Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 28
15. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR20
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. íþrótt, 6. úr hófi, 8. þvottur, 9.
farvegur, 11. kringum, 12. bit, 14. enn
lengur, 16. tveir eins, 17. þjálfa, 18.
eyrir, 20. persónufornafn, 21. könnun.
LÓÐRÉTT
1. plan, 3. pot, 4. peningar, 5. óðagot,
7. fáskiptinn, 10. gras, 13. útsæði, 15.
kvið, 16. missir, 19. kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. golf, 6. of, 8. tau, 9. rás,
11. um, 12. glefs, 14. áfram, 16. tt, 17.
æfa, 18. aur, 20. ég, 21. próf.
LÓÐRÉTT: 1. torg, 3. ot, 4. lausafé,
5. fum, 7. fálátur, 10. sef, 13. fræ, 15.
maga, 16. tap, 19. ró.
Töff naflahringur
skiptir höfuð-
máli fyrir dömur
nútímans!
Glitrandi
naflaskart
lætur þig
skína af
kynþokka
og
sjálfsöryggi!
Sömuleiðis
leggur það
áherslu á
kven-
leikann!
Hvað
finnst þér?
Uuuu... eru
þeir til í stærri
stærðum?
Hæ, mamma.
Ertu fyrir
framan tölvu?
Já, af
hverju?
Ertu til í að opna orðabók
á netinu, fletta upp orðinu
„stimamjúkur“ og segja mér
hvað það þýðir.
Segðu mér fyrst
að þú sért ekki
að hringja úr
bókasafninu.
Drífa sig! ég
verð ekki að
læra hérna í
allan dag!
Dauðarefsing gullfiskanna
Mamma!
má ég pissa
hérna?
Nei! þú
drepur
blómin!
Í alvöru?
Þetta virðist vera
happadagurinn ykkar,
páskaliljur!
Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að dvelja í Þýskalandi í rúma viku. Þar
fékk ég lærða fyrirlestra um umhverfis-
mál og hvernig væri hægt að koma í veg
fyrir að jörðin yrði allt að því óbyggileg.
Vissulega var ekki allt í þessum drama-
tíska stíl, sorpflokkun, vel einangruð hús
og góð gluggahönnun til að spara raf-
magnsljós komu einnig við sögu. Félaga
okkar frá Maldíveyjum fannst hins vegar
málið ansi brýnt; enda verða eyjarnar
óbyggilegar innan ekki of langs tíma ef
ekki tekst að draga úr hlýnun jarðar.
HEIM kominn skellti ég mér í íslensku
umræðuna. Af hverju hafði ég nú misst
dveljandi í landi þýðverskra? Jú, svo
virðist sem Abdul Mohamed Matheen,
Maldívingurinn knái, eigi marga þján-
ingarbræður hér heima. Raunar svo
marga að landhreinsun virðist líkleg á
stórum hlutum, svo helst má líkja við hug-
myndir um flutninga íslensku þjóðarinn-
ar á jóskar heiðar. Ríkisstjórn Íslands er
nefnilega í krossferð gegn öllum þeim
sem hafa einhverjar tekjur af einhverju
því sem tengist fiski, svo segja mér
auglýsingar allavega.
STJÓRNINNI virðist þannig umhug-
að um að þurrka út byggð víða um
land og sérstaklega virðist henni
uppsigað við sjómannsfjölskyldur.
Ljóst er að Mannréttindadómstóll
Evrópu mun hafa mikið að gera í framtíð-
inni, verði fiskveiðifrumvörp stjórnarinn-
ar að veruleika. Trauðla eru til merki um
jafn umfangsmikil mannréttindabrot og
virðast í uppsiglingu, ef marka má auglýs-
ingar útgerðarmanna.
ÞÁ virðist ráðherra sjávarútvegsmála,
sem á lögheimili á Langanesi, vera
umfram um að níðast á landsbyggðinni.
Hann hefur skipað sér í hóp hins ógurlega
Reykjavíkurvalds sem virðist eiga sér þá
ósk heitasta að nærast á landsbyggðinni og
því sem þar blómstrar.
ÓNEITANLEGA var sérkennilegt að koma
aftur í þessa umræðu, en kannski var
bjartsýni að búast við öðru. Þegar kemur
að því að tala fyrir málstað sínum hafa
staðreyndir aldrei þvælst fyrir Íslending-
um. Íslendingum lætur vel að koma sér
fyrir í tveimur kappliðum, horfa á fulltrúa
sinn glíma við andstæðinginn og vona að
klofbragð felli hann að lokum. Jafnglími
er skömm.
EN eins og samkomuleg þjóða heimsins
þarf til að Abdul félagi minn geti notið
heimilis síns og boðið börnum sínum upp
á slíkt hið sama, þarf samkomulag til að
við getum notið þess sem land vort býður
okkur að búa við. Er ekki til einhver skyn-
samlegri leið að því samkomulagi en brigsl
um persónulegar árásir í fjölmiðlum?
Abdul og útgerðin