Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 20

Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 20
KYNNING − AUGLÝSINGBúslóðaflutningar ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 20122 Vinnueftirlitið gaf út bækling um líkamlegt álag við vinnu árið 2005 sem hægt er að nálgast á vef Vinnu- eftirlitsins. Þar kemur meðal annars fram að milli 60-90% fólks í Evrópu þjáist af bakverkjum einhvern tímann á ævinni af ýmsum ástæðum, og er ein þeirra flutningur á þungum hlutum. Í bæklingnum kemur fram að helstu álagsmeinin megi rekja til burðar of þungra og stórra hluta, samfellds álags án hvíldar, óheppilegra vinnustellinga, lélegs skipulags, óvæntra hreyfinga, lélegs líkamsástands ásamt fleiri þáttum. DREGIÐ ÚR ÁLAGI Til að koma í veg fyrir slys er gott að hafa í huga að reyna að halda á byrðinni með báðum höndum. Ef haldið er með annarri hendi eykst álag á líkamann til muna og eykur þannig líkur á meiðslum og slysi. VEGALEND OG TÍMI Því lengur sem haldið er á hlut eykst álagið. Mælt er með því að þyngri hlutir séu ekki bornir lengra en 20 metra í einu. Að bera upp og niður tröppur þýðir aukið álag og samsvarar ein trappa einum metra í flutningslengd, þá er gott að gera ráð fyrir hvíldarstöðum til að stoppa á ef um lengri vegalengdir er að ræða. FYRIRBYGGJANDI SKIPULAG Mikilvægt er að skipulag vinnuferlisins sé gott og hugsað fyrir fram með tilliti til aðstæðna og þess hlutar sem flytja á. Ganga skal úr skugga um að ekkert óæskilegt sé í gangvegi flutningsleiðar og burðar- menn séu meðvitaðir um óhjákvæmilegar hindranir, svo sem þröskulda, hál gólf, snúrur og fleira. RÉTT HREYFING SKIPTIR MÁLI Fyrst og fremst þarf íbúðin að vera hrein. Það er nauðsyn-legt að taka vel til og þrífa út í hornin. Dökkir veggir gera íbúðina minni. Það kostar ekki mikla pen- inga að mála í ljósum litum. Nýmál- uð björt íbúð getur flýtt fyrir sölu. Einnig er gott að fækka hlutum ef mikið dót er í íbúðinni. Fáir hlutir eru meira aðlaðandi fyrir ókunn- uga gesti heldur en yfirhlaðin íbúð. Setjið allan skófatnað í inn- gangi inn í skáp. Þá virðist forstof- an bæði hreinni og stærri. Flest- ir leggja mikla áherslu á eldhús og baðherbergi þegar þeir skoða fast- eign. Nauðsynlegt er að þessi tvö herbergi séu hrein og snyrtileg. Ef dimmt er úti er gott að kveikja á kertum, það gerir umhverfið nota- legt. Sumir setja rósir í vasa til að gefa íbúðinni fallegan blæ og fá rósailm í loftið. Stílistar segja að kaupendur falli frekar fyrir björtum íbúðum en þeim sem hafa dökkt yfirbragð. Dökk gluggatjöld gera til dæmis íbúðina skuggalega. Ljós glugga- tjöld hleypa birtunni inn. Þeir sem velta fyrir sér íbúða- kaupum ættu að skoða hvort leik- og grunnskóli séu í nágrenninu. Sömuleiðis ætti fólk að huga að hversu langt er til vinnu þar sem bensínið er dýrt. Þegar íbúðin er seld og tæmd er gott ráð fyrir þá sem hafa mikið að gera að fá hreingerningafyrirtæki til að þrífa íbúðina. Það er ekki mjög dýrt en losar eigandann við mikla vinnu. Það tekur mun styttri tíma fyrir fagfólkið að fara yfir alla f leti íbúðarinnar heldur en eig- andann og það hefur réttu efnin og tækin. Björt og hrein íbúð er betri í sölu Þegar eignir eru settar á sölu er margt sem þarf að athuga. Væntanlegir kaupendur líta vel í kringum sig og því er gott að huga að smáum atriðum sem stærri. Betra er að hafa fáa hluti í kringum sig þegar íbúðin er sett á sölu. MYND/GETTY SKRÁIÐ ALLT SEM FER Í GÁMINN Þegar flutt er til útlanda þarf fólk að meta hvort það þurfi 20 eða 40 feta gám. Einnig er gott að kynna sér verð áður en hafist er handa við að pakka niður. Nauðsynlegt er að skrá allt sem fer