Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 28
15. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. íþrótt, 6. úr hófi, 8. þvottur, 9. farvegur, 11. kringum, 12. bit, 14. enn lengur, 16. tveir eins, 17. þjálfa, 18. eyrir, 20. persónufornafn, 21. könnun. LÓÐRÉTT 1. plan, 3. pot, 4. peningar, 5. óðagot, 7. fáskiptinn, 10. gras, 13. útsæði, 15. kvið, 16. missir, 19. kyrrð. LAUSN LÁRÉTT: 2. golf, 6. of, 8. tau, 9. rás, 11. um, 12. glefs, 14. áfram, 16. tt, 17. æfa, 18. aur, 20. ég, 21. próf. LÓÐRÉTT: 1. torg, 3. ot, 4. lausafé, 5. fum, 7. fálátur, 10. sef, 13. fræ, 15. maga, 16. tap, 19. ró. Töff naflahringur skiptir höfuð- máli fyrir dömur nútímans! Glitrandi naflaskart lætur þig skína af kynþokka og sjálfsöryggi! Sömuleiðis leggur það áherslu á kven- leikann! Hvað finnst þér? Uuuu... eru þeir til í stærri stærðum? Hæ, mamma. Ertu fyrir framan tölvu? Já, af hverju? Ertu til í að opna orðabók á netinu, fletta upp orðinu „stimamjúkur“ og segja mér hvað það þýðir. Segðu mér fyrst að þú sért ekki að hringja úr bókasafninu. Drífa sig! ég verð ekki að læra hérna í allan dag! Dauðarefsing gullfiskanna Mamma! má ég pissa hérna? Nei! þú drepur blómin! Í alvöru? Þetta virðist vera happadagurinn ykkar, páskaliljur! Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að dvelja í Þýskalandi í rúma viku. Þar fékk ég lærða fyrirlestra um umhverfis- mál og hvernig væri hægt að koma í veg fyrir að jörðin yrði allt að því óbyggileg. Vissulega var ekki allt í þessum drama- tíska stíl, sorpflokkun, vel einangruð hús og góð gluggahönnun til að spara raf- magnsljós komu einnig við sögu. Félaga okkar frá Maldíveyjum fannst hins vegar málið ansi brýnt; enda verða eyjarnar óbyggilegar innan ekki of langs tíma ef ekki tekst að draga úr hlýnun jarðar. HEIM kominn skellti ég mér í íslensku umræðuna. Af hverju hafði ég nú misst dveljandi í landi þýðverskra? Jú, svo virðist sem Abdul Mohamed Matheen, Maldívingurinn knái, eigi marga þján- ingarbræður hér heima. Raunar svo marga að landhreinsun virðist líkleg á stórum hlutum, svo helst má líkja við hug- myndir um flutninga íslensku þjóðarinn- ar á jóskar heiðar. Ríkisstjórn Íslands er nefnilega í krossferð gegn öllum þeim sem hafa einhverjar tekjur af einhverju því sem tengist fiski, svo segja mér auglýsingar allavega. STJÓRNINNI virðist þannig umhug- að um að þurrka út byggð víða um land og sérstaklega virðist henni uppsigað við sjómannsfjölskyldur. Ljóst er að Mannréttindadómstóll Evrópu mun hafa mikið að gera í framtíð- inni, verði fiskveiðifrumvörp stjórnarinn- ar að veruleika. Trauðla eru til merki um jafn umfangsmikil mannréttindabrot og virðast í uppsiglingu, ef marka má auglýs- ingar útgerðarmanna. ÞÁ virðist ráðherra sjávarútvegsmála, sem á lögheimili á Langanesi, vera umfram um að níðast á landsbyggðinni. Hann hefur skipað sér í hóp hins ógurlega Reykjavíkurvalds sem virðist eiga sér þá ósk heitasta að nærast á landsbyggðinni og því sem þar blómstrar. ÓNEITANLEGA var sérkennilegt að koma aftur í þessa umræðu, en kannski var bjartsýni að búast við öðru. Þegar kemur að því að tala fyrir málstað sínum hafa staðreyndir aldrei þvælst fyrir Íslending- um. Íslendingum lætur vel að koma sér fyrir í tveimur kappliðum, horfa á fulltrúa sinn glíma við andstæðinginn og vona að klofbragð felli hann að lokum. Jafnglími er skömm. EN eins og samkomuleg þjóða heimsins þarf til að Abdul félagi minn geti notið heimilis síns og boðið börnum sínum upp á slíkt hið sama, þarf samkomulag til að við getum notið þess sem land vort býður okkur að búa við. Er ekki til einhver skyn- samlegri leið að því samkomulagi en brigsl um persónulegar árásir í fjölmiðlum? Abdul og útgerðin

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.