Fréttablaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 12
12 15. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR
Þ
að eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkyn-
hneigðra þegar valdamesti maður heims, Barack Obama
forseti Bandaríkjanna, lýsir yfir stuðningi við hjónaband
fólks af sama kyni. Forveri hans, George W. Bush, var
ekki eingöngu andvígur þessum réttindum heldur reyndi
hann að fá stjórnarskrá Bandaríkjanna, því merka mannréttinda-
plaggi, breytt þannig að hún
bannaði fólki að njóta þeirra.
Þegar það er haft í huga er enn
skýrara hversu mikil breyting
hefur orðið í Hvíta húsinu á
skömmum tíma.
Obama hefur frá upphafi beitt
sér fyrir bættum réttindum sam-
kynhneigðra og meðal annars
afnumið bann við því að fólk sem er opinberlega samkynhneigt
gegni störfum í Bandaríkjaher. Hann hefur þó lengi, og að sumra
mati of lengi, beðið með að kveða upp úr um afstöðu sína til þess
hitamáls sem hjónaband samkynhneigðra er í Bandaríkjunum.
Svo heitt er málið að Obama tekur sjálfsagt nokkra áhættu með
því að opinbera skoðun sína. Meðal annars hefur verið bent á að á
meðal þeldökkra og fólks af rómönskum uppruna, sem forsetinn
sækir mikið fylgi til, er jafnframt mikil andstaða við hjónaband
samkynhneigðra. Obama treystir því þó væntanlega að Mitt Romn-
ey frambjóðandi repúblikana eigi áfram svo lítinn hljómgrunn hjá
þessum hópum að stefnubreyting í þessu máli verði ekki til þess
að margir skipti um lið í forsetakosningunum sem framundan eru.
Kosningarnar eru hvort sem er líklegar til að snúast fyrst og
fremst um efnahagsmál og afstöðu frambjóðendanna til þeirra.
Þótt yfirlýsing Obama verði hugsanlega til þess að bókstafstrúar-
menn fylki sér um Romney, hleypir hún líka hans eigin stuðnings-
mönnum kapp í kinn, ekki sízt yngra menntafólki sem var hans
harðasti stuðningsmannahópur fyrir fjórum árum.
Viðhorfið til réttinda samkynhneigðra breytist hratt í Banda-
ríkjunum. Árið 2004 sögðust 60 prósent Bandaríkjamanna andvígir
hjónabandi samkynhneigðra í könnun Pew Research. Nýleg könnun
sömu stofnunar sýnir að andstæðingunum hefur fækkað í 43 pró-
sent. Svo skjót breyting á afstöðu til samfélagsmála er ekki algeng
í Bandaríkjunum. Gerbreytt afstaða yngra fólks skiptir mestu;
tveir þriðju hlutar þeirra sem fæddir eru eftir 1980 sjá ekkert að
því að samkynhneigðir njóti sömu réttinda og gagnkynhneigðir.
Eftir því sem fleiri koma út úr skápnum eru líka fleiri sem eiga
samkynhneigða vini og ættingja og vilja berjast fyrir réttindum
þeirra. Enda vísaði Obama til þess í yfirlýsingu sinni að dætur
hans ættu vini sem ættu samkynhneigða foreldra – og af hverju
ættu þær að vilja að foreldrum vina þeirra væri mismunað?
Ákvörðun Obama er til vitnis um pólitískt hugrekki og réttsýni
forsetans. Hún hefur ekki bein eða skjót áhrif á réttindi samkyn-
hneigðra í Bandaríkjunum, þar sem hjúskaparlöggjöfin er á hendi
einstakra ríkja. Hún er hins vegar mikilvægt fordæmi víða um
heim, þar sem fólk lítur upp til Obama sem manns sem vann stóran
sigur fyrir hönd þeldökkra í Bandaríkjunum og tekur nú nýtt skref
í baráttunni fyrir mannréttindum öllum til handa.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
greinar@frettabladid.is
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
FRÁ DEGI TIL DAGS
HALLDÓR
Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhags-
munaaflanna í samfélaginu verið jafn
grímulaust. Vikum saman hefur auglýs-
ingaherferð útvegsmanna gegn breytingum
á eignarhaldi á fiskveiðiauðlind íslensku
þjóðarinnar glumið í eyrum landsmanna.
Hér er engu til sparað. Langar leiknar sjón-
varpsauglýsingar og tilkynningalestur á
undan hverjum fréttatíma í útvarpi. Uppi-
staðan í skilaboðum útgerðarmanna til
þjóðarinnar eru órökstuddar fullyrðingar,
illa dulbúnar hótanir og tilfinningaklám af
ömurlegustu sort. Síendurtekinn einhliða
áróður sem er til þess eins ætlaður að sá
fræjum ótta og óvissu í huga fólks. Og allt
er það til þess gert að á Alþingi Íslendinga
verði þrýstingurinn óbærilegur og þá er
ekki ólíklegt að krosstrén fari að bregðast.