í gáminn á þar til gerðan lista. Gangið vel frá búslóðinni í gámnum. Á heimasíðum skipafélaganna eru ýmsar upp- lýsingar fyrir þá sem eru að flytja úr landi. HJÁLPLEGUR OG ÁHUGAVERÐUR VEFUR Margir Íslendingar hafa flutt til Norðurlandanna í gegnum tíðina. Undanfarin ár hefur þeim fjölgað sem kjósa að flytjast til einhverra nágranna okkar í norðri. Vefsetrinu Norden.org er ætlað að aðstoða norræna borgara við að nýta sér þjónustu og tilboð sem norrænt samstarf býður. Þeir sem hafa hug á að flytja til einhverra Norðurlandanna ættu hiklaust að skoða vefinn því þar er að finna mikið magn upplýsinga um hvernig best er að bera sig að við hin ýmsu mál. Hægt er að finna þar aðstoð við eins ólíka hluti og að stofna bankareikning og að flytja inn gæludýrið sitt. Markmið vefsetursins er að veita innsýn í opinbert norrænt samstarf með því að upplýsa og útskýra hvernig samstarfið er skipulagt, vekja athygli á pólitískum áherslum og að gera markmið og árangur samstarfsins sýnileg. Vefsetrinu er einnig ætlað að veita upplýsingar um Norðurlöndin sem svæði og tengsl þeirra við aðra heimshluta. Upplýsingadeild Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar er útgefandi og ábyrgðaraðili vefsetursins Norden.org. Propack - Pökkun & Flutningar ehf., Smiðshöfða 1, sérhæfir sig í pökkun og frágangi á búslóðum/ listaverkum og persónulegum munum til flutnings milli landa, landshluta eða innanbæjar. Fyr- irtækið er rótgróið og hefur verið starfandi frá 1981. Í megindráttum er þjónustan fólgin í heildarflutningi frá A-Ö; að pakka öllu inn, útbúa pökkun- arlista, sjá um alla inn- og útflutn- ingspappíra og skýrslur, senda og sækja vöruna. „Við leitum tilboða hjá öllum helstu f lutningsfyrir- tækjum, hérlendis og erlendis og fáum þannig ávallt hagstæðasta verðið fyrir kúnnann,“ segir Viðar Pétursson, framkvæmdastjóri og eigandi. Vönduð vinnubrögð og skipulag skipta miklu máli og er hver hlutur merktur og færður inn á pökkun- arlista sem hefur margþættu hlut- verki að gegna; meðal annars fyrir tollyfirvöld, tryggingafélög og síð- ast en ekki síst eiganda búslóðar- innar. Þegar f lutt er þurfa leyfi og pappírar að vera tilbúin, ann- ars er auðratað í vandræði. „Fólk hefur setið með búslóðina sína fasta á hafnarbakkanum vegna slakrar pappírsvinnu. Við vitum nákvæmlega hvaða leyfi og papp- íra þarf til hverju sinni og hverja þarf að ræða við. Kúnninn á að geta treyst því að allt sé í örugg- um höndum, hvar sem er í heim- inum.“ Propack sér einnig um að taka upp búslóðina á nýju heimili og koma öllu fyrir eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið býður fyrirtækið upp á búslóðageymslu í húsnæði með fullkomnu ör- yggis- og brunavarnakerfi. „Hjá okkur er öll þjónustan á einum stað. Fólk losnar við að þeytast um allan bæ, leita upplýsinga, leyfa og þjónustuaðila sem oft tekur mik- inn tíma. Við skrúfum saman húsgögn og röðum upp stærri hlutum svo þetta er mjög mikill vinnu og tímasparnaður fyrir fólk sem getur þá sinnt sínum venju- bundnu störfum og látið okkur um flutningana. Enda ættum við að þekkja þetta nokkuð vel eftir að hafa verið starfandi í rúm 30 ár.“ Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess: www. propack.is . Flutningar frá a-ö Propack - Pökkun & Flutningar sér um að pakka búslóðinni, annast farmbréf, tollafgreiðslu, flutning, tekur upp búslóðina á nýju heimili og kemur öllu fyrir eins og óskað er. Allt frá skutli til stórflutninga www.cargobilar.is obilar.is aKrefst ekki meiraprófs réttind Propack er 30 ára gamalt fyrirtæki í eigu Viðars Péturs- sonar og fjölskyldu. MYND/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.