Fréttablaðið - 29.09.2012, Qupperneq 118
29. september 2012 LAUGARDAGUR74
PERSÓNAN
„Við fengum símtal frá framleið-
endum þáttanna og vorum beðnir
um að vera með. Við slógum auð-
vitað til enda er þetta frábær aug-
lýsing fyrir stofuna og skemmti-
leg reynsla,“ segir Kristinn Óli
Hrólfsson. Hann rekur hár-
greiðslustofuna Mugshot í Kaup-
mannahöfn ásamt Mike Nielsen.
Þeir komu fram sem gestadómar-
ar í þætti af sjónvarpsþáttaröð-
inni Danmarks Næste Topmodel
á fimmtudag og sáu einnig um að
breyta útliti keppenda þáttanna.
Kristinn Óli og Mike breyttu
útliti fimmtán keppenda með því
að klippa hár þeirra og lita og
tóku stúlkurnar misvel í gjörn-
inginn. „Ein grét í þrjá klukku-
tíma yfir því að hárið á henni
hefði verið klippt í axlasídd. Við
höfum aldrei lent í því áður að
kúnni gráti í stólnum hjá okkur.“
Hárgreiðslumennirnir tóku
einnig að sér hlutverk gesta-
dómara í sama þætti og voru með
í þeirri ákvörðun að kjósa tvær
stúlkur úr keppni. Kristinn Óli
segir það hafa verið erfitt verk.
„Auðvitað var það erfitt. Þetta
eru ungar stúlkur sem dreymir
um að verða fyrirsætur og það er
ekki gaman að vera með í þeirri
ákvörðun um að binda endi á þann
draum.“
Hann segir reynsluna hafa
verið skemmtilega en viðurkennir
að það hafi verið skrítið að horfa
á sjálfan sig á sjónvarpsskjánum.
„Það var mjög skrítið að horfa á
þáttinn, sérstaklega þegar maður
hugsar út í það hversu marg-
ir horfa á hann. Ég passaði mig
mikið að tala rétt og koma vel
fram, en svo er það þannig að
maður sjálfur er alltaf sinn versti
gagnrýnandi.“
Þetta er þriðja þáttaröð Top-
model í Danmörku og er bar-
ónessan Caroline Fleming stjórn-
andi þáttanna. Þeir eru sýndir
á sjónvarpsstöðinni Kanal 4 og
njóta mikilla vinsælda. „Þættirn-
KRISTINN ÓLI HRÓLFSSON: EIN GRÉT Í ÞRJÁ KLUKKUTÍMA
Dæmdi danskar fyrirsætur
DÓMARI Í TOP-
MODEL Kristinn
Óli Hrólfsson
rekur hár-
greiðslustofuna
Mugshot ásamt
Mike Nielsen.
Þeir komu fram
í sjónvarpsþátt-
unum Danmarks
Næste Top-
model.
ÞÆGILEG OG KURTEIS
BARÓNESSA
Caroline Fleming er fædd Caroline Elizabeth Ada
Iuel-Brockdorff og ber titilinn barónessa.
Hún ólst upp í Valdemars Slot-kastal-
anum og er þekkt persóna í dönsku
samfélagi. Hún er einnig þekkt fyrir
hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum
Baronessen flytter ind og Danmarks
næste topmodel. Kristinn Óli segir að
hún sé þægileg í samstarfi, afskaplega
kurteis og að mannasiðir hennar hafi verið
óaðfinnanlegir.
Fleming var gift Rory Fleming, sem tilheyrir
fjórðu ríkustu fjölskyldu Bretlands og er frændi
Ian Fleming, höfundar Bond-bókanna. Parið
eignaðist tvö börn saman en skildu árið 2008.
Fleming er nú í sambandi með danska fótbolta-
manninum Nicklas Bendtner, sem er þrettán árum
yngri en hún.
ir fá mikið áhorf og þess vegna
er þetta frábær auglýsing fyrir
okkur og Mugshot. Þarna fengum
við að sýna allri Danmörku hvað
við kunnum og getum.“
sara@frettabladid.is
„Hljómsveitin var stofnuð á aðalfundi árið
1989 og starfaði við óhemju vinsældir í þrjú
eða fjögur ár,“ segir Hörður Bragason, for-
stjóri stórhljómsveitarinnar Júpíters.
Júpíters stígur á svið í Edrúhöllinni í
kvöld en það verður í þriðja skipti sem hún
kemur fram frá því hún lagði upp laupana.
„Við stálumst til að spila á tónleikum fyrir
geðsjúklinga í Hörpu síðasta haust og á
minningartónleikum um Kristján Eldjárn í
vor. Þegar SÁÁ bauð okkur að spila á þessu
foreldraballi stukkum við til og erum búnir
að vera að æfa eins og vitleysingar,“ segir
Hörður og hlær. Júpíters naut mikilla vin-
sælda þegar hún var og hét og spilaði meðal
annars á Reading-tónlistarhátíðinni í Eng-
landi. „Við sögðumst alltaf lifa góðu lífi á
þessu en það var auðvitað bara lygi. Þetta
var mjög ópraktískt og ruglað dæmi enda
um að ræða fjórtán manna hljómsveit,“
segir hann.
