Fréttablaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 39
FERÐIR
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Kynningarblað
Á leikfimihátíð á Ítalíu
Íbúðaskipti
Á faraldsfæti um Ástralíu
Áhugavert í Barcelona
Heimasíða ferðalanga
Matur á ferðalögum
Úrval Útsýn k ynnir um helgina nýja og glæsilega haust- og vetrardagskrá
en þá kemur nýr ferðabækling-
ur út. Eins og venjulega er marg-
ar spennandi nýjungar í boði í
bland við eldri áfangastaði sem
hafa notið vinsælda í mörg ár. Þor-
steinn Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri Úrvals Útsýnar, segir ferða-
skrifstofuna bjóða upp á fjölbreytt
úrval ferða í vetur þar sem allir
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
„Meðal spennandi nýjunga hjá
okkur í vetur er nýr áfangastaður
í skíðaferðum okkar sem er Cana-
zei á Ítalíu. Síðan eru Kanaríeyjar
alltaf jafn vinsælar en við bjóðum
upp á tvo áfangastaði þar í vetur,
Tenerife og Gran Canaria. Golfferð-
irnar okkar hafa síðan slegið í gegn
og er uppselt í þær allar. Svo virðist
vera sem efnahagshrunið hafi haft
lítil áhrif á golfþorsta landsmanna.“
Sólin vinsæl
Sólþyrstum Íslendingum bjóð-
ast nú reglulegar ferðir í vetur til
tveggja áfangastaða á Kanaríeyj-
um, Tenerife og Gran Canaria. Te-
nerife er sannkölluð paradís fyrir
vandláta ferðalanga enda nýtur
hún sérstöðu fyrir einstakt nátt-
úrufar og mikla veðursæld. „Það
eru ekki mörg ár síðan Tenerife
var kynntur aftur til sögunnar á
Íslandi en staðurinn hefur fest sig
gríðarlega vel í sessi. Það er alveg
ótrúlegt hvað hann hefur fall-
ið vel í kramið hjá Íslendingum.“
Góð hótel, snyrtilegt umhverfi og
frábært loftslag einkennir Kan-
aríeyjar. „Þar er aldrei of kalt eða
heitt heldur stöðugur og þægileg-
ur andvari. Kanaríeyjar eru í raun
dæmi um hið fullkomna veðurfar
og henta Íslendingum frábærlega
vel.“ Gran Canaria býður upp á fjöl-
marga spennandi gistimöguleika
og fallegar strendur. „Þar er einn-
ig mikið úrval veitingastaða, kaffi-
húsa og frábærra verslunarkjarna.“
Einnig má nefna að skipulagðar
ferðir Úrvalsfólks eru í boði í haust,
vetur og vor til Tenerife, Gran Can-
aria og Benidorm. Úrvalsklúbbur-
inn er ferðaklúbbur ætlaður 60 ára
og eldri.
Frábærir skíðastaðir
Úrval Útsýn býður upp á þrjá frá-
bæra skíðastaði á Ítalíu í vetur. Nýr
áfangastaður er kynntur til sög-
unnar en um er að ræða Canazei
sem tilheyrir einu besta og stærsta
skíðasvæði heims sem kall-
ast Dolomiti Superski. Í miðjum
bænum er kláfur sem flytur skíða-
fólk upp á skíðasvæði fyrir ofan
bæinn þar sem hægt er að velja úr
fjölda skíðaleiða. „Bærinn er ein-
staklega líflegur og skemmtileg-
ur. Í bænum er mikið úrval góðra
veitingahúsa og kráa sem taka vel
á móti skíðamönnum úr brekk-
unni í lok dags og jafnvel langt
fram á nótt.“ Einnig er boðið upp
á skíðaferðir til Madonna og Selva
Val Gardena. Báðir staðirnir bjóða
upp á góða gistimöguleika, góða
veitingastaði og frábæra skíða-
brekkur að sögn Þorsteins.
Siglt um heimshöfin
Skemmtisiglingar á framandi
slóðir hafa lengi verið vinsælar
hjá Íslendingum. Í vetur býður
Úrval Útsýn eins og fyrr upp á
nokkrar stórskemmtilegar sigling-
ar um fjarlægar slóðir. „Glæsileg-
asta skemmtisigling okkar í vetur
er fimmtán daga ferð sem hefst í
Dubai og endar við strendur Ít-
alíu. Ferðin býður upp á einstaka
náttúrufegurð, sögu og menn-
ingu og framandi áfangastaði
þar sem meðal annars er boðið
upp á spennandi skoðunarferð-
ir.“ Úrval Útsýn bauð upp á sömu
ferð í fyrra að sögn Þorsteins og sló
hún í gegn. Auk þess er boðið upp
á þrjár spennandi siglingar um
Vestur-Karíbahaf þar sem endað
er í Flórída.
Konur skemmta sér
Úrval Útsýn hefur um nokkurra
ára skeið boðið upp á skemmti-
legar kvennaferðir undir nafninu
„Ný og betri“. Um er að ræða viku-
ferðir þar sem þaulvanir leiðbein-
endur blanda saman skemmtun
og uppbyggilegum námskeiðum
í góðu veðri á suðlægum strönd-
um. „Þessar ferðir hafa skilað til
baka alveg gríðarlega ánægðum
þátttakendum. Ferðirnar eru góð
blanda af hreyfingu og fyrirlestr-
um en um leið fá þátttakendur
góðan frítíma. Þessi ferð er fyrir
konur á öllum aldri.“
Af öðrum spennandi kostum
nefnir Þorsteinn borgarferðirn-
ar sívinsælu og ýmsar íþrótta- og
tónlistarferðir sem íþróttadeild
Úrvals Útsýnar skipuleggur fyrir
hópa og einstaklinga.
Hægt er að lesa nánar um allar
ferðir Úrvals Útsýnar á heimasíðu
þeirra, www.urvalutsyn.is.
Skemmtilegur ferðavetur fram
undan með Úrvali Útsýn
Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn kynnir glæsilegan ferðabækling um helgina. Auk vinsælla sólarlandaferða eru margar fjölbreyttar og
skemmtilegar ferðir í boði í vetur. Meða nýjunga í vetur er nýr áfangastaður í skíðaferðum.
Þorsteinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Úrvals Útsýnar.
MEIRA Á UU.IS
TENERIFE | KANARÍ | ÚRVALSFÓLK | BORGIR | SKÍÐI | SIGLINGAR | SÉRFERÐIR | GOLF | ENSKI BOLTINN