Fréttablaðið - 17.05.2012, Síða 12
17. maí 2012 FIMMTUDAGUR12 12
nánar á visir.is Umsjón:
MILLJARÐUR KRÓNA var mis-
munur útflutnings og innflutnings vara
á árinu 2011.
97,1
Yann Tiersen á Listahátíđ
www.listahatid.is
31. maí / 3.900 kr.
24. – 28. 8. 2012
Time for business –
Nútíma innanhússhönnun, tíska heimilisvara, góðar
gjafahugmyndir og skartgripir – allt fyrir haust-,
vetrar- og jólainnkaupin sem leggja línurnar fyrir
strauma og stefnur komandi vors.
Tendence – hápunktur vörusýninga seinni helming
ársins sem spannar heimilið og gjafavöru:
Fleiri en 2.000 sýningaraðilar frá öllum heimshornum,
nýjungar á hönnunarsviði og sérsýningar sem veita
innblástur.
tendence.messefrankfurt.com
dimex@dimex.dk
Sími: +45 39 40 11 22
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands kynnti í gær þá ákvörðun
sína að hækka vexti bankans um 0,5
prósentustig. Þá kynnti bankinn nýja
hagspá sem gerir ráð fyrir talsvert
meiri verðbólgu og ívið meiri hag-
vexti á næstu misserum en fyrri spá
bankans. Vikið er að hvoru tveggja
í rökstuðningi nefndarinnar fyrir
vaxtahækkuninni.
Í yfirlýsingu peningastefnunefnd-
ar segir að verðbólguhorfur hafi
versnað frá síðustu vaxtaákvörðun í
febrúar, að nokkru leyti vegna veik-
ingar gengis krónunnar. Nefndin
ítrekaði að eftir því sem efnahags-
batanum vindi fram verði nauðsyn-
legt að halda áfram að draga úr slaka
peningastefnunnar. Þá mátti greina
harðari tón en áður í yfirlýsingunni
þar sem segir að lokum að dragi ekki
úr verðbólgu á næstu mánuðum verði
að óbreyttu ekki komist hjá frekari
hækkun nafnvaxta.
Ákvörðun peningastefnunefndar-
innar var í takti við spár greiningar-
aðila sem höfðu reiknað með 0,25 til
0,5 prósentustiga hækkun. Ávöxtun-
arkrafa allra óverðtryggðra skulda-
bréfaflokka hækkaði þó á mörkuðum
í gær sem bendir til þess að markaðs-
aðilar hafi talið nokkrar líkur á 0,25
prósentustiga hækkun eða að harðari
tónn nefndarinnar hafi aukið vænt-
ingar um frekari hækkanir.
Samhliða kynningu á vaxtaákvörð-
uninni gaf Seðlabankinn út nýtt ein-
tak Peningamála. Þar kemur fram að
þrátt fyrir nafnvaxtahækkun tvisvar
á árinu hafi raunvextir bankans lækk-
að frá áramótum.
Í Peningamálum er einnig birt ný
hagspá bankans. Þar er gert ráð fyrir
að hagvöxtur verði 2,6% á þessu ári
og svipuðum vexti 2013 og 2014. Er
það lítillega hærri spá en bankinn
kynnti í febrúar. Sem fyrr telur bank-
inn að aukin fjárfesting verði helsti
aflvaki hagvaxtar á næstu misser-
um en framlag einkaneyslu er einnig
nokkurt. Telur bankinn að fjárfesting
aukist um 12,4 prósent á þessu ári og
einkaneysla um 3,2 prósent.
Seðlabankinn metur horfur um
atvinnuleysi svipaðar og í síðustu
hagspá. Áætlað er að það verði 6,3
prósent að meðaltali á þessu ári en
verði komið niður í 4,9 próesnt að
meðaltali árið 2014. magnusl@frettabladid.is
Stýrivextir Seðlabankans hækkaðir á ný
Vextir Seðlabanka Íslands voru í gær hækkaðir um 0,5 prósentustig. Yfirlýsing peningastefnunefndar bendir til þess að frekari hækk-
anir séu á næsta leiti. Í nýrri hagspá bankans er spáð hærri verðbólgu og ívið meiri hagvexti en áður.
