Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 21
KYNNING − AUGLÝSING Búslóðaflutningar15. MAÍ 2012 ÞRIÐJUDAGUR 3
Allir sem einhvern tíma
hafa flutt þekkja hversu
mikið umstang vill fylgja
flutningum. Þegar flutt er á
milli landa eykst
flækjustigið til muna, enda
þarf að huga að ýmsum
nýjum þáttum sem fæstir
kunna skil á. Þar geta
starfsmenn þjónustudeildar
Samskipa aðstoðað og
klæðskerasaumað lausn
fyrir hvern og einn
viðskiptavin.
Við hjá Samskipum leggj-um mikla áherslu á að veita persónulega þjón-ustu í takt við þarfir
hvers og eins sem leitar til okkar
vegna búslóðaflutninga,“ segir
Einar Már Björnsson, talsmað-
ur blúslóðaflutninga innan þjón-
ustudeildar fyrirtækisins. Auk
hans starfa við búslóðaflutninga
þau Sigríður Alma Gunnsteins-
dóttir og Magnús Rúnar Magnús-
son.
„Það eru í raun engir tveir
flutningar eins þannig að nauð-
synlegt er að laga þjónustuna að
þörfum hvers og eins viðskipta-
vinar,“ heldur Einar Már áfram.
„Við þurfum því að haga upplýs-
ingagjöf okkar í samræmi við það
því það er margt sem viðskiptavin-
urinn þarf að fá að vita áður en til
flutningsins kemur. Margir halda
að kostnaðurinn skipti öllu máli
en það er margt annað sem spil-
ar inn í. Auðvitað vilja allir fá sem
lægst verð en skilmálar flutning-
anna eru einnig mjög mikilvæg-
ir sem og tryggingar. Sumt af því
sem flutt er flokkast kannski held-
ur ekki sem búslóð, t.d. hvorki
bílar eða bátar, og þá þarf að taka
tillit til þess. Flutningum fylgir
ýmis pappírsvinna sem er best
komið í höndum fagfólks eins og
hjá okkur,“ segir Einar.
Hann segir starfsmenn bú-
slóðaflutninga boðna og búna til
þess að svara fyrirspurnum um
hvaðeina er lýtur að þjónustunni
en vísar einnig á vefsíðu Sam-
skipa, þar sem hægt er að nálgast
ýmsar upplýsingar um flutning
búslóða. „Þjónustufulltrúar Sam-
skipa leita alltaf eftir því að veita
sem besta þjónustu í takt við þarf-
ir viðskiptavinarins,“ segir Einar
Már.
GÓÐUR FRÁGANGUR MIKILVÆGUR
Þegar fólk flytur á milli staða hvort sem er innanlands eða milli landa
er nauðsynlegt að ganga þannig frá búslóðinni að ekki hljótist tjón af í
flutningum. Góður frágangur skilar búslóðinni yfirleitt heilli á leiðarenda.
Oft felast mikil verðmæti í innbúi fólks og því sniðugt að tryggja það sem
hægt er að tryggja þó margir hlutir séu verðmætir fyrst og fremst tilfinn-
ingalega.
Tryggingafélög bjóða mörg hver upp á tryggingu sem tekur til tjóna sem
verða í flutningi á búslóð. Áður en fólk flytur er því sniðugt að kanna málin
hjá tryggingafélaginu, hvaða tryggingar séu í boði og fyrir hverju viðkom-
andi er tryggður. Nauðsynlegt er svo að tilkynna félaginu um flutningana
áður en hafist er handa. Ef það er ekki gert er óvíst hvort innbúið sé tryggt.
Áður en einhvers konar flutningstrygging er keypt er mikilvægt að fólk geri
sér grein fyrir verðmæti búslóðarinnar. Það auðveldar einnig þegar til upp-
gjörs kemur ef tjón verður.
Ef fólk lætur flutningsfyrirtæki eða sendibíla frá sendibílastöð sjá um flutn-
inginn er búslóðin tryggð út á ábyrgðartryggingu bílsins. Ef búslóðin er
flutt á eigin vegum þarf að tryggja hana sérstaklega. Einnig þarf að tryggja
hana sérstaklega ef hún er flutt til dæmis í gámi á milli landshluta.
Til þjónustu reiðubúin! Frá vinstri: Magnús Rúnar, Sigríður Alma og Einar Már.
Samskip bjóða persónulega
þjónustu í búslóðaflutningum
> Ertu að flytja yfir hafið?
Saman náum við árangriwww.samskip.is
Alhliða þjónusta vegna búslóðaflutninga
Á vef Samskipa www.samskip.is má finna gagnlegar upplýsingar um búslóðaflutninga
til og frá Íslandi.
Gott er að byrja á að:
> Gera sér grein fyrir umfangi búslóðar – þarftu 20 feta gám, heilan 40 feta gám eða nokkur bretti?
> Kynna sér hvaða lög gilda um tollafgreiðslu í landinu sem flutt er til
> Fá skriflegt verðtilboð og aðrar upplýsingar
> Ganga frá nauðsynlegum pappírum
> Tryggja búslóðina
> Bóka flutning
Þjónustulipurt starfsfólk Samskipa og umboðsmenn um allan heim gera sitt besta
svo flutningurinn verði sem þægilegastur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
5
3
8