Fréttablaðið - 15.05.2012, Page 34
15. maí 2012 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
SIGURBERGUR SVEINSSON skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Hauka en hann hefur dvalið
í atvinnumennsku í Þýskalandi og Sviss síðustu tvö árin. Liðsstyrkurinn er mikill fyrir Hauka enda Sigurbergur
öflug skytta sem hefur fengið dýrmæta reynslu með íslenska landsliðinu síðustu árin.
#BESTASÆTIÐ
KR-ÍBV
Pepsi deildin í beinni, aðeins á Stöð 2 Sport!
Í KVÖLD KL. 19.45
PEPSI MÖRKIN kl. 22:00
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Eini þátturinn þar sem farið er yfir alla leiki, mörk og tilþrif með
helstu knattspyrnufræðingum þjóðarinnar; allt í opinni dagskrá!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Reykjav.
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Asaki VERKFÆRI
ALB10DAS 10,8V Li-Ion
Bor/skrúfvél 1,4Ah 30Nm
14.890,-
ALM18DD 18V höggborvél
Li-Ion 2,8Ah 38Nm 2 hraðar
41.890,-
AR636 18V Skrúfvél
Ni-Cd 2,0Ah 158Nm
18.890,-
AV224 620W höggborvél
SDS & herðslupatróna
13.900,-
693 150W Pússvél AB
185mm93x
.890,-5
ALM14DF 14,4V Li-Ion
herðsluskrúfvél
2,8Ah 135Nm
36.890,-
ALM18DB 18V Li-Ion
orvél 2,8Ah / 38Nmb
39.990,-
ATH: Tvær rafhlöður,
taska og hraðvirkt
hleðslutæki fylgir
hverri hleðsluvél!
***** 5 stjörnu verkfæri
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í fót-
bolta stendur í stórræðum í mán-
aðarlok þegar liðið mætir tveimur
öflugum knattspyrnuþjóðum sem
eiga það sameiginlegt að vera þá
á fullu í lokaundirbúningi sínum
fyrir EM í sumar. Þetta eru jafn-
framt fyrstu leikir íslenska liðsins
undir stjórn Lars Lagerbäck þar
sem hann hefur aðgengi að nánast
öllum bestu knattspyrnumönnum
þjóðarinnar. Lars Lagerbäck til-
kynnti hópinn sinn í gær og hann
er alveg óhræddur við að mæta
stórþjóðum eins og Frakklandi og
Svíþjóð og fagnar því að fá alvöru
próf á mannskapinn.
Mjög mikilvægir leikir fram undan
„Þetta eru augljóslega mjög
mikilvægir leikir eins og allir vin-
áttulandsleikir. Þetta er tækifæri
til að vinna með leikmönnunum
og skipulegggja hvernig liðið spil-
ar. Hver leikur er því mjög mikil-
vægur en síðan er alltaf hægt að
ræða hver styrkleiki mótherjanna
eigi að vera. Að mínu mati er best
að prófa sig á móti mjög sterkum
þjóðum og nú fáum við tækifæri til
þess,“ sagði Lars Lagerbäck.
Smá forföll í hópnum
Lars getur ekki alveg valið úr
öllum bestu mönnunum. Grét-
ar Rafn Steinsson og Skúli Jón
Friðgeirsson eru báðir meiddir
og þá verða þeir Emil Hallfreðs-
son, Arnór Smárason og Indriði
Sigurðsson uppteknir með sínum
liðum á sama tíma og leikirnir fara
fram.
Norska deildin er í gangi á sama
tíma og í fyrstu ætlaði Lars ekki
að velja leikmenn sem spila í Nor-
egi en þeir Stefán Logi Magn-
ússon, Bjarni Ólafur Eiríksson,
Birkir Már Sævarsson og Björn
Bergmann Sigurðarson koma inn
í hópinn fyrir leikinn við Svía.
Lars valdi markvörðinn Ögmund
Kristinsson í Frakkaleikinn til að
kynnast landsliðsumhverfinu en
auk Ögmundar er varnarmaður-
inn Hólmar Örn Eyjólfsson nýliði
í hópnum.
„Ég skil það vel að stuðnings-
menn íslenska landsliðsins séu
óánægðir með slaka stöðu Íslands
á FIFA-listanum. FIFA-listinn fer
ekki að skipta máli fyrr en eftir
tvö ár þegar hann ræður styrk-
leikaröðun fyrir næstu undan-
keppni. Auðvitað á íslenska lands-
liðið að vera mun hærra en ég vona
að allir sýni þessu smá þolinmæði
og við getum farið að vinna leiki
og mjaka okkur upp listann. Ég
held að Ísland verði miklu hærra
á FIFA-listanum eftir tvö ár.“
Lars taldi það rétt að velja ekki
Eið Smára Guðjohnsen í hópinn
þrátt fyrir að hann sé farinn að
spila á ný með AEK Aþenu en
ætlar að funda með Eiði í sumar.
