Fréttablaðið - 15.05.2012, Síða 35

Fréttablaðið - 15.05.2012, Síða 35
ÞRIÐJUDAGUR 15. maí 2012 27 FÓTBOLTI Stjarnan vann sinn fyrsta sigur í vetur er þeir mættu Kefla- vík suður með sjó. Halldór Orri Björnsson skoraði eina mark leiks- ins úr umdeildri vítaspyrnu. „Ég var mjög ánægður með strákana sem börðust allan tím- ann en því miður var einn maður sem eyðilagði leikinn fyrir okkur og það var dómarinn. Mér fannst hann vera mjög slakur. Hann gaf þeim víti og sleppti svo augljósu víti sem við áttum að fá er Hilmar Geir var tekinn niður,“ sagði Zoran Daníel Ljubicic, þjálfari Keflavík- ur, en hann var mjög ósáttur við Kristin Jakobsson dómara. Eina mark leiksins kom úr víti sem Kennie Chopart fiskaði. Skipt- ar skoðanir voru á vítaspyrnudóm- inum og Ómar Jóhannsson, mark- vörður Keflvíkinga, sagði að aldrei hefði átt að dæma víti. Kristinn dæmdi leik liðanna í fyrra og þá slapp Keflavík við að fá á sig dæmt augljóst víti við litla hrifningu Stjörnumanna. „Mér fannst vera sett of mikil pressa á Kristin í fjölmiðlum út af því sem gerðist í fyrra og það mátti greinilega ekki gerast aftur. Ég er ekki sáttur við Kidda og mér fannst hann líka gefa okkur of mjúk spjöld. Mér fannst halla verulega á okkur því miður.“ Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, var alls ekki sam- mála því að það hefði hallað á Kefl- víkinga hjá Kristni dómara sem stóð sig vel að mati blaðamanns þó erfitt væri að meta vítaspyrnu- dóminn úr stúkunni. „Mér fannst Keflvíkingarnir á köflum vera alveg á mörkunum hvað grófleika varðar. Þeir tuðuðu mikið og mótlætið fór svolítið í pirrurnar á þeim. Heilt yfir fannst mér þetta samt vel dæmdur leik- ur,“ sagði Bjarni en hvað fannst honum um vítaspyrnudóminn? „Markvörðurinn fer klárlega í hann og þetta er spurning um hvort hann hafi verið búinn að sparka boltanum og allt áður. Við fengum svona víti á okkur síðast og stundum segja menn að þetta jafni sig út yfir sumarið.“ - hbg KEFLAVÍK 0-1 STJARNAN 0-1 Halldór Orri Björnsson, víti (5.) Nettóvöllurinn, áhorf.: Um 700. Dómari: Kristinn Jakobsson (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 4–10 (2–3) Varin skot Ómar 2 – Ingvar 2 Horn 4–3 Aukaspyrnur fengnar 14–13 Rangstöður 6–3 Keflavík 4–3–3 Ómar Jóhannsson 6 – Grétar Atli Grétarsson 4 (79., Bojan Stefán Lubicic -), Haraldur Fr.Guðmundsson 6, Gregor Mohar 6 – Jóhann R. Benediktsson 5 – Einar Orri Einarsson 5, Frans Elv- arsson 4, Arnór I. Traustason 6 – Hilmar G. Eiðsson 5 (79., Magnús Sv. Þorsteins. -), Jóhann B. Guðm. 6, Guðm. Steinarsson 5 (70., Sigurbergur Elíss. 5). Stjarnan 4–3–3 Ingvar Jónsson 7 – Jóhann Laxdal 6, – Baldvin Sturluson 6 (85., Sindri Sigurþ. -), Alex- ander Scholz 6, Hilmar Hilmarss. 6 – Atli Jóhannss. 6 (46., Gunnar Jónss. 6), Snorri P. Blöndal 5, Mads Laudrup 4 – *Kennie Chopart 7 (62., Darri Konr. 5), Halldór O. Björnsson 7, Garðar Jóhannsson 6. Meira í leiðinniWWW.N1.IS GERÐU HJÓLIÐ KLÁRT FYRIR SUMARIÐ 20% AFSLÁ TTUR ÚT M AÍ* C o m m an d er II Pi lo t R o ad 3 * GILDIR AF ÖLLUM MÓTÓRHJÓLADEKKJUM ALLT SPORTIÐ Á ÞÍNUM HEIMAVELLI FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag Keflvíkingar ósáttir við Kristin Jakobsson eftir tap fyrir Stjörnunni: Dómarinn eyðilagði leikinn ÞRJÚ STIG Halldór Orri Björnsson skoraði sigurmark Stjörnumanna í gær úr víta- spyrnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.