Fréttablaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 4
29. september 2012 LAUGARDAGUR4
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
24°
19°
17°
13°
18°
16°
13°
13°
27°
14°
25°
20°
31°
13°
18°
22°
12°Á MORGUN
10-15 m/s NV- og SA-til,
annars hægari.
MÁNUDAGUR
Stífur vindur NV-til
annars víða 5-10 m/s.
5
5
5
7
7
7
7
3
3
1
9
8
7
5
3
10
3
2
2
1
2
4
6 4
5
8 9
10
8
6 6
7
HELGARLÆGÐ
Við fáum lægð upp
að landinu síðdegis
og þá gengur í
stífa austanátt við
suðurströndina
með rigningu undir
kvöld. Hvasst um
tíma allra syðst
í nótt. Dregur úr
vindi og vætu á
morgun en stífur
vindur norðvestan
til.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík-
ur hefur dæmt 56 ára íþróttanudd-
ara, Sverri Hjaltason, í tveggja ára
fangelsi fyrir nauðgun.
Sverrir er sakfelldur fyrir að
hafa stungið fingri sínum inn í leg-
göng viðskiptavinar í miðjum nudd-
tíma í júní síðastliðnum. Konan var
þangað komin til að leita sér aðstoð-
ar vegna verkja í mjóbaki. Maður-
inn viðurkenndi að fingur hans
hefði farið inn í leggöng konunnar,
en sagði að það hefði verið óvart.
Hann hefði verið að nudda nálægt
kynfærasvæði hennar eins og eðli-
legt væri en húðin hefði verið sleip
undan kremi og því hefði fingurinn
runnið inn í leggöngin.
Sérfróðir meðdómendur mátu það
svo að þessi frásögn stæðist ekki.
Ekki eigi að nudda við kynfæra-
svæði til að laga verki í mjóbaki
og það viti reyndur íþróttanuddari
á borð við Sverri. Enn fremur sé
ekki trúverðugt að reyndur nuddari
„missi“ fingur inn í leggöng. Sverrir
er dæmdur til að greiða henni 800
þúsund krónur í bætur. - sh
STJÓRNSÝSLA Sveinn Arason ríkisendurskoð-
andi vísar því alfarið á bug að hann beri ábyrgð
á trúnaðarbresti sem hafi orðið á milli Ríkis-
endurskoðunar og Alþingis. Meirihluti fjárlaga-
nefndar Alþingis samþykkti á fundi sínum í gær
að senda fjáraukalög næsta árs ekki til Ríkis-
endurskoðunar, eins og venja er, og bar meðal
annars við trúnaðarbresti.
„Ég hef ekki brotið trúnað gagnvart þeim,“
segir Sveinn. „Það er nefndin sem býr til þenn-
an trúnaðarbrest, ekki ég. Það hefur aldrei
verið trúnaðarbrestur á milli Ríkisendurskoð-
unar og fjárlaganefndar.“
Sveinn vildi ekki svara þeirri spurningu
hvort hann hygðist segja af sér í ljósi þeirrar
gagnrýni sem Ríkisendurskoðun hefur sætt
undanfarna daga síðan Kastljós greindi frá
skýrsludrögum stofnunarinnar um útgjöld rík-
isins vegna Oracle, bókhalds- og mannauðskerfi
ríkisins.
Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaga-
nefndar, segir ákvörðunina til komna vegna
þeirra gagna sem komið hafa í ljós á undan-
förnum dögum og hafa verið til hjá Ríkisendur-
skoðun árum saman. „Þau eru býsna þung og
alvarleg. Það var rekið á eftir því að fá þau gögn
í hendur og alltaf voru þau „rétt að koma“. Svo
er það á endanum einhver starfsmaður stofn-
unarinnar sem fær bara nóg og ákveður að láta
fjölmiðla fá þessi gögn sem reynast síðan býsna
alvarleg. Það er trúnaðarbrestur fyrir þingið
sem fól Ríkisendurskoðun þessa vinnu.“
Björn Valur ætlast til þess að forsætisnefnd
Alþingis taki málið fyrir hið fyrsta, en Ríkis-
endurskoðun heyrir undir hana.
„Það er ekki hægt að búa við að traust ríki
ekki á milli ríkisstofnana og Alþingis,“ segir
hann. Ákvörðun nefndarinnar muni ekki tefja
vinnuna við fjáraukalögin. Henni verði annað-
hvort skilað án umsagnar Ríkisendurskoðun-
ar, eða með hennar áliti, breytist forsendurnar
þannig að trausti verði á ný komið á.
„Það er enn mörgum spurningum ósvarað í
þessu máli og við munum halda áfram að leita
svara við þeim.“ sunna@frettabladid.is
GENGIÐ 28.09.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,2957
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,37 123,95
199,90 200,88
159,52 160,42
21,396 21,522
21,671 21,799
18,911 19,021
1,5881 1,5973
190,23 191,37
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Kanínan hefur ekki þegnrétt
Í forsíðufrétt á fimmtudag sagði að
kanínan væri orðinn hluti af villtri
fánu Íslands, en það er mat Ævars
Petersen, sérfræðings við Náttúru-
fræðistofnun Íslands. Í fréttinni sagði
enn fremur að kanínan væri búin að
vinna sér þegnrétt í íslenskri náttúru
og var Ævar hafður fyrir því mati. Það
voru orð blaðamanns en ekki Ævars.
