Fréttablaðið - 29.09.2012, Page 8
29. september 2012 LAUGARDAGUR8
SAMFÉLAGSMÁL „Réttarkerfið á
Íslandi virkar vel ekki í kynferð-
isbrotamálum. Það fremur undan-
tekning en hitt
að slíkir dómar
endi með sak-
fellingu,“ segir
Guðrún Jóns-
dóttir, talskona
Stígamóta.
Guðrún v i l l
að stjórnvöld
stofni embætti
sérstaks sak-
sóknara kyn-
ferðisbrotamála til að taka á vand-
anum.
„Með stofnun embættis sérstaks
saksóknara efnahagsbrotamála,
höfum við viðurkennt að það séu
flokkar sem þarf að nýta sérstaka
þekkingu í,“ segir hún. „Af hverju
má það ekki gera slíkt með kyn-
ferðisbrotin?“
Guðrún segir svipuð emb-
ætti hafa skilað góðum árangri
erlendis, meðal annars á Spáni og
í Bandaríkjunum.
Um 250 nauðganir koma inn á
borð Stígamóta og Neyðarmót-
tökunnar á ári. Embætti ríkissak-
sóknara fékk 236 nauðgunarmál
inn á borð til sín á níu ára tímabili;
frá 1997 til 2006. Þar af var ákært
í 76 málum, 26 sakfelld í Héraðs-
dómi og 14 í Hæstarétti.
„Ástandið er óbærilegt eins
og það er og kerfisbreyting gæti
verið eitt af því sem væri reyn-
andi,“ segir Guðrún. „Ég hef því
skorað á stjórnvöld að skoða þetta
mál.“
Ríkissaksóknari hefur tvisvar
sinnum látið gera úttekt á ferlum
nauðgunarmála innan embættis-
ins; annars vegar frá 1997 til 2001
og hins vegar 2002 til 2006. Nýj-
ustu tölur um meðferðir kynferð-
isbrota frá embættinu eru í árs-
skýrslu fyrir árið 2008.
Þar segir að kynferðisbrot séu
að jafnaði um 40 til 50 prósent
þeirra mála sem berast embætt-
inu á ári hverju.
Hvorki náðist í Ögmund Jónas-
son innanríkisráðherra né Sigríði
Friðjónsdóttur ríkissaksóknara í
gær. sunna@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Alþjóðahafrann-
sóknaráðið ICES, leggur til 15,2%
samdrátt í veiðum á makríl árið
2013, umtalsverða aukningu í veið-
um á kolmunna og mikinn sam-
drátt í veiðum á norsk-íslenskri
síld. Þetta kemur fram í ráðgjöf
stofnunarinnar sem birt var í gær.
„Ég tel að endurskoða þurfi mat
Alþjóðahafrannsóknaráðsins á
makrílstofninum og taka tillit til
þess að um árabil fölsuðu ýmsar
Evrópusambandsþjóðir og Norð-
menn aflatölur gróflega. Það hefur
mikil áhrif á stofnmatið og ég tel
óhætt að fullyrða að um verulegt
vanmat sé að ræða,“ segir Friðrik
J. Arngrímsson, framkvæmda-
stjóri LÍÚ, á vef sambandsins.
Lagt er til að makrílveiðar verði
á bilinu 497 til 542 þúsund tonn
árið 2013 á móti 586 til 639 þúsund
tonnum sem ráðlögð voru í fyrra.
Hins vegar er lögð til 64,4%
aukning í veiðum á kolmunna eða
úr 391 þúsund tonnum í 643 þús-
und tonn árið 2013.
Friðrik segir að kolmunnastofn-
inn sé að ná sér vel á strik en því
miður hafi nýliðun í norsk-íslenska
síldarstofninum verið mjög slök á
síðustu árum og hann á hraðri nið-
urleið. Ef stuðst verður við samn-
inga um nýtingaráætlun verður
heimilt að veiða 619 þúsund tonn
af norsk-íslenskri síld árið 2013,
sem er 25,7% samdráttur frá því í
fyrra þegar ráðgjöfin hljóðaði upp
á 833 þúsund tonn.
