Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 30
15. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR22 22 menning@frettabladid.is Nám sem nýtist þér! SKRIFSTOFU- OG FJÁRMÁLAGREINANÁM NÁM FYRIR FULLORÐIÐ FÓLK Upplýsingar veitir fagstjóri viðskipta- og fjármálagreina í síma 594 4000/824 4114. Netfang inga.karlsdottir@mk.is Skrifstofubraut I Staðbundið nám, tvær annir. Höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar. nslutímiKen frá kl. 8:20 – 13:00. rnám, þrjár annir.Fja Kennt í lotum. 50+ Hagnýtt nám fyrir þá sem eru komnir yfir fimmtugt, vilja styrkja sig í lífi og starfi eða taka að sér ný verkefni. Office Skills Programme for foreigners Nám á skrifstofubraut fyrir þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Sales and Service Programme for foreigners Nám á verslunarbraut fyrir þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Skrifstofubraut II Staðbundið nám, kennslutími frá kl. 8:20 – 13:00. Fjarnám, þrjár annir. Kennt í lotum. Viðurkenndur bókari Námið skiptist í þrjá hluta; A) reikningshald, b) skattskil og upplýsingakerfi og c) raunhæft verkefni. Námið er ein önn og undirbýr nemendur fyrir próf á vegum efnahags- og viðskiptaráðuneytisins til Viðurkennds bókara skv. 43. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald. NÝTT NÝTT kransæðastíflu, til þátttöku í klínískri lyfjarannsókn á fyrirbyggjandi meðferð gegn hjarta- og æðaáföllum. Megintilgangur rannsóknarinnar er að meta hvort rannsóknarlyfið canakinumab hafi betri verkun en lyfleysa til að draga úr hjarta- og æðatengdum áföllum, eða nýmyndun á sykursýki af tegund 2, hjá sjúklingum sem hafa fengið kransæðastíflu, eru í stöðugu ástandi en með hækkað hsCRP. Aðalrannsakendur eru Axel F. Sigurðsson, Karl K. Andersen og Torfi F. Jónasson, allir sérfræðingar í lyf- og hjartalækningum. Rannsóknin verður framkvæmd á eftir- farandi stöðum:  Hjartamiðstöðinni, Holtasmára 1, 201 Kópavogi  Landspítala háskólasjúkrahúsi við Hringbraut, 101 Reykjavík  Læknasetrinu Þönglabakka 1 og 6, 109 Reykjavík Um 17.200 einstaklingar munu taka þátt í rannsókninni víðs vegar um heiminn, þar af allt að 300 hér á landi. Þátttaka varir að hámarki í 6 ár. Rannsóknin er slembiröðuð samanburðarrannsókn við lyfleysu. Það þýðir að þátt- takendur fá annað hvort rannsóknarlyfið canakinumab eða lyfleysu. Lyfleysa er notuð í klínískum rannsóknum til að koma í veg fyrir að tilviljun eða væntingar hafi áhrif á niðurstöður. Líkurnar á að þátttakandi fái rannsóknarlyfið eru 3 af 4 og líkurnar á að fá lyfleysu eru 1 af 4. Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins, bæði þekktum og ófyrirséðum. Ekki er hægt að tryggja að þátttakendur fái lang- varandi bata af meðferð með rannsóknarlyfinu. Ekki verður greitt fyrir þátttöku en læknisskoðun, rannsóknir og eftirlit verður þátttakendum að kostnaðarlausu. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, vinsamlegast hafðu samband við hjúkrunar- fræðinga rannsóknarinnar á eftirfarandi rannsóknarsetrum  Hjartamiðstöðin í síma  Landspítali-háskólasjúkrahús í síma Tekið skal fram að þeir sem svara auglýsingunni hafa ekki skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Taki þeir þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni. Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiðanefndar, Persónuverndar og Lyfja- stofnunar. Óskað er eftir sjálfboðaliðum, einstaklingum sem fengið hafa Hvað felur rannsóknin í sér? Frekari upplýsingar milli kl. 8.30 og 16.00 550 3040 825 3581 Hefur þú fengið kransæðastíflu? Kór Langholtskirkju flytur Messías eftir Händel í Lang- holtskirkju næstkomandi sunnudag. Kammersveit Lang- holtskirkju leikur, konsertmeistari er Ari Þór Vilhjálms- son og stjórnandi Jón Stefánsson. Einsöngvarar eru allir úr röðum kórfélaga en sú hefur verið stefna kórsins frá árinu 2008 þegar fækkað var í kórnum og kröfur um kunnáttu stórhertar. Þetta er í 24 skipti sem kórinn syngur Messías á tón- leikum frá árinu 1981. Messías er eitt mesta kórverk tón- bókmenntanna og sennilega er ekkert verk flutt jafn oft. Händel samdi það á þremur vikum árið 1741 og haft var eftir honum að þegar hann lauk við Hallelújakórinn hafi hann verið yfirkominn af geðshræringu. Tónleikarnir hefjast klukkan átta. Messías í Langholtskirkju KÓR LANGHOLTSKIRKJU Flytur Messías í 24. sinn næsta sunnudag. Danski kvikmyndaleik- stjórinn Per Fly hyggst gera framhald myndarinn- ar um Pelle sigurvegara. Kvikmyndin um Pelle sigurveg- ara, sem óx upp í sárri fátækt á Borgundarhólmi, var frumsýnd fyrir 25 árum. Myndin færði á sínum tíma leikstjóranum, Bille August, bæði Gullpálmann í Cannes 1988 og Óskarinn fyrir bestu erlendu myndina 1989. Danski kvikmyndaleikstjórinn Per Fly hyggst nú gera framhald myndarinnar en Fly er þekktast- ur fyrir myndir sínar Bænken, Arven og Drabet sem mynda nokkurs konar þríleik. Mynd Bille August byggðist á fyrsta bindi samnefndrar skáld- sögu eftir Martin Andersen Nexø en sagan telst meðal sígildra danskra skáldverka. Per Fly, kvikmyndaframleið- andinn Meta Louise Foldager og Kenneth Plummer, fyrrverandi útvarpsstjóri hjá DR, vinna nú að því að tryggja sér kvikmynda- réttinn að síðari bindunum þrem- ur. Handrit myndarinnar verður í höndum Svíans Peter Birro. Enn er ekki afráðið hversu mörg af síðari bindum sögunn- ar verða lögð til grundvallar í myndinni en aðstandendurnir segja að um sé að ræða stórmynd um Pelle þegar hann kemur til Kaupmannahafnar og baráttu verkamanna fyrir réttindum sínum. Myndin hefur þegar fengið handritsstyrk frá dönsku kvik- myndamiðstöðinni upp á 100.000 danskar krónur og DR mun einn- ig þegar hafa látið í ljós áhuga á að styðja verkefnið. Enn er þó alveg óljóst hvenær myndin verður frumsýnd. Framhaldsmynd um Pelle sigurvegara PELLE HEVNEGAARD Hevnegaard hlaut mikið lof fyrir túlkun sína á Pelle sigurvegara í mynd Bille August. SNORRI OG ÁSGEIR Á KEXI Tónlistarmennirnir Snorri Helgason og Ásgeir Trausti leiða saman hesta sína í Gym og Tónik salnum á Kex Hosteli við Skúlagötu á uppstigningardag, 17. maí. Húsið opnar klukkan 20.30 og tón- leikarnir hefjast stundvíslega klukkan 21. Miðasala verður einungis við dyrnar en miðaverð er 1.500 krónur. Kór Laugarneskirkju heldur tón- leika í Laugarneskirkju við Kirkju- teig á miðvikudag undir yfirskrift- inni: Sunnan yfir sæinn ... Efnisskráin er fjölbreytt og spannar allt frá gömlum þjóðlög- um til nýlegra íslenskra dægur- laga og djasslaga, auk tónlistar úr kirkjum og kvikmyndum. Stjórnandi er Gunnar Gunn- arsson organisti, sem einnig ann- ast píanóundirleik með aðstoð strengja- og málmblásturshljóð- færaleikara. Gunnar hefur útsett fjölda laganna sjálfur. Kór Laugarneskirkju er skipað- ur áhugafólki í bland við menntað tónlistarfólk og hefur undir stjórn Gunnars getið sér gott orð fyrir vandaðan og hljómþýðan flutning á fjölbreyttri tónlist við kirkjuleg- ar athafnir og á tónleikum. Ein- söngvari á tónleikunum er Ragn- heiður Sara Grímsdóttir. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Suður yfir sæinn GUNNAR GUNNARSSON Stjórnar kór Laugarneskirkju og leikur undir á píanó. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.