Fréttablaðið - 15.05.2012, Page 13

Fréttablaðið - 15.05.2012, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 15. maí 2012 13 Hinn 23. apríl sl. kvað Lands-dómur upp dóm í máli fyrr- verandi forsætisráðherra. Hann markar tímamót í íslenskri réttar sögu, enda fyrsti dómurinn sem kveðinn er upp á grundvelli laga um ráðherraábyrgð. Í þess- ari grein og þeirri næstu verður til fróðleiks leitast við að gera almenna grein fyrir efni dóms- ins auk þess sem farið verður nokkrum orðum um fordæmis- gildi hans. Hvað var fyrrverandi forsætis- ráðherra sakaður um? Fyrrverandi forsætisráðherra var í ákæru talinn hafa bakað sér refsiábyrgð með athafna- leysi sínu meðan hann gegndi embætti. Var sú vanræksla bundin í ákæru við rúmlega átta mánaða tímabil á árinu 2008 og nánar tiltekið við tvenns konar brot. Í fyrri hluta ákæru var ákærða gefið að sök brot gegn b-lið 10. gr. ráðherraábyrgðarlaga fyrir að hafa sýnt af sér alvarlega van- rækslu á starfsskyldum sínum sem forsætisráðherra andspænis stórfelldri hættu sem vofði yfir íslenskum fjármálastofnunum og ríkissjóði, hættu sem honum var eða mátti vera kunnugt um. Í því sambandi reyndi í fyrsta lagi á það hvort ráðherra hefði van- rækt að gæta að störfum sam- ráðshóps stjórnvalda um fjár- málastöðugleika og í öðru lagi hvort hann hefði vanrækt að hafa frumkvæði að virkum aðgerðum til að draga úr stærð bankakerf- isins. Þá var honum í þriðja lagi gefið að sök að hafa ekki fylgt því eftir og fullvissað sig um að unnið væri með virkum hætti að flutningi Icesave-reikninga Landsbanka Íslands hf. í Bret- landi yfir í dóttur félag þar. Í síðari hluta ákæru var fyrr- verandi forsætisráðherra gefið að sök að hafa í andstöðu við c-lið 8. gr. ráðherraábyrgðarlaga látið farast fyrir að framkvæma það sem fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrárinnar um skyldu til að halda ráðherrafundi, svokall- aða ríkisstjórnarfundi, um mikil- væg stjórnarmálefni. Í þessari grein verður fjallað um forsendur Landsdóms í til- efni af fyrri hluta ákærunnar en í næstu grein um síðari hluta hennar. Um eðli lagalegrar ábyrgðar og samanburður við hina pólitísku ábyrgð ráðherra Í dómi Landsdóms reyndi á svo- kallaða lagalega ábyrgð fyrr- verandi forsætisráðherra, þ.e. refsiábyrgð. Gera verður skýr- an greinarmun á þeirri tegund ábyrgðar og hinni pólitísku. Í for- sendum meirihluta Landsdóms er þessi hugsun orðuð þannig að af „samanburði á þessari tvenns konar ábyrgð [verði] að álykta að það séu aðeins alvarlegar ávirðingar í starfi, sem leitt geta til þess að ráðherra verði gerð refsing. Samkvæmt því [geti] það eitt að háttsemi hans sé gagn- rýnisverð eða ámælisverð ekki fallið undir þá lagalegu ábyrgð, sem hér um ræðir, heldur [þurfi] meira að koma til“. Þessu til viðbótar má nefna að lögin um ráðherraábyrgð fjalla um svokölluð „pólitísk embættis- brot“ ráðherra, eins og Lárus H. Bjarnason lagaprófessor orð- aði það fyrir tæpum 100 árum, á meðan önnur brot ráðherra í embætti falla undir almenn hegningarlög. Landsdómur er í samræmi við þetta gildissvið laga um ráðherraábyrgð ekki aðeins skipaður sjö löglærðum dómurum heldur átta dómurum til viðbótar kjörnum af Alþingi. Landsdómur er m.