Fréttablaðið - 19.05.2012, Síða 30

Fréttablaðið - 19.05.2012, Síða 30
19. maí 2012 LAUGARDAGUR30 Þ egar vinkonurnar Linda Mjöll Þorsteinsdóttir, Berg- rós Hjálmarsdóttir, Ólafía Kristjánsdóttir og Hildur Sif Kristborgardóttir fá sér gönguferð niður Lauga- veginn taka allir eftir þeim. Ekki eingöngu vegna þess að þær eru glæsilegur hópur, heldur vegna þess að allar eru þær alskreyttar húðflúri. Þær eru löngu búnar að venjast því að horft sé á þær. Þær segja flesta horfa af forvitni, margir hrósi þeim, en stöku manneskja líti þær hornauga. Hildur: Áður fyrr voru tattúin tengd við dópneyslu og glæpa- menn og maður verður stundum var við þessa tengingu enn þá. Sumir fylgjast ekki með og vita ekki hvað þetta er orðið algengt. Linda: Þetta hefur gjörbreyst. Dagmamman þín og tannlækn- irinn eru örugglega með tattú. Við erum bara venjulegar konur sem viljum fegra líkama okkar. Ég, til dæmis, hvorki reyki né drekk og er góð fyrirmynd fyrir börnin mín í alla staði, þó að ég sé með flúr. Hildur: Við erum flestar mömmur. Allar ósköp eðlilegar og ekkert úti á djamminu um allar helgar. Við hugsum vel um börnin okkar, komum heim til okkar eftir vinnudaginn, eldum kvöldmat og skutlum á æfingar eins og annað fólk. Linda: Mér finnst einfaldlega ofsalega fallegt að vera svona skreytt. Ég fer í sund og horfi á ykkur hin sem eruð ekki með flúr og mér finnst þið vera allsber. Má ekki bjóða þér að taka mynd af mér? Allar hafa þær fengið spurninguna hvort þær sjái ekki eftir þessu og enn fleiri spyrja hvað þær ætli eiginlega að gera, þegar þær verði gamlar og húðin farin að gefa eftir. Linda: Ég held ég fái mér bara fleiri flúr þegar ég verð orðin gömul! Mér finnst flúrin mín æðisleg í dag og mér á eftir að finnast það þá líka. Það er bara þannig. En þetta hvetur mann til að hugsa vel um sig og líta vel út. Það er alltaf verið að horfa á þig. Bergrós: Ég verð helst vör við að eldri konur í sundi horfi á mig. Ég hef spurt þær hvort þær vilji ekki bara taka mynd af mér, þær horfa svo mikið. Þetta finnst mér dónaskapur. En reyndar fæ ég líka rosalega mikið af hrósi. Meira af því heldur en eitthvað neikvætt. Ólafía: Margar stelpur á mínum aldri spyrja hvort ég sjái ekki eftir þessu. Mér finnst það skrítin spurning. Ég sé ekki eftir neinu. Einu sinni smakkað, þú getur ekki hætt Stelpurnar tengjast í gegnum tattústofuna Reykjavík Ink á Frakkastíg 7, en Linda rekur hana ásamt manni sínum, Össuri Hafþórssyni. Tilvonandi eiginmaður Bergrósar er meðeigandi að Reykjavík Ink, Ólafía er þar starfsmaður og Hildur er trygg- ur kúnni og vinur eigendanna. Þær segja allar að tattúin þeirra séu lífsstíll, enda voru þær ungar þegar þær þróuðu fyrst með sér smekk fyrir þeim. Bergrós: Ég byrjaði að hafa áhuga á þessu þegar ég var átta ára. Bróðir pabba míns kom í heimsókn og var nýbúinn að fá sér tattú og mér fannst það svo kúl. Ég spurði mömmu strax þá hvort ég mætti fá. Þegar ég var þrettán ára stalst ég svo til að fá mér jurtatattú á mjóbakið, sem átti að fara af eftir nokkur ár. En það fór náttúrulega aldrei af og ég lét tattúvera yfir það seinna. En strax þá vildi ég bara meira og meira. Ólafía: Þetta er svona „einu sinni smakkað, þú getur ekki