Á þessu er auðvitað grundvallar-
munur, og sagði jafnframt í niðurlagi
fréttarinnar að NÍ liti á kanínur sem
framandi tegund hér á landi. Það mat
stendur og er skoðun Ævars.
ÁRÉTTING
•
Sagði fingur sinn óvart hafa runnið inn í leggöng viðskiptavinar:
Nuddari í tveggja ára fangelsi
Sálfræðingur sem mat konuna segir hana sýna einkenni þess að hafa orðið
fyrir líkamsárás, nauðgun, stórslysi eða hamförum. Hún hafi líklega upplifað
ógn, ótta, hjálparleysi, svik og niðurlægingu. Hún hafi verið kvíðin og döpur,
glímt við svefntruflanir og og ekki getað haldið áfram námi. Sjálf kvaðst hún
ekki geta sinnt vinnu eða heimilisstörfum og aðrir báru að hún væri grát-
gjörn, uppstökk og ætti erfitt með að vera úti eða í margmenni.
Líf konunnar farið úr skorðum
GRAFA Í Á Ekkert amaði að gröfumanni
sem liðsmenn björgunarsveitarinnar
Héraðs hjálpuðu á þurrt í gær.
LANDSBJÖRG/NIKULÁS
SLYS Gröfumaður var sóttur á bát
þar sem hann hafði fest gröfu
sína úti í Jökulsá í Fljótsdal í
hádeginu í gær. Manninn sakaði
ekki, samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Eftir að kall barst um aðstoð
fór björgunarsveitin Hérað á
Egilsstöðum á staðinn. Liðsmenn
sveitarinnar hinkruðu við eftir
að búið var að bjarga gröfumann-
inum í land til að aðstoða við að
koma taug í gröfuna. Beita þurfti
stórvirkum vinnuvélum til að
koma henni aftur á þurrt. - óká
Festist í Jökulsá í Fljótsdal:
Gröfumaður
sóttur út í á
Trúnaðurinn rofinn á milli
þings og Ríkisendurskoðunar
Ríkisendurskoðun fær fjáraukalögin ekki til umsagnar vegna trúnaðarbrests á milli Ríkisendurskoðunar
og Alþingis. Starfsmaður stofnunarinnar kom gögnum til Kastljóss, að sögn formanns fjárlaganefndar.
SÁTU FYRIR SVÖRUM Fulltrúar Fjársýslu ríkisins sátu fyrir svörum á fundi fjárlaganefndar í gær þar sem vinnu-
brögð vegna úttektar á kostnaði ríkisins við Oracle-kerfið voru rædd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gunnar Hall fjársýslustjóri kom á fund Fjárlaganefndar um málið í gær. Þar kom meðal annars fram að
Gunnar sagðist ekki hafa vitað af skýrsludrögum Ríkisendurskoðunar um kostnað ríkisins vegna Oracle
fyrr en á fundi með Sveini Arasyni ríkisendurskoðanda í maí á þessu ári.
„Hann afhenti mér skýrsluna í lok fundarins með þeim orðum að þetta væri eitthvað sem hefði dregist
allt of lengi og við gætum spjallað um fljótlega,“ sagði Gunnar. Aðspurður hvort þetta hafi verið formleg
beiðni ríkisendurskoðanda um að fá álit Fjársýslunnar á málinu endurtók Gunnar frásögn sína af fund-
inum og skýrði það ekki frekar. Hann ítrekaði þó að hann hefði ekki vitað af skýrslunni fyrr en í maí,
þrátt fyrir að hafa látið Ríkisendurskoðun gögn í té vegna vinnu hennar, sem var gerð að beiðni Alþingis
eins og greint hefur verið frá.
Björn Valur segir sögu Gunnars ekki stemma við það sem fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna
daga.
„Þar er vitnað í að Ríkisendurskoðun hafi rekið á eftir gögnum frá Fjársýslunni árið 2009,“ segir hann.
„Mér fannst mjög óljóst á fundinum í hvaða formi og hvers konar samskipti áttu sér þarna stað. Ég
áttaði mig ekki alveg á því. En það er ljóst að það eru mörg ár síðan Fjársýslan vissi af þessari úttekt.“
„Eitthvað sem við gætum spjallað um“
UTANRÍKISMÁL Bandaríska ríkið
mun opna fyrir skráningu í hina
árlegu Fjölþjóðlegu innflytj-
endaáætlun, sem gengur yfirleitt
undir nafninu Græna korts happ-
drættið, 2. október næstkomandi.
Vinningshafar munu fá ótíma-
bundið landvistarleyfi í Banda-
ríkjunum og geta þar með búið
og unnið löglega í landinu. Á
síðasta ári unnu 15 Íslendingar í
happdrættinu.
Umsóknir í happdrættið skulu
sendar inn á tímabilinu 2. októ-
ber til 3. nóvember. - mþl
Landvistarleyfi í boði:
Brátt dregið
um græn kort