Fréttablaðið - 29.09.2012, Qupperneq 24
Steingrímur hyggist halda áfram.
„Hann er svo mikil kjölfesta í
sínum flokki og það er varla hægt
að ímynda sér hvað mundi gerast í
þeim flokki ef hann færi. Auðvitað
kemur alltaf maður í manns stað,
en hann er gríðarlega mikið sterki
maðurinn í flokknum.“
Varaformannsslagur
Bjarni Benediktsson
sækist eðlilega áfram
eftir forystu í sínu
kjördæmi, Suðvestur-
kjördæmi, enda er hann formað-
ur flokksins. Áhugavert verður að
fylgjast með prófkjörum flokks-
ins, þar sem Ólöf Nordal varafor-
maður hyggst hætta á þingi. Próf-
kjörin verða því öðrum þræði
slagur um varaformennskuna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, fyrrum varaformaður og ráð-
herra, hyggst einnig hætta í póli-
tík. „Um leið og ég tek ákvörðun
um að gefa ekki kost á mér, hvet ég
gott fólk með sjálfstæðishugsjón-
ina að leiðarljósi til að leggja sig
fram um að byggja upp metnaðar-
fullt og framsækið samfélag. Sér-
staklega hvet ég konur til að taka
virkan þátt og nýta sér það ein-
staka tækifæri sem nú er í íslensk-
um stjórnmálum,“ segir hún í til-
kynningu.
Illugi Gunnarsson sækist eftir
að leiða listann í Reykjavík og hið
sama gera Guðlaugur Þór Þórðar-
son og Hanna Birna Kristjánsdótt-
ir, en þau hafa öll verið nefnd til
sögunnar sem mögulegir varafor-
menn. Það hefur Ragnheiður Elín
Árnadóttir einnig verið, en hún
sækist eftir efsta sætinu í Suður-
kjördæmi. Ljóst er að árangur í
prófkjörum mun segja mikið um
stöðu kandídata í varaformanninn.
Ásbjörn Óttarsson, sem leiddi
listann í Norðvesturkjördæmi síð-
ast, gefur ekki aftur kost á sér og
Einar K. Guðfinnsson stefnir á
fyrsta sætið.
Formaðurinn færði sig
Miklar hræringar eru í
Framsóknarflokknum.
Siv Friðleifsdóttir og
Birkir Jón Jónsson ætla
að setjast í helgan stein, en með
Siv fer reynslumesti þingmaður
flokksins. Eygló Harðardóttir,
sem skipaði annað sætið í Suður-
kjördæmi síðast, hyggst færa sig
yfir í kjördæmi Sivjar, Suðvest-
urkjördæmi, og vill leiða listann.
Sigurður Ingi Jóhannsson stefnir á
efsta sætið í Suðurkjördæmi, eins
og Gunnar Bragi Sveinsson gerir í
Norðvesturkjördæmi. Þau Vigdís
Hauksdóttir, Frosti Sigurjónsson
og Gunnlaugur G. Sverrisson hafa
óskað eftir stuðningi í fyrsta sætið
í Reykjavíkurkjördæmunum.
Norðausturkjördæmi hefur lengi
verið sterkasta vígi Framsóknar-
flokksins og skemmst er að minn-
ast þess að flokkurinn fékk fjóra
þingmenn þar árið 2003. Birkir
Jón leiddi listann síðast en eftir að
hann tilkynnti um brotthvarf sitt
ákvað Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður flokksins, að
færa sig norður. Þar er á fleti fyrir
Höskuldur Þórhallsson og stefnir í
slag um efsta sætið þar.
Gunnar Helgi segist ekki skilja
hvað búi að baki ákvörðun Sig-
mundar. Möguleg skýring sé að
hann vilji bjóða fram í kjördæmi
þar sem þingsæti sé öruggt.
A
lþingiskosningar
verða í vor og á
næstunni munu
flokkarnir ganga í
það að velja sér fólk
á lista. Mikil endur-
nýjun varð á þingheimi í tveim-
ur síðustu kosningum og því þarf
kannski ekki að koma á óvart að
meirihluti þingmanna hyggst gefa
kost á sér til áframhaldandi setu.
Fréttablaðið fékk svör frá öllum
þingmönnum um framtíðaráform
þeirra, sem sjá má á töflu hér að
ofan.