hætt“. Mitt fyrsta var í september 2009, ég stóð á ákveðnum tímamótum þá og ákvað að fá mér tattú. Það er ljóð ofan á rist- inni, sem ég samdi fyrir litla bróður minn. Mig langaði í tattú þegar ég var fimmtán ára – eins og allar vinkonur mínar – en pabbi bannaði mér það. Ég er eiginlega fegin í dag, að hafa hlýtt honum, því ég ætlaði að fá mér tribal-sól á mjóbakið. Hildur: Ég fékk mér fyrsta flúrið sextán ára, annað fjórum árum seinna og svo dreka á bakið árið 2002. Þegar ég fékk mér drekann, sem er svolítið stór, héldu margir að ég væri orðin klikkuð. Svona stór tattú voru ekki algeng á konum þá. Svo tók ég mér smá pásu og fór aftur af stað fyrir um fjórum árum. Ég hætti ekkert úr þessu. Linda: Þetta virkar þannig að þú byrjar að hugsa um næsta flúr á meðan verið er að flúra þig. Eins og krakkar í nammilandi á tattúfestivalinu Engin þeirra er hætt að safna og þær er allar við það að missa nætursvefn af eftirvæntingu, en þann 7. til 9. júní eru væntan- legir til Íslands nokkrir heimsklassa húðflúrarar sem munu taka þátt í tattúfestivali í Reykjavík. Það eru Linda og eigin- maður hennar, Össur, sem skipuleggja það, en þau eru eigendur Reykjavík Ink. Þær ætla allar að láta bæta við flúri þá. Linda: Þetta er í sjöunda sinn sem við höldum þessa hátíð. Við erum að fá hingað flotta tattúlistamenn sem koma alls staðar að úr heiminum. Í portinu hjá Bar 11 verðum við með risastórt veislutjald, sem verður í raun eins og risastór tattústofa. Þang- að kemur alls konar fólk á öllum aldri, forvitið fólk sem vill bara skoða og aðrir sem ætla að fá sér flúr. Þú bara kemur inn og hefur úr aragrúa af artistum að velja. Artistinn teiknar svo fyrir þig á staðnum og þú ferð beint í flúr. Hildur: Þetta er ótrúlega skemmtileg helgi. Fyrir okkur sem erum í tattúunum er þetta eins og fyrir krakka í nammilandi. Mann langar að fá sér tattú hjá þeim öllum. Enga karlmenn án húðflúrs, takk Bergrós: Mér finnst bara það flottasta í heimi að sjá stráka með „sleeve“ [þegar allur handleggurinn er tattúveraður]. Hildur: Ég á reyndar óflúraðan kærasta, en hann verður það ekki mikið lengur. Hann langar reyndar í tattú og ég gaf honum það í afmælisgjöf, svo nú er hann bara að ákveða hvað hann ætlar að fá sér. Ólafía: Ég held bara að ég myndi ekki vilja eiga óflúraðan kærasta. FRAMHALD Á SÍÐU 32 Sumar konur stara í sturtunni Sífellt algengara verður að konur skreyti líkama sinn með stórum og áberandi listaverkum. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir og Valgarður Gíslason ljósmyndari hittu vinkonurnar Hildi, Lindu, Bergrósu og Ólafíu sem allar eru forfallnir húðflúrsafnarar. SVARTHVÍT Ólafía sker sig úr hópnum að því leyti að hennar tattú eru öll svarthvít. RÓSIR OG FIÐRILDI Flest tattú Bergrósar eru á upphandleggnum og niður eftir bakinu. MERKT BÖRNUNUM Linda Mjöll er með nöfn barna sinna fjögurra á hægri kálfanum. ÓSKÖP VENJULEGAR STELPUR Þær Hildur Sif Kristborgardóttir, Linda Mjöll Þorsteinsdóttir, Bergrós Hjálmarsdóttir og Ólafía Kristjánsdóttir segjast vera ósköp venjulegar stelpur sem finnst fallegt að skreyta líkama sinn. Þær ætla allar að bæta við sig mörgum húðflúrum enn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.