Fréttablaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 32
29. september 2012 LAUGARDAGUR32
1979
1994
2009
Mesta afrekið var að lægja öldurnar árið 2009
Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur segir merkum stjórnmálaferli að ljúka
Tími Jóhönnu að
lokum kominn
Jóhanna Sigurðardóttir ætlar að hætta í stjórnmálum er kjörtíma-
bilinu lýkur í vor. Fréttablaðið rifjar af því tilefni upp nokkur eftir-
minnileg augnablik úr ferli hennar frá því að Jóhanna hóf afskipti
af verkalýðsmálum fyrir hönd flugfreyja og þar til hún settist í stól
forsætisráðherra vorið 2009.
Jóhanna er núna að ljúka merkum stjórnmálaferli sem hófst þegar
Alþýðuflokkurinn vann stórsigur
árið 1978. Það má segja að Jóhanna
hafi átt ágætis feril á þingi sem bæði
þingmaður og ráðherra en hann náði
auðvitað hápunkti þegar hún var
kölluð til í ársbyrjun 2009 þegar allt
var að hrynja hér. Það verður talið
hennar mesta afrek að lægja öldurn-
ar þá,“ segir Guðni Th. Jóhannesson
sagnfræðingur spurður um arfleifð
og feril Jóhönnu Sigurðardóttur for-
sætisráðherra.
„Auðvitað eru ekki allir sammála
um þetta og því síður um verk henn-
ar á stóli forsætisráðherra en það
var ekki sjálfsagt að henni tækist að
stilla til friðar. Eins og þetta horfir
við mér hefði enginn annar stjórn-
málamaður getað tekist þetta verk
á hendur. Jóhanna naut trausts og
stuðnings út fyrir raðir eigin flokks.
Hún var líka þekkt sem málsvari
minnihlutahópa sem átti ugglaust
sinn þátt í þeirri sátt sem um hana
skapaðist í kjölfar Búsáhaldabylt-
ingarinnar.“
Guðni segir erfitt, vegna nálægð-
ar við tímabilið að leggja mat á verk
Jóhönnu. „Það er eflaust margt sem
hefur tekist vel og annað sem hefur
tekist miður vel. En ef nefna á eitt-
hvað gagnrýnivert þá má segja að
það sem helst hafi skort hjá Jóhönnu
sé hæfni, kapp og löngun til að láta
að sér kveða á alþjóðavettvangi í
þeim illdeilum sem við höfum staðið
í í tengslum við Icesave. Hún hefur
verið treg til að tala máli Íslands
eins og eftir var tekið, sem skap-
aði tómarúm sem aðrir gátu þá nýtt
sér,“ segir Guðni sem metur það svo
að þannig hafi forseta Íslands verið
gefið svigrúm til að taka sviðsljósið
sem hann hafi óspart nýtt sér.
„En svo er auðvitað margt annað
sem mætti nefna í tengslum við
Jóhönnu. Hún er mikilvæg í sögu
kvenréttinda hér á landi. Hún og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eru
þær konur sem hafa komist til
mestra áhrifa í íslenskum stjórn-
málum. Ekki síður má horfa til henn-
ar í tengslum við baráttu samkyn-
hneigðra.
Hún var með þeim fyrstu í hópi
samkynhneigðra til að ganga í hjóna-
band og þó hún hafi aldrei viljað að
kastljósinu væri beint að hennar
einkalífi og íslenskur almenningur
hafi ekki velt vöngum yfir því þá var
það heimsviðburður að hér var sam-
kynhneigður forsætisráðherra.
■ ÁHRIFAMESTA KONAN Í ÍSLENSKUM STJÓRNMÁLUM
Eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Jóni Baldvini Hannibalssyni í
formannskjöri Alþýðuflokksins steig Jóhanna í ræðustól og mælti
hin fleygu orð: Minn tími mun koma. Tími Jóhönnu kom óvænt í
ársbyrjun 2009 þegar upp úr samstarfi Sjálfstæðisflokks og Sam-
fylkingar slitnaði í kjölfar hrunsins.
Fáir ef nokkrir aðrir stjórn-
málamenn en Jóhanna
Sigurðardóttir hefðu getað stillt
til friðar eftir hrun, að mati
Guðna Th. Jóhannessonar. En
tregða hennar til að láta að
sér kveða á alþjóðavettvangi
í Icesave-deilunni gaf Ólafi
Ragnari Grímssyni tækifæri til
að taka sviðsljósið.
Jóhanna setti ræðumet á Alþingi þegar hún talaði í samtals tíu klukkustundir og átta mínútur við
aðra umræðu um húsnæðisfrumvarp Páls Péturssonar félagsmálaráðherra. Metið stendur enn.
1998
Jóhanna Sigurðardóttir var fyrsta konan til að taka sæti á þingi fyrir Alþýðuflokkinn árið
1978. Árið 1966 skipaði hún 5. sæti á lista Alþýðuflokksins í borgarstjórnarkosningum.
Leiðarahöfundur Alþýðublaðsins hrósaði þá þessari „ungu og myndarleg konu“ sem
hefði nýlega verið kjörin formaður Flugfreyjufélagsins, „fegursta verkalýðsfélags í
landinu“.