- shá
Alþjóðahafrannsóknaráðið leggur til að minna sé veitt af makríl og síld:
Vilja minna veitt af makrílnum
MAKRÍLL ICES leggur til fimmtán
prósent minni veiði á makríl árið 2013.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
FRAKKLAND Jean-Marc Ayrault, for-
sætisráðherra Frakklands, segir að
nýr 75 % hátekjuskattur verði lagð-
ur á þá sem hafa meira en milljón
evrur í árstekjur. Það samsvarar
um það bil 160 milljónum króna, eða
rúmlega þrettán milljónum í mán-
aðartekjur.
Þessi 75% skattur á að gilda í tvö
ár, en ekki er reiknað með að hann
skili miklum tekjum í ríkissjóð held-
ur hafi hann fyrst og fremst tákn-
rænt gildi.
Ayrault segir að 90% skattgreið-
enda verði hlíft, en skattur hækki
einungis á tekjuhæstu tíu prósentin.
Hann kynnti í gær fjárlög næsta
árs, sem hann segir vera „baráttu-
fjárlög“, því með þeim eigi að snúa
við skuldasöfnun ríkisins og hefja
niðurgreiðslu skuldanna. Þannig
megi draga úr atvinnuleysi og ýta
af stað hagvexti.
Gagnrýnendur segja hins vegar
að ekki sé í þessum fjárlögum að
finna neinar umbætur í ríkisfjár-
málum eða hvata fyrir atvinnulífið.
Hagvöxtur fari því ekki í gang og
atvinnuleysi muni ekki minnka.
Enginn hagvöxtur hefur verið í
Frakklandi þrjá ársfjórðunga í röð.
Atvinnuleysi er nú í 10,2%. - gb
Ríkisstjórn Frakklands ætlar að láta þá tekjuhæstu taka á sig auknar byrðar:
Skattur auðmanna í 75 prósent
AYRAULT OG CAHUZAC Forsætisráðherra
og fjármálaráðherra Frakklands kynntu
nýju fjárlögin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ATVINNULÍF Ný einkahlutafélög,
sem skráð voru í ágústmánuði,
voru 122 talsins. Þau eru flest í
fasteignaviðskiptum. Til saman-
burðar voru 110 ný einkahlutafélög
skráð í ágúst í fyrra, segir í frétt
Hagstofu Íslands.
Fyrstu átta mánuði ársins var
fjöldi nýskráninga 1.180, en það er
tæplega 7% aukning frá sama tíma
í fyrra þegar 1.105 fyrirtæki voru
skráð. Þá voru 46 fyrirtæki tekin
til gjaldþrotaskipta í ágústmán-
uði, flest í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð. - shá
122 ný ehf. í ágúst:
Gjaldþrotum
fer fækkandi
Vill sér saksóknara
fyrir kynferðisbrot
Talskona Stígamóta vill að stofnað verði embætti sérstaks saksóknara kynferð-
isbrota. Færri nauðganir komu á borð ríkissaksóknara á níu ára tímabili en á
einu ári til Stígamóta. Um helmingur mála ríkissaksóknara eru kynferðisbrot.
SAKSÓKNARI KYNFERÐISBROTAMÁLA? Guðrún Jónsdóttir hefur skorað á stjórn-
völd að stofna embætti sem sér alfarið um rannsóknir á kynferðisbrotamálum
eins og í efnahagsbrotamálum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GUÐRÚN JÓNS-
DÓTTIR
Fjöldi nauðgana og málsmeðferð þeirra
150
100
50
0
1997-2001 2002-2006
■ Alls
■ Ákært
■ Sakfellt í héraðsdómi
■ Sakfellt í hæstarétti
Tilkynntar nauðganir til lögreglu á tímabilinu 2002-2006 voru 334. Tölur fyrir fyrra tímabil voru
ekki gefnar.
HEIMILD: RÍKISSAKSÓKNARI
1. Hvað heita bræðurnir sem oft
eru kenndir við Bakkavör?
2. Hversu hátt hlutfall heimila í
landinu á í fjárhagsvanda?
3. Hvaða sjaldséða teiknimynda-
stjarna lét sjá sig í Smáralind á
fimmtudag?
SVÖR:
1. Ágúst og Lýður Guðmundssynir 2.
Rúmlega 13% 3. Mikki Mús
VEISTU SVARIÐ?
Ástandið er óbærilegt
eins og það er og
kerfisbreyting gæti verið eitt
af því sem væri reynandi.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
TALSKONA STÍGAMÓTA