Fréttablaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 17
Hollir og næringarríkir réttir eru uppistaðan á matseðli veitinga-staðarins Ginger en tæp tvö ár
eru síðan staðurinn var opnaður. Nýlega
opnaði Ginger nýjan stað í verslun 10-
11 í Lágmúla en hann er meira í stíl við
verslunina sjálfa að sögn Kristófers Jóns
Hjaltalín, framkvæmdastjóra Ginger,
sem jafnan gengur undir nafninu Nonni.
„Hægt er að koma hér sjö daga vikunnar
og grípa hollan og góðan mat til að taka
með heim eða í vinnuna. Við leggjum
mikla áherslu á ljúffengan mat sem er um
leið hollur og næringarríkur.“
Nonni hefur starfað sem einkaþjálfari
í mörg ár og ráðlagt fólki um mataræði.
Sjálfur hefur hann keppt í fitness og er því
meðvitaður um hollt mataræði. „Segja
má að staðurinn hafi verið opnaður til að
mæta eigin þörfum. Hann snýst um mat-
argerð og lífsstíl sem ég hef tileinkað mér
í mörg ár. Við leggjum áherslu á að við-
skiptavinir okkar geti nálgast hollan og
ljúffengan mat. Heilbrigði á við alla daga,
ekki bara stöku sinnum.“
Fjölbreyttur matseðill Ginger inni-
heldur til dæmis vefjur, samlokur, kjúk-
lingarétti og salöt. Öll brauð eru bökuð
á staðnum en þau innihalda meðal
annars haframjöl og hunang. „Vefjurnar
okkar eru vinsælastar. Þar notum við
mikið marineraðan kjúkling en upp-
skriftin að leginum er leynileg. Við
tökum algengan mat, eins og samlokur
og búum til holla útgáfu án þess þó að
rétturinn verði þurr og leiðinlegur.“
Nonni segir viðskiptavinahópinn
breiðan. Íþróttafólk hafi verslað mikið
hjá honum í upphafi en nú sé hópurinn
fjölbreyttari. „Við sjáum sífellt fleiri sem
vilja smakka hollan og góðan mat og
jafnvel gefa hefðbundnum skyndibita
frí. Það fólk hefur ekki orðið fyrir von-
brigðum og mætir aftur og aftur.“
Ginger býður einnig upp á vinsæla
heilsupoka. Þeir innihalda mat fyrir
hálfan eða heilan dag. Um er að ræða
morgunmat, hádegis- og kvöldmat auk
millibita. „Heilsupokar okkar eru mjög
heppileg lausn fyrir fólk sem er upptek-
ið í vinnu eða á við þyngdarvanda að
stríða. Við bjóðum einnig upp á heilsu-
poka fyrir fjallgöngur og veiðiferðir svo
dæmi séu nefnd.“
HEILBRIGÐI ALLA DAGA
GINGER KYNNIR Veitingastaðurinn Ginger hefur opnað nýjan stað í verslun
10-11 í Lágmúla.
KOMA SÉR VEL Ginger býður að sögn Nonna upp á vinsæla heilsupoka sem innihalda mat fyrir hálfan og heilan dag. MYND/VALLI
VINSÆLAST Jalapeño-
vefja með grilluðum
kjúklingi, vinsælasti
rétturinn okkar.
MYND/VALLI
FRÍSKANDI Í MORGUNSÁRIÐ
Grænn djús í morgunsárið gerir líkamanum ekkert
nema gott. Setjið epli, engiferbút, spínatlúku, spergil-
kál og límónusafa í blandarann og maukið þar til bland-
an verður jöfn. Þetta má líka setja í safapressu en hafið
í huga að við það tapast umtalsvert af trefjum.
Teg. 810857 - þunnur, veitir fínan stuðning í C,
D skálum á kr. 5.500,- buxur í stíl á kr. 1.995,-
Fallegur og sumarlegur
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Betra loft - betr
Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 9 3100 56 • erg.is eirb
Raka- og lofthreinstæki
Verð: 29.850 kr.
Boníto ehf. • Praxis
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2878 • www.praxis.is • soo.dk
Opið mán. – fös. kl. 11–17. Lokað Laug.
Erum einnig með gott
úrval af bómullar-
bolum og mikið úrval
að vinnufatnaði kíkið
á praxis.is
Fást í 5 litum, lime, svörtu,
rauðu, kongabláu og fjólubláu
Vatteraðir jakkar - 14.500 kr.
15%
afsláttur
Lífrænt og bragðgott
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Reykjavík
Hæðasmára 6 | Kópavogi
Sími: 585 8700
Hin margverðlaunuðu CLIPPER te eru einstaklega ljúffeng, enda úr bestu
hráefnum sem völ er á og þar að auki á frábæru verði! Prófaðu CLIPPER
næst þegar þú færð þér te – mikið og fjölbreytt úrval.