Fréttablaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 15. maí 2012 15
Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar
kemur að fjarskiptatengingum
heimilanna. Af þeim er ljósleiðari,
lagður alla leið inn á heimili not-
enda, líkt og Gagnaveita Reykja-
víkur leggur, öflugasta og full-
komnasta lausnin enda eina sanna
ljósleiðaralausnin. Um það deilir
enginn og ekkert sem bendir til
annars en svo verði lengi.
Síminn hefur nýverið hafið
kynningu á skammtímalausn sem
felst í að blandað er saman ljós-
leiðurum sem liggja í götuskápa
og áframhaldandi notkun á gömlu
símalínunum. Þetta er svokölluð
VDSL-tækni, næsta kynslóð af
ADSL, sem Síminn kýs að kalla
ljósnet.
Það sem skiptir þó megin máli
fyrir neytendur er hvaða þjón-
usta þeim býðst. Staðreyndin er
sú að framboð og gæði fjarskipta-
þjónustu til heimila er nátengt
getu fjarskiptatengingarinn-
ar til gagnaflutninga. Viðfangs-
efnið felst í því að auka mögu-
legt gagnamagn (bandvídd) og
hámarka gagnahraða sem allra
mest. Sem betur fer átta margir
sig á þessum tæknilegu atriðum,
ekki bara tæknifólk. Samfélags-
miðlar og sjónvarpsefni er sífellt
að verða kröfuharðara á afköst og
hraða gagnaflutninga og því gerir
almenningur sér grein fyrir. Eng-
inn nennir að bíða eftir að mynd
á Facebook sé að birtast á tölvu-
skjánum, myndband á YouTube
byrji að spila eða bíómynd á leig-
unni hefjist.
Á ljósleiðaraneti Gagnaveitunn-
ar bjóða þjónustuaðilar nú Inter-
net-þjónustu með bandvíddina 100
megabitar á sekúndu. Það þýðir
að ljósleiðaraheimtaug heimilis-
ins ræður við umrædda bandvídd
hvort heldur það er við flutning
gagna til þess eða frá því og já,
hvort tveggja í einu. Þarna er ekki
um að ræða tilgreinda bandvídd
hjá sumum eða stundum, held-
ur hjá öllum alltaf, það geta við-
skiptavinir Ljósleiðarans staðfest
með því að mæla hraða tengingar
sinnar á ljosleidarinn.is.
Það hefur viðgengist ansi lengi
og í raun allt frá upphafi þjónustu
með ADSL-tækni að neytendum sé
boðið upp á hina afkáralegu skil-
greiningu á þjónustu: „Allt að“
eitthvað. Þannig selur Síminn nú
„allt að“ 50 megabita Internet-
þjónustu um VDSL-kerfi (ljósnet)
sitt en í raun sanni má ætla að fáir
viðskiptavinir nái þeirri band-
vídd, sumir þeirra bara stundum
og þá bara til sín. Frá heimilinu er
hún a.m.k. helmingi minni. Þetta
geta viðskiptavinir Símans sjálf-
ir sannfærst um með því að mæla
hraða tengingar sinnar á sim-
inn.is/adstod/netid/hradi. Flestir
munu komast að því að „allt að“ er
að skila þeim „langt frá“ því sem
þeir telja sig vera að kaupa. Rétt-
ara væri að selja þjónustu með „að
lágmarki“ tiltekin gæði fremur en
„allt að“ tiltekin gæði. Hver kaupir
„allt að“ tveggja lítra kók og fær
þá kannski afhenta hálfs lítra kók,
kannski lítra og ef heppnin er með
þá tveggja lítra flösku en það er
bara í boði fyrir þá sem búa við
hliðina á sjoppunni!
Síminn hefur fullyrt að ljósnet-
ið muni ná til 100 þúsund heim-
ila og að þeir muni bjóða hverju
heimili 100 megabita tengingu.
Það þarf engan snilling til að sjá
að hér hefur markaðsfólk Símans
farið eitthvað fram úr sér og lofar
því sem hreinlega er ekki hægt
að standa við. Hafandi fengið á
sig fjölda stjórnvaldssekta vegna
ólögmætra markaðsaðgerða er
ótrúlegt að sjá Símann áfram á
braut blekkinga í sölu- og mark-
aðsaðgerðum sínum. Auk villandi
nafngiftar og upplýsinga um band-
vídd er þar að auki látið í veðri
vaka að þjónusta Símans sé ódýr-
ari en samkeppnisaðila sem nemur
aðgangsgjaldi Gagnveitunnar.
Neytendur, látið ekki blekkjast af
svona bulli. Með einföldum verð-
samanburði af vefsíðum Símans og
Vodafone sést að á algengri þjón-
ustuleið er þjónusta Vodafone um
Ljósleiðara Gagnaveit-
unnar ódýrari en þjón-
usta Símans um ljósnet-
ið.
