Fréttablaðið - 29.09.2012, Síða 101
LAUGARDAGUR 29. september 2012 57
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 29. september
➜ Fundir
10.30 Almennur félagsfundur
hjá Framsóknarfélagi Reykjavíkur
verður haldinn í Framsóknarhúsinu að
Hverfisgötu 33. Gestir fundarinns verða
þau Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
formaður Framsóknar og Vigdís Hauks-
dóttir alþingismaður.
➜ Sýningar
16.00 Sýning Heiðrúnar Kristjánsdótt-
ur, Kjölfesta, verður opnuð í Reykjavík
Art Gallery, Skúlagötu 30.
➜ Hátíðir
14.00 Reykjavík International Film
Festival er fullu fjöri í Reykjavík. Dagskrá
má nálgast á heimasíðunni http://riff.
is/schedule.
➜ Uppákomur
20.00 Haldið verður sundbíó í Laugar-
dalslaug í tilefni af Reykjavík Inter-
national Film Festival. Sýnd verður hin
klassíska ævintýramynd Aftur til fram-
tíðar (e. Back to the Future).
➜ Málþing
11.00 Málþing í tengslum við sýn-
inguna Musée Islandique; Ólöf Nordal
verður haldin í Listasafni Íslands. Mál-
þingið er í samstarfi við Háskóla Íslands
á sviði mannfræði og listfræði.
➜ Tónlist
22.00 Kristjana Arngrímsdóttir, Örn
Eldjárn og Jón Rafnsson bjóða upp á
notalega kvöldstund á Café Rosenberg.
Rómantískar ballöður og heitir tangóar.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 og enginn
posi er á staðnum.
23.00 Ingvar Grétarsson skemmtir
á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 30. september
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður spiluð í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14. Allir velkomnir.
19.00 Bridge tvímenningur verður
spilaður í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Allir velkomnir.
➜ Sýningar
14.00 Möguleikhúsið sýnir barna-
leiksýninguna Ástarsaga úr fjöllunum
í menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýningin er ætluð börnum á aldrinum
2ja til 9 ára og miðaverð er kr. 2.200.
➜ Hátíðir
14.00 Reykjavík International Film
Festival er fullu fjöri í Reykjavík. Dagskrá
má nálgast á heimasíðunni http://riff.
is/schedule.
➜ Uppákomur
20.00 Biskup Íslands, frú Agnes M.
Sigurðardóttir, prédikar í fyrstu Tómasar-
messu haustsins í Breiðholtskirkju í
Mjódd. Þema messunnar er Fylg þú
mér. Tómasarmessur einkennast af fjöl-
breyttum söng og tónlist.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík verður haldinn að Stangarhyl
4. Danshljómsveitin Klassík leikur létta
danstónlist. Aðgangseyrir fyrir félaga FEB
er kr. 1.500 og fyrir aðra kr. 1.800.
➜ Málþing
14.00 Forvörður, jarðfræðingur og
listamenn leiða saman hesta sína á mál-
þingi sem helgað er sýningunni Hreyfing
augnabliksins sem nú stendur yfir í
Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur.
➜ Tónlist
16.00 Andrea Jónsdóttir leikur tónlist
af plötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakka-
stíg 8. Aðgangur er ókeypis.
16.00 Kammerhópurinn Nordic Affect
stígur á stokk í bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins undir yfirskriftinni London
brennur. Miðaverð er kr. 2.000 en kr.
1.000 fyrir námsmenn og eldri borgara.
➜ Leiðsögn
15.00 Sigrún Ó. Einarsdóttir verður
með leiðsögn um sýninguna Heitt gler í
30 ár í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni.
➜ Listamannaspjall
15.00 Hafnarborg býður upp á lista-
mannsspjall með Katrínu Elvarsdóttur
ljósmyndara. Hún ræðir við gesti um
verk sín á sýningunni SKIA.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
facebook.com/noisirius
TRÖLLAUKIN ÁSTARSAGA Möguleik-
húsið sýnir aftur barnaleiksýninguna
Ástarsaga úr fjöllunum í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi en verkið byggir
á samnefndri og sígildri bók Guðrúnar
Helgadóttur og Brians Pilkington.