Rétt er að taka fram að þeir sem
eru í dálknum óráðið hafa ýmist
ekki ákveðið sig eða vilja ekki gefa
upp hver ákvörðun þeirra er.
Fá svör Vinstri grænna
Þingmenn Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns
framboðs eru dulir um
framtíðaráform sín,
hvort sem því veldur að ákvörðun
hefur ekki verið tekin eða að beðið
er eftir rétta tækifærinu. Undan-
tekning á því eru Lilja Rafney
Magnúsdóttir, sem sækist eftir að
leiða listann í Norðvesturkjördæmi
og Álfheiður Ingadóttir. Hún sæk-
ist eftir öðru sætinu í öðru hvoru
Reykjavíkurkjördæminu.
Ögmundur Jónasson og Stein-
grímur J. Sigfússon hyggjast einn-
ig bjóða sig aftur fram. Þuríður
Backman hyggst hins vegar hætta.
Flokksfélög munu funda í næsta
mánuði og ákveða fyrirkomulag
vals á framboðslista. Reikna má
með því að þá muni frambjóðend-
ur stíga fram og um fleiri sé ástatt
líkt og Svandísi Svavarsdóttur
umhverfisráðherra þegar hún
segir: „Ég tilkynni um mín áform
þegar búið er að taka ákvörðun um
fyrirkomulag vals á lista.“
Steingrímur J. Sigfússon gefur
það aðeins út að hann ætli ekki að
hætta í pólitík, en samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins mun hann
sækjast eftir forystusæti í Norð-
austurkjördæmi. Gunnar Helgi
Kristinsson, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands,
segir það ekki koma á óvart að
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands,
segir að það hve margir gefi kost á sér
til áframhaldandi setu á Alþingi skýrist
að miklu leyti af því hve mikil endur-
nýjun var á þingheimi síðustu árin. Af 63
sem náðu kjöri árið 2009 voru 27, eða
43 prósent, nýir og tveir þriðju hlutar
þingmanna, sem náðu kjöri 2009, komu
fyrst á þing 2007 eða síðar.
„Það hefur verið gríðarlega mikil
endurnýjun á þinginu, eins og sést nú
kannski á störfum þess. Þetta er ekki
fólk sem er alveg vant því að tala saman
á þann vinsamlega hátt sem stundum
hefur verið tíðkaður í pólitík. Ég held að
það þurfi að skoða þetta í ljósi þess að
það hefur verið gríðarleg endurnýjun á
undanförnum árum og það er ekkert
óeðlilegt að fólk sem hefur á annað
borð viljað gefa sig í þetta vilji gefa
þessu aðeins meiri séns.“
Prófkjör og fylgissveiflur
Gunnar Helgi bendir á að eitt sé að vilja sitja áfram, annað sé að ná kjöri.
Tvennt ráði úrslitum um það hvort vilji þingmanna verði að veruleika.
„Annars vegar eru það prófkjörin og það er búið að breyta leikreglum
þar töluvert mikið með því að banna ótakmarkaðan peningaaustur. Við
vitum ekki alveg hvaða áhrif það mun hafa. Menn geta ekki í sama mæli
og menn gerðu 2007 dælt ótakmörkuðu fjármagni og tryggt sér áfram
þingsæti á þeim forsendum. Það er óvissuþáttur og svo er traust á þing-
mönnum almennt séð og stjórnmálamönnum algjörlega í botni. Það
hefur aldrei á Íslandi verið jafn lítið og við vitum ekki hvaða áhrif það
mun hafa á gengi þessa fólks.
Svo er annar þáttur að það má búast við því að það verði töluverð
sveifla í kosningunum sjálfum núna næsta vor. Kosningarnar 2009 voru
óvenjulegar, Vinstri græn og Samfylkingin fengu hreinan meirihluta og
það er ólíklegt að það muni gerast aftur.“
Nýju framboðin
Skoðanakannanir benda til þess að fylgi Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna muni dala. Gunnar segir óvíst hvort það muni skila sér í meira
fylgi Sjálfstæðisflokksins.