Gagnaveita Reykja-
víkur hefur nú lagt og
tengt ljósleiðara til rúm-
lega 46 þúsund heimila,
fyrst og fremst á höfuð-
borgarsvæðinu en einn-
ig á Suður- og Vestur-
landi. Ætla má að um 50
þúsund heimili eða 40%
heimila landsins geti
nýtt sér alvöru ljósleið-
aratengingu frá Gagna-
veitu Reykjavíkur eða öðrum
gagnaveitum. Þá hefur fjöldi
sveitarfélaga í hyggju
að leysa fjarskiptamál
íbúa sinna með sam-
bærilegum hætti.
Það verður því að telj-
ast nokkuð merkilegt
að á svæðum þar sem
alvöru ljósleiðaralausn
er þegar til staðar telji
Síminn sér hag í því
að leggja út í umtals-
verðar fjárfestingar til
að púkka upp á áfram-
haldandi notkun síma-
línunnar. Fjárfesting-
um þeirra er varla vel
varið í uppfærslu á gamalli kopar-
línutækni þar sem ljósleiðari er
þegar í boði alla leið inn fyrir hús-
vegg. Ætli hluthafar og kröfuhafar
Símans viti af þessu? Hvaða fjár-
festir myndi fjárfesta í malbikun
á gamla sveitaveginum við hliðina
á nýlagðri hraðbrautinni?
Að sjálfsögðu býðst Símanum,
eins og öllum þjónustuveitum, að
veita þjónustu um ljósleiðaranet
Gagnaveitunnar. Með því gæti
Síminn, í samkeppni við aðra, veitt
þá þjónustu sem löngun Símans
stendur til, í stað „allt að“ þjón-
ustu. Viðskiptavinir sem kjósa að
taka alvöru ljósleiðaratengingu
í notkun, hverfa því í stórum stíl
frá Símanum til annarra þjónustu-
aðila.
„Allt að“ ekki neitt
Fjarskipti
Birgir Rafn
Þráinsson
framkvæmdastjóri
Gagnaveitu Reykjavíkur
Hvaða fjár-
festir myndi
fjárfesta í
malbikun á
gamla sveita-
veginum við
hliðina á ný-
lagðri hrað-
brautinni?
Smith & Norland hefur
útvegað Íslendingum
gæða-heimilistæki í 80 ár.
Við seljum vandaðar vörur
og kunnum okkar fag.
Skiptið við traust og
rótgróið fyrirtæki.
Verið ávallt velkomin í
verslun okkar, því að sjón
er sögu ríkari.
Umboðsmenn um land allt.
VS Z3XTRM12
Mjög kraftmikil 1800 W
ryksuga með
„Compressor“-tækni.
Skilar hámarks-sogkrafti
með lágmarks-orkunotkun.
4 lítra slitsterkur poki.
Vinnuradíus 10 metrar.
(fullt verð: 37.900 kr.)
WM 14A163DN
Einstaklega góð kaup.
Tekur mest 5,5 kg, vindur
upp í 1400 sn./mín.
Orkuflokkur A+.
Íslenskt stjórnborð.
(fullt verð: 114.900 kr.)
WM 14E262DN
Tekur mest 6 kg, vindur
upp í 1400 sn./mín.
Orkuflokkur A+.
Mjög stutt kerfi (15 mín.).
Íslenskt stjórnborð og
leiðarvísir.
(fullt verð: 149.900 kr.)
WM 14S464DN
Tekur mest 8 kg, vindur
upp í 1400 sn./mín.
Orkuflokkur A+++.
iQdrive: Kolalaus, hljóðlátur
og sparneytinn mótor.
Mjög stutt kerfi (15 mín.).
Íslenskt stjórnborð og
leiðarvísir.
(fullt verð: 199.900 kr.)
WT 46E364DN
Góður þurrkari sem tekur
mest 7 kg. Skjár sem sýnir
afgangstíma. Íslenskt
stjórnborð og leiðarvísir.
(fullt verð: 159.900 kr.)
WT 46E305DN
Glæsilegur þurrkari sem
tekur mest 8 kg. Sérkerfi:
Ull 6 mín., blandaður
þvottur, útifatnaður, heitt
20 mín. og 40 mín. hrað-
kerfi. Íslenskt stjórnborð og
leiðarvísir.
(fullt verð: 169.900 kr.)
SE 45E234SK
Hvít, 12 manna. Fimm kerfi.
Hljóð: 48 dB (re 1 pW).
(fullt verð: 119.900 kr.)
SN 45M205SK (hvít)
SN 45M505SK (stál)
Glæsilegar 13 manna
uppþvottavélar. Fimm kerfi.
Sérlega hljóðlátar: 44 dB
(re 1 pW). Tímastytting
þvottakerfa („varioSpeed“).
Íslenskur leiðarvísir.
(hvít)
(fullt verð: 169.900 kr.)
(stál)
(fullt verð: 189.900 kr.)
Gæða-heimilistæki í 80 ár
VS 06G2001
Kröftug 2000 W ryksuga
með 4 lítra slitsterkum poka.
Vinnuradíus 10 metrar.
(fullt verð: 28.900 kr.)
Ariel þvottaefni og Lenor
mýkingarefni fylgja með
öllum Siemens þvottavélum.