándu aldar á milli konungs og lýðræðislegra stjórnvalda. „Núgildandi stjórnar- skrá er af þessum sökum óþægi- lega þvælin um hlutverk forsetans sem sagður er fara með ýmis verk sem hann sannarlega sinnir ekki. Og getur ekki sinnt í þingræðis- ríki.“ thorunn@frettabladid.is Forseti gæti tekið völdin af ríkisstjórn Forseti gæti virkjað ýmis stjórnarskrárákvæði og tekið völdin af ríkisstjórn í upplausnarástandi vegna þess hversu óskýr stjórnarskráin er. Ákvæði um for- setann í stjórnarskrá rakin til konunga nítjándu aldar, segir Eiríkur Bergmann. ÓLAFUR Á BLAÐAMANNAFUNDI Í grein sinni í Skírni segir Eiríkur að staðfestingar- synjun Ólafs Ragnars á lögum feli í sér mun virkari þátttöku í stjórnmálum landsins en fyrri forsetar töldu hæfa embættinu. Myndin er frá því að Ólafur Ragnar synjaði lögum um Icesave staðfestingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EIRÍKUR BERGMANN DÓMSMÁL Þingeyringur sem játaði að hafa drekkt hundi í Dýrafirði í desember hlaut í gær 30 daga skil- orðsbundinn dóm og skal greiða 100 þúsund króna sekt. Honum var jafnframt bannað að hafa dýr í umsjá sinni í fimm ár. Maðurinn játaði að hafa bund- ið saman fram- og afturfætur hundsins og fest tvö bíldekk við hálsól hans áður en hann henti hundinum í sjóinn þar sem hann drukknaði. Í dóminum segir að á heimili mannsins hafi á undanförnum misserum verið rekin hundagæsla gegn gjaldi og að hann hafi tekið þátt í þeirri starfsemi. Í dómi sem féll í Héraðsdómi Vestfjarða í gær segir að sú aðferð sem maðurinn hafi notað til að aflífa dýrið sé í „hrópandi andstöðu“ við lög um dýravernd. Brot mannsins var stórfellt í ljósi einbeitts ásetn- ings hans og þeirrar aðferðar sem hann hafi viðhaft við að aflífa dýrið. Dómurinn segir skýringar mannsins þess efnis að hann hafi aflífað hundinn vegna þess að hann hafi haft áhyggjur af ungabarni á heimilinu ekki vera honum til máls- bóta. - bj Hundagæsla rekin á heimili Þingeyrings sem drekkti hundi í Dýrafirði: Hlaut 30 daga skilorðsbundinn dóm DREKKT Maður sem dæmdur var fyrir að drekkja hundi batt tvö dekk við hálsól hundsins og henti honum í sjóinn fyrir botni Dýrafjarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT LÖGREGLUMÁL Tveir voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á mótum Lyng- háls og Stuðlaháls í Hálsahverf- inu í Reykjavík á tíunda tímanum í gær. Hvorugur mun vera alvarlega slasaður, en slökkviliðið var kall- að á vettvang til að hreinsa upp olíu og annan vökva, sem lak úr bílflökunum. Bílarnir voru mikið skemmd- ir og þurfti að draga þá burt. Þá þurfti að loka gatnamótunum um tíma vegna slyssins. Árekstur í Hálsahverfinu: Tveir fluttir á slysadeild PALESTÍNA, AP Samkomulag tókst í gær milli Ísraela og palestínskra fanga, sem hafa verið í hungur- verkfalli síðan um miðjan apríl til að mótmæla aðstæðum í ísraelskum fangelsum. Að minnsta kosti 1.600 fangar hafa verið í hung- urverkfalli vikum saman, nokkrir þeirra í allt að 77 daga og var ástand þeirra orðið hættulegt. Palestínumenn tóku hins vegar dræmt í tilboð Ísraelsstjórnar um að hefja friðarviðræður á ný. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, skrifaði á laugardag bréf til Mahmouds Abbas, forseta Palestínustjórnar, þar sem hann sagði breytingar á ríkisstjórn Ísraels gefa gott tækifæri til að hefja friðarviðræður á ný. Netanjahú styrkti í síðustu viku stöðu sína á þingi þegar Kadima, stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn, gekk til liðs við stjórnina. Palestínumenn segja ekkert tekið á helstu deilu- málum þeirra í bréfinu, svo sem útþenslu land- tökubyggða eða framtíðarlegu landamæra, en Net- anjahú segir að um þau þurfi að semja. - gb Palestínumenn taka dræmt í tilboð Netanjahús um að hefja friðarviðræður á ný: Fangar hætta hungurverkfalli MÓTMÆLI Palestínsk kona með myndir af föngum í ísraelskum fangelsum. NORDICPHOTOS/AFP Ætlar þú í útilegu í sumar? JÁ 48,4% NEI 51,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Borðaðir þú fisk í síðustu viku? Segðu þína skoðun á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.