ö.o. dómstóll með „pólitísku ívafi“, eins og segir í athugasemdum greinar- gerðar með frumvarpi því er varð að Landsdómslögum. Það er mikilvægt að hafa þetta sér- staka eðli málsins í huga þegar dómur Landsdóms er lesinn, enda taka forsendurnar mið af gildandi kerfi þótt það kunni að koma mörgum nokkuð spánskt fyrir sjónir. Eru ákvæði ráðherraábyrgðarlaga nægilega skýrar refsiheimildir? Stjórnarskráin og Mannréttinda- sáttmáli Evrópu áskilja að refsi- heimildir veiti sanngjarna við- vörun um hvað telst refsivert og mega því ekki vera of almennar og óljósar. Fyrrverandi forsætis- ráðherra hélt því fram að þau ákvæði ráðherraábyrgðarlaga, sem á reyndi í máli hans, stæð- ust ekki kröfur um skýrleika refsiheimilda. Landsdómur hafn- aði þeirri málsvörn með þeim rökstuðningi að hugtök þau sem fram koma í ákvæðunum væru „auðskilin góðum og gegnum manni í því embætti, sem ákærði gegndi“. Í ákvæðunum fælist því „fyrirsjáanlegur og sanngjarn mælikvarði um embættisfærslu ráðherra“. Þessi niðurstaða er vel rökstudd og í samræmi við viðhorf þeirra fræðimanna sem áður höfðu fjallað um þetta efni. Niðurstaða Landsdóms um brot gegn b-lið 10. gr. ráðherraábyrgð- arlaga Í b-lið 10. gr. segir að ráðherra verði sekur eftir lögunum ef hann framkvæmir nokkuð eða veldur því, að framkvæmt sé nokkuð, er „stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þess sérstak- lega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að fram- kvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir“. Á síðari hluta ákvæðisins reyndi í máli fyrrverandi forsætisráð- herra. Ástæða er til að skýra nánar hvers konar brot er hér um að ræða. Í fyrsta lagi verður að hafa í huga að forsætisráðherra var í þessum hluta ákærunnar gefið að sök að láta hjá líða að bregð- ast við hættu sem steðjaði að ríkissjóði og fjármálakerfinu eins og honum hafi verið skylt. Hann var því ekki sakaður um að valda beinlínis hættunni með athöfnum sínum. Brot það sem um ræddi var því svokallað athafnaleysisbrot. Það er skil- yrði athafna leysisbrota að áliti fræðimanna að lög leggi tiltekn- ar athafnaskyldur á menn, ýmist á alla menn eða á tiltekna menn vegna stöðu þeirra og athafna í þjóðfélaginu. Ef maður sinnir ekki athafnaskyldu er lögð refsi- ábyrgð við þeirri vanrækslu sem slíkri án tillits til hugsanlegra afleiðinga hennar eða atvika að öðru leyti. Í öðru lagi lýsir b-liður 10. gr. svokölluðu sérgreindu hættu- broti, en þá stofnar athafnaleysi manns í hættu tilteknum rétt- arhagsmunum sem unnt er að benda á hverju sinni, í þessu til- viki heill ríkisins. Fyrir slík brot má refsa þótt ekkert tjón hafi hlotist af verknaði. Samkvæmt þessu var það ekki skilyrði fyrir refsiábyrgð fyrr- verandi forsætisráðherra að ákæruvaldinu tækist að sýna fram á að hann hefði beinlínis getað komið í veg fyrir banka- hrunið, en um það atriði hefur ríkt nokkur misskilningur í þjóð- félagsumræðunni. Bæði í for- sendum meiri- og minnihluta Landsdóms var því talið nægi- legt að athafnir þær, sem ákærða var skylt að inna af hendi, hefðu getað dregið verulega úr þeirri hættu sem steðjaði að fjármála- kerfinu. Bæði meiri- og minni- hluti Landsdóms töldu sannað að slík hætta hefði verið til stað- ar. Meiri- og minnihlutinn voru aftur á móti einnig sammála því að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að sýna fram á að hugs- anlegar athafnir ákærða hefðu getað dregið úr hættunni þannig að skapað hefði refsiábyrgð. Var ráðherrann því með nokkuð sannfærandi rökum sýknaður af þessum hluta ákærunnar. Rétt er að lokum að geta þess að þótt meirihlutinn hafi talið að sýkna bæri ákærða af fyrri hluta ákærunnar er það samandregin niðurstaða hans að fyrrverandi forsætisráðherra hafi að nokkru marki ekki sinnt athafnaskyldum sem á honum hvíldu og lýst var í ákærunni. Sá hluti forsendnanna er afar athyglisverður. Mikil- vægt er að greina forsendurn- ar frekar fræðilega enda kunna þær að hafa ríkt fordæmisgildi fyrir störf Stjórnarráðsins í framtíðinni. Róbert R. Spanó prófessor við lagadeild Háskóla Íslands HUGLEIÐINGAR UM LÖG OG RÉTT Dómur Landsdóms – fyrri hluti Notaðu Nicky þegar þú ert búinn!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.