Í lýðræðissamfélögum ræðir fólk mál-
efnin fram og til baka, skiptist á skoðunum,
vegur og metur rök með og á móti tiltek-
inni fullyrðingu, tekur tillit til andstæðra
sjónarmiða og skiptir jafnvel um skoðun
að vel athuguðu máli. Alla jafna kemst fólk
að niðurstöðu sem er vel ígrunduð og tekur
tillit til almannahagsmuna frekar en sér-
hagsmuna í samfélaginu. Þessi umræða fer
fram á jafnréttisgrundvelli og á opinberum
vettvangi; í ábyrgum fjölmiðlum, á opnum
fundum, í sveitarstjórnum og á löggjafar-
samkomunni. Rökræðan krefst þess að mál-
efnið sé skoðað frá öllum hliðum og leyfir
ekki þöggun eða ofríki af neinu tagi. Aug-
lýsingaherferð útgerðarmanna er að þessu
leyti lítið annað en tilræði við frjálsa rök-
ræðu í lýðræðissamfélagi.
Í lýðræðissamfélagi er ekki hægt að
kaupa sér niðurstöðu? Eða hvað? Lög hafa
verið sett til að stemma stigu við ofur-
valdi peninganna á starfsemi stjórnmála-
flokka. Menn virðast almennt hafa ímugust
á stjórnmálum þar sem stjórnmálamenn-
irnir eru ofurseldir fjármagninu og tala
fjálglega um spillingu og vonda stjórnar-
hætti í öðrum löndum, t.d. Bandaríkjun-
um. En hvað um okkur sjálf? Auglýsinga-
herferð útgerðarmanna hafði staðið vikum
saman þegar loks fór að heyrast í fólki um
að kannski væri þetta ekki eðlileg leið til
skoðanaskipta hér á landi. Að ef til vill væri
óeðlilegt að kaupa sér niðurstöðu í máli sem
varðar grundvallarréttindi almennings;
þjóðareign á sameiginlegum auðlindum
okkar. Hvort útgerðarmönnum tekst ætlun-
arverk sitt mun ráðast á næstu vikum. Nið-
urstaðan sker úr um hvort Ísland sé raun-
verulegt lýðræðisríki.
Má kaupa sér niðurstöðu?
Skoðun
Þórunn
Sveinbjarnar-
dóttir
fyrrverandi
alþingismaður og
ráðherra
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
Humar 2.350 kr.kg
Harðfiskurinn
frá Stykkishólmi
Þessi sjúklega góði
Sigin Grásleppa
Frá Drangsnesi
Stór orð
Þorvaldur Gylfason hagfræðipró-
fessor kvað ansi sterklega að orði í
Facebook-færslu á sunnudag. Þar
sagði hann um málflutning Bjarna
Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins, um
þjóðaratkvæðagreiðslu
um tillögur Stjórnlaga-
ráðs: „Hann er eins og
maðurinn, sem myrti
foreldra sína, og baðst
síðan miskunnar fyrir
rétti á þeirri for-
sendu, að hann
væri munaðar-
laus.“
Umræðan og ábyrgðin
Þorvaldur hefur um árabil verið einn
af helstu álitsgjöfum þjóðarinnar
og ætti að vera ljóst að flest það
sem hann segir og skrifar kemst til
umræðu og jafnframt að
því fylgir nokkur ábyrgð.
Skynugt fólk sem óskar
þess að sjá vandaðri
pólitíska orðræðu
myndi kannski haga
orðum sínum á smekk-
legri hátt en að líkja
stjórnmálaleiðtogum við
morðingja.
Kaffi og með því
Í þessum pistli í gær voru því gerðir
skórnir að fleira en kaffiþorsti og
áhugi á stöðu stjórnarskrármálsins
hafi búið að baki heimsóknar þing-
flokks Hreyfingarinnar á vinnufund
ríkisstjórnarinnar um helgina.
Upp úr dúrnum kom að þarna
var rætt um að þingflokkurinn
skyldi verja ríkisstjórnina falli,
að gefnum ýmsum skilyrðum.
Í gær funduðu stjórnvöld svo
stíft með lífeyrissjóðum, einmitt
um eitt af lykilmálum Hreyf-
ingarinnar. Stundarkorn
yfir kaffibolla getur verið
afdrifaríkt.
thorgils@frettabladid.is
Obama styður hjónaband samkynhneigðra:
Tímamót í mann-
réttindabaráttu