„Honum hefur ekki gengið jafn vel í könnunum og menn myndu ætla,
enda er hann náttúrulega svolítið sviðinn eftir hrunið. Það er líka óvissa
um hvernig nýju framboðunum muni ganga. Það má alveg búast við
því að það verði töluverð hreyfing á kjósendum í kosningunum og þar
af leiðandi á þingmönnum líka. Það er því ekki útséð um að það verði
engin endurnýjun á þingi.“
29. september 2012 LAUGARDAGUR24
HÆTTA
HALDA
ÁFRAM
ÓRÁÐIÐ
■ HVERJIR HALDA ÁFRAM?
Ásmundur Einar Daðason
Eygló Harðardóttir
Gunnar Bragi Sveinsson
Höskuldur Þórhallsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Sigurður Ingi Jóhannsson
Vigdís Hauksdóttir
Þór Saari
býður fram fyrir Dögun
í næstu kosningum
Árni Páll Árnason
Björgvin G. Sigurðsson
Guðbjartur Hannesson
Helgi Hjörvar
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Katrín Júlíusdóttir
Kristján L. Möller
Lúðvík Geirsson
Magnús Orri Schram
Mörður Árnason
Oddný G. Harðardóttir
Ólína Þorvarðardóttir
Róbert Marshall
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Skúli Helgason
Valgerður Bjarnadóttir
Össur Skarphéðinsson
Árni Johnsen
Birgir Ármannsson
Bjarni
Benediktsson
Einar K. Guðfinnsson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Illugi Gunnarsson
Jón Gunnarsson
Ragnheiður Elín Árnadóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Unnur Brá Konráðsdóttir
Álfheiður Ingadóttir
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Utan
þingflokka
Margrét Tryggvadóttir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Kristján Þór Júlíusson
Pétur H. Blöndal
Tryggvi Þór Herbertsson
Árni Þór Sigurðsson
Björn Valur Gíslason
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Jón Bjarnason
Katrín Jakobsdóttir
Svandís Svavarsdóttir
Þráinn Bertelsson
Atli Gíslason
Lilja Mósesdóttir
Birkir Jón Jónsson
Siv Friðleifsdóttir
Jóhanna
Sigurðardóttir
Ásbjörn Óttarsson
Ólöf Nordal
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Þuríður Backman
Aukinn meirihluti heldur áfram
Tveir þriðju sitjandi Alþingismanna, eða aukinn meirihluti, eru ákveðnir í að gefa kost á sér til áframhaldandi setu. Þeir gætu
orðið fleiri þar sem nokkrir eiga eftir að gefa upp afstöðu sína. Aðeins 7 þingmenn eru ákveðnir í að hætta. Kolbeinn Óttarsson
Proppé skoðaði framboðsmál, hverjir gefa kost á sér og hvaða fólk vill komast inn á hið háa Alþingi í vor.
Steingrímur J.
Sigfússon
Ég hef ekki gefið neitt
annað í skyn [en að
ég fari í framboð], þá
geta menn getið sér til um hvað er
líklegast.
Guðmundur
Steingrímsson
(Býður fram fyrir
Bjarta framtíð í
næstu kosningum.)
Ég geri fastlega
ráð fyrir að
ég fari fram í
Reykjavík.
Ögmundur
Jónasson
Að öllu óbreyttu
geri ég ráð fyrir
að gefa kost á
mér til endurkjörs á Alþingi.
Birgitta Jónsdóttir
Píratar hafa ekki
verið stofnaðir
formlega enn þá.
Það stendur ekki
til að gera það fyrr en í upphafi
næsta árs. Ég hef ekki tekið
ákvörðun um hvar á lista ég
hyggst gefa kost á mér, það er
að segja, hvort ég muni leiða
lista eður ei.
Endurnýjun síðustu ára skýrir hve margir
vilja halda áfram
Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðingur
■ VALIÐ Á LISTA
Reglum varðandi prófkjör hefur verið breytt og þak sett á þá fjármuni sem
eyða má í þau. „Almennt séð er það þannig að ef þú mátt ekki eyða peningum
verður þú að vera frægur til að eiga möguleika, það er meginreglan. Staða nýs
fólks er að því leyti erfið.
Hins vegar vinnur það með nýju fólki að það er ákveðin þreyta með hefð-
bundin stjórnmál og allan braginn á þinginu eftir þetta kjörtímabil. Það er auð-
vitað bara tilfinning en nýtt fólk gæti átt ágætis tækifæri núna, vegna þessarar
óánægju,“ segir Gunnar Helgi.
■ ERFIÐLEIKAR NÝRRA FRAMBJÓÐENDA