Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 46
29. júní 2012 FÖSTUDAGUR30
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Við þungarokkararnir getum líka látið gott af
okkur leiða,“ segir Þráinn Árni Baldvinsson úr
rokksveitinni Skálmöld.
Handsmíðaður gítar af tegundinni Fender
sem Þráinn ætlar að spila á í sumar, meðal
annars í Þýskalandi og á hátíðinni Eistnaflugi,
verður seldur á uppboði í á tónleikunum Rokk-
jötnar í Kaplakrika í september. Allur ágóðinn
rennur til samtakanna Blátt áfram. Listakonan
Ýrr Baldursdóttir tók að sér að skreyta gítarinn
endurgjaldslaust. „Hún fílar Skálmöld og hún
var mjög ánægð með að fá að skreyta gítarinn í
tengslum við það sem við erum að gera,“ segir
Þráinn. Á gítarnum verða tilvísanir í plötuna
Baldur og væntanlega plötu Skálmaldar sem
fjallar um börn Loka.
Hljóðfærahúsið og Fender gefa gítarinn en
verkefnið er unnið í samstarfi við Tuborg. „Mér
finnst þetta ótrúlegur heiður. Það er svolítið
sérstök tilfinning að einhver vilji græja fyrir
mann gítar og síðan bjóða hann upp,“ segir Þrá-
inn.
„Við ætlum að safna handa góðu málefni og ef
einhvern virkilega vantar gítar þá er algjörlega
málið að bjóða í þennan sérhannaða gítar. Við
létum græja hann í Bandaríkjunum og eftir að
ég prófaði hann vildi ég ekki sleppa honum. Ætli
ég verði ekki að bjóða sjálfur í hann.“ - fb
Gítar Skálmaldar boðinn upp
SKREYTTUR GÍTAR Þráinn Árni Baldvinsson og Ýrr Baldursdóttir með
nýskreyttan gítarinn.
„Það er allavega eitt lag sem
fær mig alltaf til þess að
dansa og það er Blister in the
Sun með Violent Femmes.“
Sigrún Lýðsdóttir, hönnuður Eyelove
Horses
„Það var mjög spennandi að fylgj-
ast með uppboðinu,“ segir fata-
hönnuðurinn Vera Þórðardóttir
en jakki sem hún hannaði og popp-
stjarnan Lady Gaga klæddist seld-
ist á dögunum fyrir 17.500 dollara,
eða rúmar 2,2 milljónir íslenskra
króna.
Það var uppboðsskrifstofan
Juliens Auction sem bauð jakk-
ann upp í samvinnu við Veru sem
hafði lengi hugsað sér að jakkinn
yrði safngripur.
Jakkinn hefur verið eftirsótt-
ur frá því að Lady Gaga klædd-
ist honum, þegar hún kom fram á
góðgerðasamkomu með Elton John
árið 2010. „Jakkinn hefur verið á
ferð og flugi milli sýninga um
allan heim á síðustu árum og mig
langaði til að framtíð hans yrði á
safni eða hjá safnara sem kynni
að meta og færi vel með jakk-
ann. Hann er úr viðkvæmu efni
og má því ekki verða fyrir miklu
hnjaski,“ segir Vera.
Uppboðsskrifstofan Julien´s
Auctions er ein sú stærsta í Holly-
wood og sér um að bjóða upp fatn-
að og hluti stjarnanna. Skrifstof-
an hefur meðal annars séð um að
bjóða upp muni Michaels Jack-
son, Madonnu og búslóð söngvar-
ans Meatloaf. Skrifstofan taldi að
jakkinn færi á milli 4-6.000 doll-
ara en sú upphæð hækkaði umtals-
vert. „Ég gat fylgst með uppboðinu
því það fer fram bæði á netinu og á
staðnum hjá þeim. Það var súrreal-
ísk tilfinning að sjá töluna hækka
og hækka en mér skilst að það hafi
verið um 20-30 manns að bjóða í
hann,“ segir Vera sem veit þó ekki
hver er nýr eigandi jakkans.
En hversu mikið af söluverðinu
fellur í hennar hlut? „Ég veit það
VERA ÞÓRÐARDÓTTIR: SKILST AÐ 20-30 MANNS HAFI BOÐIÐ Í JAKKANN
Lady Gaga-jakkinn sleginn
á rúmar 2 milljónir króna
„Þetta er heilmikið og spennandi verkefni,“
segir Barði Jóhannsson tónlistarmaður en
sveit hans og söngkonunnar Keren Ann, Lady
& Bird, mun semja tónlistina við nýja heim-
ildarmynd Frakkans Luc Jacquet, Once Upon
a Forest.
Jacquet er hvað frægastur fyrir heimildar-
myndina March of the Penguins sem hlaut
meðal annars Óskarinn árið 2005 í flokki
heimildarmynda. Tökur á nýju myndinni eru
hafnar, en hún fjallar um vistkerfi regnskóg-
anna.
„Framleiðslufyrirtækið hafði samband við
okkur fyrir tveimur mánuðum og bað okkur
um þetta. Luc hafði þá heyrt klassíska píanó-
tónlist sem ég gaf út á netinu í Frakklandi í
fyrra sem leiddi hann áfram að Lady & Bird,“
segir Barði, sem fékk að lesa handritið og
heillaðist um leið. „Þetta er heimildarmynd
um regnskóga en eins og hann er þekktur
fyrir verður þessi heimildarmynd með ákveð-
inni sögu.“
Myndin verður frumsýnd haustið 2013 en
henni er dreift af Disneynature. Barði á von
að þau Keren Ann hefjist handa við að semja
í haust en þar sem myndin er í fullri lengd er
því um mikla vinnu að ræða. Barði hefur und-
anfarið fengist mikið við kvikmyndatónlist og
segir það ágætis jafnvægi við popptónlistina.
„Ég hef rosalega gaman af því og fæ ákveðna
útrás í þeirri vinnu,“ segir Barði en nóg er
að gera hjá honum þessa dagana. Hann er að
semja tónlist við sjónvarpsþættina Pressu 3
og heimildarmynd um tónlistarhúsið Hörpu.
Svo er von á nýrri EP-plötu með Lady & Bird
með haustinu. - áp
Semja tónlist fyrir Óskarsverðlaunahafa
SEMJA KVIKMYNDATÓNLSIT Dúettinn Lady & Bird
semur tónlist við heimildarmyndina Once Upon a
Forest frá Bonne Pioche og Luc Jacquet, sem unnu
Óskarinn fyrir March of the Penguins árið 2005.
ekki enn þá og er að bíða eftir að
heyra frá þeim en á von á því að ég
fái einhvern skerf af þessu,“ segir
Vera hógvær. „Annars finnst mér
bara magnað að einhver skuli vera
tilbúinn að meta vinnuna manns
svona mikið. Það gefur manni
hvatningu til að halda áfram.“
Vera er nýflutt heim frá Lond-
on þar sem hún lærði fatahönnun
í Istituto Marangoni. Hún hefur
komið sér fyrir í stúdíói ásamt
Hönnu Felting en þær halda opið
hús í stúdíói sínu næstkomandi
fimmtudag að Laugavegi 168.
alfrun@frettabladid.is
JAKKINN FRÆGI
Jakkinn er úr viðkvæmu efni og
hefur verið eftirsóttur síðan Lady
Gaga klæddist honum á tónleikum
árið 2010. Vera Þórðardóttir veit
ekki er hinn heppni eigandi
jakkans er en á von á að hún
fái hlut af söluverðinu sjálfu.