Fréttablaðið - 29.09.2012, Side 77
KYNNING − AUGLÝSING Snjallsímaforrit29. SEPTEMBER 2012 LAUGARDAGUR
Þú opnar forritið og síminn staðsetur þig. Þú ýtir síðan á lítið stækkunargler í hægra
horninu og forritið leitar að næsta
lausa bíl og skiptir engu hjá hvaða
leigubílastöð hann er,“ útskýrir Jón
Norðfjörð Kristjánsson sem hann-
aði forritið ásamt félögum sínum
hjá P84 development. „Við erum
ekki í samkeppni við leigubíla-
stöðvar. Markmiðið er einungis
að auka aðgengi farþega að leigu-
bílum og um leið viðskipti bílstjór-
anna, en forritið tryggir líka að far-
þegar fái bíl sem allra fyrst enda
er það sá bíll sem er næstur, óháð
leigubílastöð, sem fer á staðinn.
Jón segir farþega ekkert þurfa að
hringja. „Það er nóg að kikka ör-
fáum sinnum og þú ert búinn að
panta bíl. Þá er hægt að fylgjast
með ferð bílsins á korti ef fólk vill.“
Jón segir sams konar forrit til
erlendis en þau virki flest eins og
símaskrá. „Þá finnur forritið næstu
leigubílastöð við þig og gefur þér
beint samband við leigubílsstjóra.“
Jón segir iTaxi sérstaklega hent-
ugt fyrir útlendinga og ætti það að
vera eitt af þeim smáforritum sem
þeir hlaða niður við komuna til
landsins. „Það er erfitt fyrir þá að
hringja á leigubílastöð og panta bíl
á Bræðraborgarstíg 24 svo dæmi
sé nefnt. Þá er auðveldara að ýta á
takka og láta símann staðsetja sig.“
Forritið fæst á App Store og
Play Store. „Það er enn sem komið
er frítt og eru komin 800 niðurhöl.
Það er í notkun hjá tuttugu leigu-
bílsstjórum um allt land en skil-
virknin veltur vitanlega á því að
sem flestir taki þátt,“ segir Jón.
Hann segir kerfið virka sérstak-
lega vel á Akureyri, Egilstöðum og
Eskifirði þar sem þónokkrir leigu-
bílsstjórar eru búnir að taka það í
notkun.
Jón segir stöðugt verið að gera
uppfærslur á kerfinu eins og
gengur með önnur smáforrit. „Nú
þegar Apple breytti kortavef sínum
þurftum við að endurhanna kerfið.
Samkvæmt kortavef Apple eru sum
hverfi ekki til. Okkar leið fram hjá
því er sú að þegar farþegi kveikir á
forritinu sækjum við upplýsingar á
Google um hvar hann er staðsett-
ur. Þannig komumst við fram hjá
þessari villu hjá Apple.“
Pantaðu leigubíl
án þess að hringja
iTaxi er nýtt íslenskt snjallsímaforrit sem auðveldar fólki að panta leigubíl.
1 Í settings þarf að skrá inn símanúmer. Það þarf bara að gera einu sinni. 5 Bíllinn er pantaður með því að ýta á send Request.3 Þegar bíllinn er fundinn er ýtt á request. Gulur takki í hægra horni. 4Ef staðsetningin er ekki nákvæm er hægt að leiðrétta það með auðveld-
um hætti með einum fingri.
2Þegar kveikt er á forritinu staðsetur síminn þann sem ætlar að panta bíl
(blár depill). Með stækkunarglerinu finnur
kerfið sjálfvirkt næsta lausa bíl.
7
Jón hannaði forritið
ásamt félögum sínum
hjá P84 development.
MYND/VALLI
1 Fyrirtækin KDDI og Flower Robotics kynntu símann
Polaris fyrir nokkrum árum. Síminn
er með innbyggt eftirlitskerfi sem
birtir sjálfkrafa nýjar upplýsingar
um heilsu, viðskipti og veður. Þá er
hægt að nota símann Polaris eins og
fjarstýringu á önnur raftæki.
2 Nokia 888 er hugmyndafarsími hannaður af Tamer Nakisci.
Hægt er að breyta formi símans, hafa
hann beinan, boginn, í bylgjum,
hjartalaga og notað hann sem arm-
band. Ólíklegt er að hann fari í fram-
leiðslu.
3 Þessi farsími kallast Matchbox Cell Phone en heitið vísar til
þess að hann þykir einna helst líkjast
eldspýtnastokki. Síminn er kannski
ekki mikið augnayndi en er afar léttur
og meðfærilegur. Með því að ýta á
hnapp rennur lok af lyklaborði.
4 Farsímann Nokia SURV1 má hengja í belti og þykir henta vel
fyrir ferðalanga. Síminn er höggþol-
inn og með innbyggðu GPS-staðsetn-
ingartæki, MP3-spilara og vasaljósi.
5 Eins og heiti Marlboro 508 far-símans gefur til kynna er út-
litið sótt í Marlboro sígarettupakka.
Síminn er með innbyggðu bluetooth,
MP3/MP4, útvarpi og 1,3-megapixla
myndavél. Rúsínan í pylsuendanum
er hólf á hliðinni undir sígarettur.
VISSIR ÞÚ ...
... að Motorola framleiddi fyrsta
farsímann?
... að í Hong Kong eiga flestir
jarðarbúa farsíma, en fæstir
í Úkraínu?
... að yfir 100 milljón farsímum er
fleygt á ári hverju?
... að Vesturlandabúar tala að
meðaltali minnst hálftíma á
dag í farsíma?
... að Nokia er stærsti farsíma-
framleiðandi í heiminum?
... að konur nota farsíma meira
en karlar?
... að fyrsta símtal úr farsíma átti
sér stað vorið 1973?
... að tveir af hverjum þremur
sem eiga farsíma nota ljós
úr þeim sem vasaljós?
... að ungir Kóreubúar senda yfir
200 þúsund sms-skeyti á
ári?
... að Japanar skipta árlega gamla
farsímanum sínum út fyrir
nýjan?
... að langflestir unglingar geta
ritað sms blindandi á
farsíma sína?
Furðulegar hug-
myndir um farsíma
Farsímar hafa tekið örum framförum síðustu ár og hafa ýmsar skondnar
hugmyndir litið dagsins ljós. Sumar hafa fengið grænt ljós. Aðrar ekki.
1
2
3
5
4
Qr-kóði
fyrir-
Android.
Qr-kóði
fyrir
iPhone.