Fréttablaðið - 17.05.2012, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 17. maí 2012 11
Sameinuðu þjóðirnar hafa
útnefnt 2012 ár endur-
nýjanlegrar orku fyrir alla.
Á meðal þeirra stofnana
og fyrirtækja sem vinna
að útbreiðslu hennar er
IRENA, en það stendur fyrir
The International Rene-
wable Energy Agency, eða
Alþjóðastofnun um endur-
nýjanlega orku. Aðalstöðvar
hennar eru í Abu Dhabi, en
í Bonn er að finna Nýsköpunar- og
tæknimiðstöð stofnunarinnar sem
er undir stjórn Dolfs Gieden.
Alls hafa 158 lönd skuldbundið
sig starfi IRENA, en
aðildarþjóðirnar eru 93,
þar með talið Ísland.
Alls er hlutdeild endur-
nýjanlegra orkugjafa í
heildarorkunotkun
heimsins 16%, en stefnt
er að því að auka hann í
30% árið 2030. Í tölunni
16% eru ekki taldar stórar
vatnsaflsvirkjanir, þar sem
nokkur deila er um hvort
þær falli undir endurnýjanlega
orkugjafa.
„Við hjá IRENA lítum á stórar
vatnsaflsvirkjanir sem endur-
nýjanlega orkugjafa, en það gera
það ekki allir. Þetta fer þó eftir því
hve umfangsmikil umhverfisspjöll
fylgja þeim. Séu þau of mikil teljast
vatnsafslvirkjanirnar ekki endur-
nýjanlegur orkugjafi,“ segir Gieden.
Ljóst er að mikill vaxtarbroddur
er í þessum geira og fjárfesting í
honum hefur aukist frá 30 millj-
örðum árið 2003 í 260 milljarða
árið 2011. Mismikið verkefni er fyrir
höndum, en til að mynda er stefnt
að því að helmingur allrar orku í
Afríku komi úr endurnýjanlegum
orkugjöfum árið 2030. Það er ekki í
fjarlægri framtíð, heldur eftir 18 ár.
vegna umhverfiseiginleika þeirra,
ekki endilega besti mælikvarðinn
á umhverfisvitund heillar þjóðar.
Ekki frekar en heimsókn gesta á
Hið íslenska reðasafn gefur endi-
lega rétta mynd af áhuga Íslendinga
á typpum. Og þó.
En rannsóknarblaðamönnum ber
að rýna á bak við tjöldin og kom-
ast að hinu sanna og það skal gert.
Verst að allur þessi aspas brenglar
beittan huga.
Engu að síður er það staðreynd að
umhverfisvitund Þjóðverja er mikil,
enda hefur landið þurft að glíma við
þá staðreynd að vera ekki sjálfu sér
nægt um orku. Sorpflokkun er á svo
háu stigi að við Potsdamer Platz er
ruslið flokkað í 19 flokka. Pappírinn
í sex.
Stjórnvöld standa einnig fyrir
fjölmörgum verkefnum sem ýta
undir þessa vitund og þar er orku-
nýting lykilorðið.
20-30/20/20 markmiðið
Leiðtogaráð Evrópusambandsins
setti sér árið 2007 markmið um að
árið 2020 verði búið að draga úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda
um 30%. Það er háð því að önnur
lönd geri slíkt hið sama, en vilji þau
ekki spila með ætlar ESB að draga
úr útblæstrinum um 20%, miðað við
árið 1990. Það ár á hlutur endurnýj-
anlegra orkugjafa að nema 20 pró-
sentum og orkunýting á að hafa auk-
ist um 20 prósent.
Orkunýting er ekki hugtak sem
Íslendingar þekkja vel. Hér er hug-
arfarið enn þá að nóg sé af ódýrri
orku og því þurfi ekki að spara. Við
þurfum þó að fara að huga að þess-
um málum, því sem aðilar að EES-
samningnum hafa þessar tilskipanir
einnig áhrif á okkur.
Hvað Evrópusambandið varðar er
orkunýting eitt af lykilstefnumálun-
um. Hins vegar er ljóst að ef ekki
verður gripið til róttækra aðgerða
mun markmiðið aðeins nást til hálfs
árið 2020.
Ekkert sótspor
Þýsk stjórnvöld hafa staðið fyrir
ýmsum átökum varðandi endur-
nýjun húsa með það að markmiði
að spara orku, en 40 prósent af not-
endaþörf orkunnar er í byggingar-
iðnaðinum. Í því skyni hafa þau sett
sér það háleita markmið að bygg-
ingar í Þýskalandi skuli vera nán-
ast hlutlausar í loftslagsmálum árið
2050. Að þær skilji ekki eftir sig
neitt sótspor, frá þeim komi engar
gróðurhúsalofttegundir.
Það þýðir að draga þarf úr hita-
þörfinni um 20% árið 2020 og frum-
orkuþörfinni um 80% árið 2050.
Stjórnvöld bjóða upp á styrki til
endurnýjunar, og í DENA, Deutsche
Energie-Agentur GmbH (Orkustofn-
un Þýskalands), sem er fyrirtæki í
eigu stjórnvalda og nokkurra banka,
er hægt að sækja um aðstoð, styrki
og hagstæð lán.
Mjög algengt er að fólk komi sér
upp sólarrafhlöðum, en betri ein-
angrun og þétting glugga eru þó
algengust.
ORKUSTOFNUN Þýska orkustofnunin er einkafyrirtæki en að helmingi í eigu ríkisins.
Flókið? Vissulega, en um samvinnuverkefni ríkisins og nokkurra banka er að ræða.
DOLF GIEDEN
Stórar vatnsaflsvirkjanir endurnýjanlegar?
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Við bjóðum
betri stöðu
Greiddu niður yfirdráttinn
á aðeins 9,05% vöxtum
Þegar þú semur við Íslandsbanka um að greiða niður yfirdráttinn lækkum við
vextina. Þannig lækkar vaxtakostnaður svo um munar.
Þetta er einhver besti sparnaður sem völ er á.
Dæmi:
Ef þú greiðir 360.000 kr. yfirdrátt niður um 15 þúsund kr. á mánuði í 24
mánuði þá sparar þú 51.023 kr. í vaxtakostnað.*
Þú færð nánari upplýsingar á islandsbanki.is og hjá ráðgjafa í þínu útibúi.
*Miðað við að yfirdráttarvextir lækki úr 11,8% (Gullvild) í 9,05% (þrepalækkun) skv. vaxtatöflu 1. maí.
Lægri vaxtaprósenta skilar 10.312 kr. lækkun og lækkandi yfirdráttur 40.711 kr. – samtals 51.023 kr.
Lægri vaxtakostnaður
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Á MORGUN:
Sjálfbæra þorpið Feldheim
1. grein af 4