Fréttablaðið - 29.09.2012, Page 104

Fréttablaðið - 29.09.2012, Page 104
29. september 2012 LAUGARDAGUR60 Héðinn Ólafsson og Alexander Manrique opnuðu saman köfunar- skóla í strandborginni Benidorm á Spáni fyrir skemmstu. Héðinn hefur starfað við köfun hérlendis í ellefu ár og verður með annan fótinn úti á Spáni í vetur. „Þetta byrjaði þannig að Alex- ander nennti ekki að búa á Íslandi lengur og fluttist til Benidorm. Hann vann við köfun á þessu svæði og sá fljótlega að það var markaður fyrir köfunarskóla þar sem kennararnir töluðu ensku eða Norðurlandamál. Hinir skólarnir eru allir í eigu Spánverja og flest- ir kennararnir aðeins spænsku- mælandi,“ útskýrir Héðinn. Hann og Alexander eru báðir köfunarkennarar og hafa starfað sem slíkir í fjölda ára. Nýja kaf- araskólann nefndu þeir Dive Beni- dorm og bjóða þeir upp á nám- skeið í köfun sem og ferðir fyrir þá sem eru með kafararéttindi. „Köfun er mjög vinsæl afþreying eins og hefur sýnt sig hér heima, vöxturinn er ótrúlegur.“ Alexander mun sjá um allan daglegan rekstur skólans en Héðinn mun deila tíma sínum milli Íslands og Spánar og kenna á báðum stöðum. „Ég er orðinn svo gamall og börnin mín öll upp- komin. Eiginkona mín kemur með mér út þannig að ég get þvælst á milli eftir því hvar vinnan er hverju sinni.“ Í tilefni stofnunar skólans býður Dive Benidorm fólki á byrj- endanámskeið í köfun ásamt gist- ingu í viku fyrir aðeins 450 evrur. Tilboðið gildir út nóvember. Hægt er að fá nánari upplýsingar um skólann í síma 6993000. -sm Opnar kafaraskóla á Benidorm KAFAR Í BENIDORM Héðinn Ólafsson stofnaði kafaraskóla á Benidorm ásamt félaga sínum, Alexander Manrique. Bíó ★★★★ Meet the Fokkens Gabrielle Provaas, Rob Schröder. Sýnd á RIFF-hátíðinni. Fíllinn í herberginu Sjötugu tvíburasysturnar Martine og Louise Fokkens hafa í rúm fjörutíu ár verið vændiskonur í Amsterdam og eru enn að. Önnur þeirra hætti reyndar að stunda samfarir fyrir tveimur árum sökum gigtveiki, en flengingar og drottnunarleikir hennar njóta enn nokkurra vinsælda meðal vændiskaup- enda. Þessar skrautlegu systur hafa gengið í gegnum margt á lífsleiðinni, verið beittar ofbeldi og þurft að sjá fyrir fjölskyldunni með vafasömum hætti. Í dag er raunin önnur, en fastar í viðjum vanans halda þær uppteknum hætti og munu eflaust gera þar til yfir lýkur. Þær eru slarkfærir listmálarar og sinna því áhugamáli af ástríðu. Maður veltir því fyrir sér hvort þær hefðu náð árangri á því sviði hefði einhver haft trú á þeim. Eða þær sjálfar. Meet the Fokkens er vel gerð og þrælskemmtileg heimildarmynd um mikla furðufugla. Skræpótt (og samstæð) föt tvíburanna hætta þó fljótlega að vera fyndin þegar gríman fellur, og við blasir hversdagslegur breyskleiki mannsins í sinni döprustu mynd. Túristarnir í Rauða hverfinu labba flissandi fram hjá glugga systranna og sjá þeim bregða fyrir í sekúndubrot (fínasta krydd í ferðasöguna) en gera sér eflaust ekki grein fyrir að þarna hafa þær húkt allt sitt líf. Myndin stundar þó ekki neina djúpköfun af viti. Dramatíkin leynist í því sem við fáum ekki að vita. Fokkens-systurnar eru hressar á yfirborðinu og það er myndin líka. En það er risastór fíll í herberginu. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Þú munt aldrei gleyma Fokkens-systrunum. LAUGARDAGURINN 29. SEPTEMBER /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// Miðasala í verslunum Eymundsson í Austurstræti og Kringlunni og á riff.is 14:00 Íslenskar Stuttmyndir 3 Q&A Bió Paradís 1 14:00 Fimm stjörnu tilvera Bió Paradís 2 14:00 Diaz: Ekki Þrifa bloðið Bió Paradís 3 14:00 Íslenskar Stuttmyndir 1 Bió Paradís 4 14:00 Kjúklingur með plómum Háskólabíó 2 14:00 Gleym mér ei Háskólabíó 3 15:00 Marco Macaco Háskólabíó 4 14:00 Hreyfimyndir Leikskólanna Norræna húsið 16:00 Eitur í æðum/Völvuspá Q&A Bió Paradís 1 16:00 Lokalimurinn Bió Paradís 2 16:30 Eftir brúðkaupið Bió Paradís 3 16:00 Friðarsúlan Bió Paradís 4 16:00 Lifi andpólarnir Háskólabíó 2 16:00 Sætir draumar Mustafa Háskólabíó 3 16:45 Gullna hofið Háskólabíó 4 16:00 Á eftir ísnum Norræna húsið 18:00 Drottningin af Montreuil Q&A Bió Paradís 1 18:00 Koss Pútins Bió Paradís 2 18:45 Ég sendi Þennan stað Bió Paradís 3 17:15 Pad Yatra: ferðin græna Q&A Bió Paradís 4 18:00 Marina Abramovic Listamaðurinn er við Q&A Háskólabíó 2 18:00 Lore Háskólabíó 3 18:15 Á mörkunum Háskólabíó 4 18:00 Systir Norræna húsið 20:00 Atanasoff Q&A Bió Paradís 1 20:00 Frumkvöðlakrakkarnir Bió Paradís 2 20:00 Siðaskipti Q&A Bió Paradís 3 19:00 Sniglaplánetan Bió Paradís 4 20:00 Hárlausi hárskerinn Q&A Háskólabíó 1 20:00 Skepnur suðursins villta Háskólabíó 3 20:00 Lífdraumar Q&A Háskólabíó 4 20:00 Sundbíó /sérviðburður Laugardalslaug 21:30 Inferno Bió Paradís 1 22:00 Dóttir Bió Paradís 2 22:00 Kyrralíf Bió Paradís 3 21:00 Íslenskar Stuttmyndir 2 Bió Paradís 4 22:30 Heimili á hjólum Háskólabíó 2 22:00 Nágrannar Guðs Háskólabíó 3 22:00 Það var sonurinn Háskólabíó 4 SUNNUDAGURINN 30. SEPTEMBER 14:00 Persepolis Q&A Bió Paradís 1 14:00 Freddie Mercury - The Great Pretender Bió Paradís 2 14:00 Borða sofa deyja Bió Paradís 3 14:00 Íslenskar Stuttmyndir 1 Bió Paradís 4 14:00 Vetrahirðingjar Háskólabíó 2 14:00 Ítalía: Vera eða fara? Háskólabíó 3 14:00 Drengurinn sem borðar fuglamat Háskólabíó 4 14:00 Frumkvöðlakrakkarnir Norræna húsið 16:30 Ég er í hljómsveit Q&A Bió Paradís 1 16:00 Lögin á Þessum slóðum Bió Paradís 2 16:00 Allir í fjölskyldunni Bió Paradís 3 16:00 Koss Púttins Bió Paradís 4 16:00 Ai Wei Wei Háskólabíó 2 16:00 Barbara Háskólabíó 3 16:00 Marco Macaco Háskólabíó 4 16:00 Siðaskipti Norræna húsið 18:00 Sendiherrann Bió Paradís 1 18:00 Á eftir ísnum Bió Paradís 2 18:00 Vandræðalegi Max 2 Bió Paradís 3 18:00 Heimurinn sem mætir henni Bió Paradís 4 18:00 Kjúklingur með plómum Q&A Háskólabíó 2 18:00 Dagur á himni Q&A Háskólabíó 3 18:00 Ljóska Háskólabíó 4 18:00 Hljóðahliðrun Norræna húsið 20:00 Niðri í austri Bió Paradís 1 20:00 Læti Bió Paradís 2 20:00 Íslenskar Stuttmyndir 2 Bió Paradís 3 20:00 Kyrralíf Bió Paradís 4 20:15 Leitin að sykurmanninum Háskólabíó 2 20:00 Nágrannar Guðs Háskólabíó 3 20:00 Það var sonurinn Háskólabíó 4 20:00 Bíó hjá Hrafni Gunnlaugssyni /sérviðburður Laugarnestangi 65, 105 Reykjavík 22:00 Suspiria Bió Paradís 1 21:30 5 brotnar myndavélar Bió Paradís 2 22:00 Stigið fram Bió Paradís 3 22:00 Íslenskar Stuttmyndir 3 Bió Paradís 4 22:00 Kon-Tiki Háskólabíó 2 22:00 Drengurinn sem borðar fuglamat Háskólabíó 3 22:00 Draumur Wagners Háskólabíó 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.