Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 22
KYNNING − AUGLÝSINGBúslóðaflutningar ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 20124 SÝNIÐ KÆRKOMINN ÞAKKLÆTISVOTT Það tekur verulega á að púla upp og niður stiga með blýþunga kassa og enn þyngri húsgögn. Gleymum því ekki að sýna bílstjórum flutningabílsins og öðrum hjálpfúsum höndum örlítinn þakklætis- vott á eftir. Ískaldur öl, frískandi gosdrykkur, snakk, kleinur og annað hnossgæti fær alla til að brosa, léttir störfin og fær hjálparkokkana til að leggja enn meira á sig svo allt rati á réttan stað á nýju heimili. Þegar fjölskyldumeðlimir leggjast á eitt og hjálpa til við flutninga er sjálfsagt að halda matarveislu þegar allt er komið á sinn stað í íbúð- inni. Með góðum mat er alltaf hægt að gleðja þá hjálpsömu. Svo er gott að hafa í huga að bjóða fram hjálp sína næst þegar aðrir þurfa á að halda. Alltaf er ánægjulegt þegar fólk býður fram aðstoð sína án þess að vera beðið um það. Turnbyggingin þar sem ríkasti maður Indlands býr. DÝRASTA HEIMILI Í HEIMI Dýrasta heimili í heimi er 27 hæða turnblokk í Mumbaí á Indlandi. Turninn er í eigu ríkasta manns Indlands og fjórða ríkasta manns í heimi, Mukesh Ambani. Hann býr í þessum merkilega turni ásamt konu sinni og þremur börnum. Gólfflötur hússins er meiri en í Versalahöll. Starfsfólkið á heimilinu er um sex hundruð manns. Þetta dýrasta íbúðarhús í heimi er metið á 630.000.000 breskra punda. Byggingin er afar sérstök en eins og gefur að skilja er hún eingöngu búin lúxushúsgögnum og listaverkum. Í húsinu er líkamsræktarstöð, bíósalur, níu lyftur og bílastæðahús fyrir 160 bíla á sex hæðum. Á þakinu er lendingarpallur fyrir þyrlu. Her- bergi og stofur eru óteljandi. Í húsinu en einnig að finna fallega garða á svölum. Fjölskyldan býr á efstu hæðunum með útsýni yfir borgina. Þá eru nokkrar gestaíbúðir í blokkinni. Í þessari óvenjulegu byggingu er að sjálfsögðu stór sundlaug. Mukesh Ambani er stærsti eig- andi Reliance Industries Limited í Indlandi. Hann rekur meðal annars olíuhreinsunarstöð. FLEIRI BROTTFLUTTIR EN AÐFLUTTIR Brottfluttir íslenskir ríkis- borgarar voru 4.135 í fyrra, 2.156 karlar og 1.979 konur. Á sama tíma fluttu 2.824 íslenskir ríkis- borgarar til landsins. Sambæri- legur fjöldi flutti af landi brott árið 2010 eða 4.340. Ef miðað er við árin fyrir hrun hefur brottflutningur íslenskra ríkisborgara aukist umtals- vert en árið 2006 fluttu 3.042 frá landinu og 2005 voru þeir 2.975. Árið 2009 kom mesti kippurinn en þá flutti 4.851 af landi brott. Brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.847 í fyrra en aðfluttir 2.754. Til samanburðar voru aðfluttir erlendir ríkisborg- arar 9.318 árið 2007. Í 2012

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.