Lars ræddi nokkra leikmenn
á fundinum og þá sérstaklega þá
Ara Frey Skúlason og Eyjólf Héð-
insson sem hafa ekki verið fasta-
menn í landsliðinu undanfarin ár.
Lars hefur það eftir góðum mönn-
um í Svíþjóð að Ari Freyr væri
kominn í hóp bestu miðjumanna í
sænsku deildinni og að menn hefðu
líka verið að benda honum á Eyj-
ólf Héðinsson. Lagerbäck sá Eyjólf
síðan spila á dögunum og heillað-
ist það mikið af stráknum að hann
valdi hann í liðið.
Fagnar endurkomu Kolbeins
Lars fagnaði líka endurkomu Kol-
beins sem hann hefur einungis
talað við í síma. Hann er þó ekki
viss um hversu mikið Kolbeinn
getur spilað í þessum tveimur
leikjum enda að stíga upp úr erfið-
um meiðslum. Lars er líka spennt-
ur fyrir að prófa hinn stórefnilega
Björn Bergmann Sigurðarson sem
kemur inn í hópinn fyrir Svíaleik-
inn.
Auðvelt að velja fyrstu fimmtán
„Ég get ekki sagt að það hafi verið
erfitt að velja hópinn að þessu
sinni og ef ég segi alveg eins og
er þá var það frekar auðvelt. Það
er mín reynsla af landsliðum að
það er alltaf mjög auðvelt að velja
fimmtán fyrstu leikmennina og
þá skiptir ekki máli hvort þú ert
í Nígeríu, Svíþjóð eða á Íslandi.
Það er hópur sem er örlítið betri
en hinir. Það er erfiðast að velja
í síðustu sætin því þá eru margir
leikmenn svipaðir að getu,“ sagði
Lars og bætti við:
„Þetta er ungt og reynslulítið
landslið en þarna eru ungir leik-
menn eins og Kolbeinn og Gylfi
sem hafa mikla reynslu. Ég hef
ekki valið eldri leikmenn eins og
[Hermann] Hreiðarsson og [Heið-
ar] Helguson en þeir eru enn að
spila. Ef þeir eru að spila vel og
þessir strákar sem ég valdi núna
eru ekki að standa sig eins vel og
ég vonaði þá geta þeir komið inn
í hópinn í haust. Ef við teljum að
þeir séu betri en þessir strákar þá
vel ég þá. Dyrnar eru alltaf opnar
fyrir góða fótboltamenn svo fram-
arlega sem þeir eru með íslensk
vegabréf,“ sagði Lars.
ooj@frettabladid.is
Verðum miklu ofar eftir tvö ár
Lars Lagerbäck valdi í gær 24 manna hóp fyrir vináttuleiki við Frakka og Svía. Hann ákvað að velja ekki
Eið Smára í hópinn að þessu sinni en hefur hrifist mikið af Ara Frey Skúlasyni sem hann telur vera orðinn
einn besta miðjumanninn í Svíþjóð. Hólmar Örn Eyjólfsson og Ögmundur Kristinsson eru nýliðarnir.
ÓHRÆDDUR VIÐ EM-ÞJÓÐIRNAR Lars Lagerbäck er ánægður með að fá að prófa íslenska landsliðið á móti sterkum þjóðum sem
eru á leiðinni á EM í sumar. Hér kynnir hann liðið ásamt aðstoðarmanni sínum Heimi Hallgrímssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Landsliðshópur Lagerbäck
Íslenska liðið mætir Frökkum 27. maí
og Svíum þremur dögum síðar. Lars
Lagerbäck valdi 24 leikmenn fyrir þessa
tvo leiki en 4 eru ekki í fyrri leiknum.
Markverðir:
Gunnleifur Gunnleifsson FH
Hannes Þór Halldórsson KR
Ögmundur Kristinsson* Fram
Stefán Logi Magnússon** Lilleström
Varnarmenn:
Hjálmar Jónsson IFK Göteborg
Ragnar Sigurðsson FCK
Sölvi Geir Ottesen FCK
Hjörtur Logi Valgarðsson IFK Göteborg
Hallgrímur Jónasson SönderjyskE
Hólmar Örn Eyjólfsson Bochum
Birkir Már Sævarsson** Brann
Bjarni Ólafur Eiríksson** Stabæk
Miðjumenn:
Aron Einar Gunnarsson Cardiff
Helgi Valur Daníelsson AIK
Kári Árnason Aberdeen
Jóhann Berg Guðmundsson AZ
Alkmaar
Rúrik Gíslason OB
Eggert Gunnþór Jónsson Wolves
Ari Freyr Skúlason Sundsvall
Sóknarmenn:
Birkir Bjarnason Standard Liege
Kolbeinn Sigþórsson Ajax
Alfreð Finnbogason Helsingborg
Gylfi Þór Sigurðsson Swansea
Eyjólfur Héðinsson SönderjyskE
Björn Bergmann Sigurðars.** Lilleström
* er bara í hópnum gegn Frakklandi
** er bara í hópnum gegn Svíþjóð