Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 18
FÓLK|HEILSA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Heimaræktun kryddjurta hefur aukist mikið undanfarin ár. Eld-húsglugginn, svalir og garður- inn, allt er nýtt til ræktunar, og segir Steinunn Reynisdóttir, deildarstjóri garðyrkjudeildar Garðheima, vinsæl- ustu kryddjurtirnar vera steinselju, kóríander, graslauk, tímían og oregano. „Basilíka er einnig mjög vinsæl en hana er ekki hægt að rækta utanhúss hér- lendis. Ekki má gleyma myntunni en hana rækta margir og nýta í te, mauk og hressandi sumardrykki.“ Fyrrnefndar kryddjurtir eru frekar sólelskar plöntur að sögn Steinunnar. Þó ber að varast of sterka sól, til dæmis ef plöntur eru geymd- ar í glugga sem vísar í suður. „Of mikil sól fer ekki vel með krydd- jurtir. Ef þær standa of lengi í sterkri sól geta þær breytt um lit. Þá er betra að hafa þær fyrir innan gluggann þannig að þær fái góða birtu.“ Einnig má auðveldlega planta kryddjurtum út í garð eða á svölum og palli fyrir þá sem eiga ekki garð. „Það er síðan ekkert því til fyrirstöðu að vera með nokkrar kryddjurtir í sama keri, til dæmis úti á svölum. Þannig er fljótlegt og þægilegt að grípa til þeirra yfir grillinu eða úr eldhúsinu. Steinunn segir algengustu mistök við heimaræktun kryddjurta vera þau að rækta jurtir í lokuðu íláti þar sem vatnið nær ekki að leka frá. Best sé að nota potta sem séu opnir í botninn. „Það verður síðan að passa að drekkja ekki plöntunum í vatni. Sé vökvað of mikið hættir plantan að geta tekið við vatninu.“ Hún bendir ræktendum á að nota sáðmold í upphafi þegar fræjum er sáð. Ekki eigi að nota pottamold þar sem hún innihaldi of mikla næringu fyrir ungar rætur og geti brennt þær og eyðilagt. Þegar plantan er komin með þrjú til fjögur varanleg blöð er óhætt að umpotta yfir í hefðbundna pottamold. HOLL OG GÓÐ HEIMARÆKTUN FERSKT Í MATARGERÐINA Sífellt fleiri Íslendingar rækta kryddjurtir heima hjá sér enda hollur og góður kostur í matargerð. TÍMÍAN er vinsælt til heimaræktunar. BASILÍKU er ekki hægt að rækta utanhúss en hún er fín í eldhús- gluggann. GOTT AÐ GRÍPA TIL Steinunn segir vinsælustu kryddjurtirnar vera steinselju, kóríander, graslauk, tímían og oregano. MYND/PJETUR Fönkþátturinn Fimmtudagskvöld kl. 22 KOMDU FRAM VIÐ AÐRA Á NETINU EINS OG ÞÚ VILT LÁTA KOMA FRAM VIÐ ÞIG www.saft.is Skipholti 29b • S. 551 0770 15% AFSLÁTTUR AF JÖKKUM OG YFIRHÖFNUM MATARTÆKNANÁM Upplýsingar veitir fagstjóri viðskipta- og fjármálagreina í síma 594 4000/824 4114. Netfang inga.karlsdottir@mk.is HEILSA OG MATUR knanám fyrir þá sem starfa eða vilja starfa í mötuneytumMatartæ menntastofnana eða í mötuneytum vinnustaða.heilbrigðis- og INNRITUN LÝKUR 10. JÚNÍ Kjólar fyrir öll tækifæri NÝ SENDING AF KJÓLUM Í ST. 36–48. 20% afsl. af öllum vörum Útskriftina, brúðkaupið eða vinnuna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.