Í nýjustu Peningamálum Seðlabankans er varað við því að slakað verði á aðhaldi í ríkisfjármálum.
Þar segir að miðað við nýjustu áætlanir náist jöfnuður í ríkisrekstri nokkru seinna en gert hafi verið
ráð fyrir í fyrri áætlun. Þá sé vaxandi þrýstingur á ný útgjaldaáform sem hætt sé við að aukist enn
eftir því sem nær dregur þingkosningum á næsta ári. Þá segir í ritinu: „Svigrúm stjórnvalda er hins
vegar afar lítið enda hið opinbera mjög skuldsett. Sakir hafta á fjármagnshreyfingar býr hið opinbera
við lægri vexti en skuldsetning þess gæfi gefið tilefni til. Þegar höftin verða afnumin hverfur þetta
skjól. Því er afar mikilvægt að það verði nýtt til að draga úr lánsfjárþörf.“
Óttast útgjaldaáform á kosningaári
ÞÓRARINN OG MÁR Aðalhagfræðingur Seðlabankans og seðlabankastjóri kynntu hagspá bankans og ákvörðun
peningastefnunefndar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Daníel Svavarsson, forstöðumaður hag-
fræðideildar Landsbankans, spurði Má
Guðmundsson seðlabankastjóra á kynn-
ingarfundi bankans í gær hvort sú háa,
almenna verðbólga sem nú sjáist endur-
spegli að bankinn hafi gert mistök með því
að hækka vexti of hægt. Már svaraði að
sagan myndi leiða í ljós hvort orðið hefðu
hagstjórnarmistök og bætti síðar við að
það væri í það minnsta ljóst í ljósi nýrrar
ákvörðunar peningastefnunefndarinnar að
vextir hefðu verið of lágir upp á síðkastið.
Hagstjórnarmistök?
Arion banki hækkaði í gær fasta
vexti á óverðtryggðum lánum,
sem hann býður, um 0,5 prósent
í 7,5 prósent. Samkvæmt upplýs-
ingum frá bankanum er hækkunin
bein afleiðing þess að stýrivextir
Seðlabanka Íslands voru hækk-
aðir um jafn marga punkta. Þegar
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti
sína um 0,25 prósent í mars þá
hækkuðu allir bankar sem bjóða
upp á fasta vexti á óverðtryggðum
lánum í samræmi við þá hækkun.
Auk Arion banka eru það Lands-
bankinn og Íslandsbanki.
Vaxtahækkun Seðlabankans
mun auk þess hafa samstundis
áhrif á mánaðarlegar greiðslur
óverðtryggðra lána með breyti-
legum vöxtum. Landsbankinn,
Íslandsbanki og MP banki bjóða
upp á slík lán. Ákvarðanir um
vaxtabreytingar á þeim eru meðal
annars teknar með hliðsjón af
vaxtaákvörðun Seðlabankans.
Fjármálaeftirlitið (FME) birti
í fyrradag samantekt sem sýndi
hversu hratt greiðslur óverð-
tryggðra lána geta hækkað. Með
því vildi eftirlitið vekja athygli
neytenda á næmi greiðslubyrði
slíkra lána, sérstaklega í kjölfar
stýrivaxtahækkana. Í samantekt-
inni er vakin athygli á því að á síð-
astliðnum 18 árum hafi stýrivextir
verið á bilinu 4,25 til 18 prósent.
Bankinn hafi á tímabilinu „hafið
hækkunarferli sem staðið hefur
frá þremur mánuðum upp í rúm
fjögur ár, en hækkunarferli er
skilgreint sem tvær eða fleiri
hækkanir í röð“. - þsj
Stýrivaxtahækkun hefur bein áhrif á afborganir:
Óverðtryggðir vextir
húsnæðislána hækka