Alþýðublaðið - 26.02.1924, Page 1
tlt af Alþýöufloldnmm
1924 Eflriðjudaginn 26. febrúar. 48. tölubiað.
Leikfélag Reyktavikur.
Æfintýriö,
gamanleikur 1 þremur þáttum éftir Caillevet de Flers
og Etienne Rey, verður ieiklð í Iðnó mlðvikudaginn 27.
þ. m. kl. 8 siðdegis. — Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag
(þriðjud.) kí. 4—7 og á miðvikudag kí. 10—1 og eftir kl. 2.
Terkakvennafélagið „Framsökn“
heldur fund í Bárunni (uppi) miðvikudagskvöldið 27. íebr. kl. 8x/2.
Mörg mál á dagskrá, er urðu að bíða á siðasta fundi. Skorað er á
konur að ijölmenna! Stjörnin.
Erlend símskejtL
Khöfn 25. febr.
Trúlofnn.
Frá Róm er símað: Krónprins
ítala, Umberto prinz af Piedcnont,
og|María prinzessa, dóttir Alberts
Belgjakonungs, hafa birt trúlofun
sína.
Skattalög Frakka samþykt.
Frá París er símað: Neðri deild
franska þingsins heflr iagt fulln-
aðarsamþykki sitt á öll skatta-
lagaírumvörp stjórnarinnar. Var
um i 00 atkvæða meiri hluti með
frumvörpunum,
Tekjnafgangnr Breta.
Frá Lundúnum er símað: Á
þeim“hluta yflrstandandi fjárhags-
árs ríkissjóðsins brezka, Bem lið-
inn er, hetir tekjuafgangurinn orðið
50 milljónir sterliugspunda. Vetður
honum samkvæmt venju varið til
þess að afborga ríkisskuldirnar.
Hafnarverkfallið
heldur enn Þá áfram í nokkrum
höfnum. Höíðu vinnuveitendur boð-
ist til að hækka kaupið um einn
shilling strax og svo einn shilling
aftur í mai, en þessu hafa margir
verkamenn ekki viljað hlíta og
krefjast þess, að kaupið verði
hækkað að fullu þegar í stað. Bú-
ast menn á hverjum degi við, að
hafnarverkfallinu ljúki.
— Eimskipafélagið fókk skeyti
í gærkveldi frá afgreiðslu sinni í
Leith, og er það svo hljóöandi:
Sættir hafa náðst í verkfallsmálínu,
og hafnarverkamenn byrja aftur
að vinna á morgun.
Jarðarfer dr. Jóns Þorkela-
sonar þjóðskjalavarðar fór fram
í gær við mjög fjölmenna fylgd
bæjármanna.
Brennivínseldur.
Á tólfta tfmanum á laugar-
dagskvöldið safnaðist fólk sam-
an á horninu við Bargstaða-
stræti. Hávaði, óp og formæling-
ar giumdu við frá efri hæð eins
hússins, sem tór sívaxandi, svo
að margir nærstí ddir hugðu, að
hliðar þess myndu þá og þegar
bresta sundur. Kona húsráðanda
hafði sent til lögreglunnar og
beðið hanahjáipir, ogréðsthún
til inngöngu f húsið bakdyra-
megln. Lægði þá ósköpin smátt
og smátt. Að nokkrum tfma
liðnum koma út úr húsinu um
20 manns, sem fiestir voru meira
©g minna ölváðir, — sumir óðir
og ataðir blóði. Fiest voru það
ungir menn og ©ftir búningi að
dæma, s«m munu ætia að gegna
embættisstörfum landsins. Sá, ér
harðast mun hafa orðið úti 1 við-
ureign þessari, var einn af nú-
verandi þjónum ísiandsbanka;
svo hart var hann f þettá sinn
leikinn af Bskkusi sterka ©g
þjónum hans, að leiða þurftl
hann af tvelm rrönnum út úr og
frá húsino. I>að mun vera sjald-
i gæft, að kalla þurfi á lögregl-
Hallor Halisson
tannlæbnír
heflr opnað tannlækningastofu í
Kirkjustræti 10 niðri. Sími 1503.
Tiðtalstími kl. 10-4.
Sími heima, Thorvaldsensstræti 4,
nr. 866.
Erindi
um blik mannsins (>auruna«)
með skuggamyndum flytur séra
Jakob Kristinsson í Iðnó í kvöld
ki. 8V2. Aðgöngumiðar á krónu
seidir i ísafold og við inngaqg-
inn éftir kl. 7.
Lími undir gúmmístígvél og
annast allar gúmmíviðgerðir.
Losnar aidrei. — Gúmmívinnu-
stofan Frakkastíg 12.
una tii að reka >gesti< á dyr úr
>prívat<-húsum, eihs og átti sér
stað síðast liflið laugardagskvöid,
en einhvers staðar verða vondar
kindur áð vera.
Civil.