Í grunninn er hljómsveitin sú sama í dag
og hún var þá. „Nokkrir eru úr leik af mis-
munandi ástæðum og við erum búin að bæta
við fulltrúum ungu kynslóðarinnar,“ segir
hann, en Magga Stína og Engilbert Jensen
verða meðal þeirra sem koma fram á tón-
leikunum auk þess sem Músíkvatur mun
„steikja“ með hljómsveitinni. „Það verður
áhugavert,“ segir Hörður. Aðgangseyrir
er 1.500 krónur, en fjörið hefst klukkan 21
og lýkur fljótlega eftir miðnætti. „Þá geta
barnapíurnar farið á djammið, þannig vinna
allir,“ segir Hörður og hlær. -trs
Júpíters snýr aftur eftir átján ára hlé
14 MANNA HLJÓMSVEIT Hörður segir Júpíters skipaða
sama kjarna í dag og fyrir 18 árum þó sumir séu úr leik
og nýir komnir inn í staðinn. Engilbert Jensen kemur
fram með sveitinni í Edrúhöllinni í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Konráð Ragnarsson
Aldur: 55 ára.
Starf: Menntaður
rafverktaki og sjálf-
lærður ljósmyndari
og leikari.
Foreldrar: Móð-
irin Ása Hjálmars-
dóttir (88 ára í
dag) og faðirinn
Ragnar Konráðs-
son (látinn).
Fjölskylda: Ein-
stæður en á fimm
börn.
Búseta: Í Neðra-Breiðholti.
Stjörnumerki: Meyja.
Konráð lék í tónlistarmyndbandi á móti
stjörnunni Russell Crowe.
Margt var um manninn á skemmtistaðnum Rúbín á fimmtudags-
kvöldið en þar var botninn sleginn í tökur á Hollywood-myndinni
The Secret Life of Walter Mitty. Leikstjórinn og leikarinn Ben Still-
er stýrði gleðskapnum og hélt meðal annars ræðu fyrir gesti.
Einn vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag, Ásgeir Trausti,
var fenginn til að leika ljúfa tóna sem féllu víst kramið hjá Holly-
wood-liðinu sem og íslenskum aðstandendum myndarinnar.
Plötusnúðurinn Danni Deluxe sá svo um að halda stuðinu uppi
fram eftir nóttu. Meðal gesta var athafnamaðurinn Jón Ólafsson og
leikarinn Ólafur Darri Ólafsson sem fór með hlutverk í myndinni
og lýsti Stiller meðal annars yfir ánægju sinni með Ólaf á Twitter.
Stiller hefur verið iðinn við lýsa yfir hrifningu sinni á landi og
þjóð á samskiptasíðunni á meðan hann hefur dvalið hér á landi.
Seinasti tökudagur var á fimmtu-
daginn en Stiller hefur flakk-
að á milli landshluta. Íbúar
Stykkishólms, Seyðisfjarðar
og Borgarness hafa sérstak-
lega orðið varir við innrás
Hollywood þar sem meðal
annars Geirabakarí í Borgar-
nesi var breytt í veitinga-
stað fyrir hvíta tjaldið. Margir
verða eflaust spenntir að berja
myndina augum en áætl-
uð frumsýning er 25.
desember 2013 vest-
anhafs.
Ásgeir söng fyrir Stiller
Styrkt af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði
Aðrir tónleikar Stórsveitar Reykjavíkur eftir
flutningana í Hörpu. Gestur sveitarinnar verður
sænski píanóleikarinn og tónskáldið Lars
Jansson en hann hefur verið í hópi fremstu
jazztónlistarmanna Svía undanfarna áratugi.
Jansson mun stýra sveitinni í heilli dagskrá
eigin verka, auk þess að leika á píanó.
Lars Jansson
Miðar á harpa.is og í miðasölu Hörpu
HARPA / Kaldalón
sunnudag. 30. sept kl. 16:00
Miðaverð kr. 2.500 / 2.000
Styrkt af
Stórsveit
Reykjavíkur
Jazzstjarna frá Svíþjóð
í H
ör
pu
Margt var um manninn á fyrsta degi dans-
prufa fyrir raunveruleikaþátt Ríkissjón-
varpsins Dans dans dans í Hörpu í gær.
Vongóðir dansarar af öllum stærðum
og gerðum biðu þess að geta sýnt spor
sín frammi fyrir dómaraþríeykinu, þeim
Katrínu Hall, Gunnari Helgasyni og Kar-
enu Björk Björgvinsdóttur.
Fyrsta sería dansþáttanna lagðist vel í
landsmenn í fyrra. Þá var það Berglind Ýr
Karlsdóttir sem fór með sigur af hólmi en
hún er nú í starfsnámi hjá Íslenska dans-
flokknum.
Ein og hálf milljón króna er í boði fyrir
sigurvegarann en það er þjóðin sem að
lokum ræður úrslitunum með símakosn-
ingu. Fyrstu þátturinn fer í loftið í lok
október. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
er kynnir þáttanna eins og í fyrra, en hún
lék á als oddi í Hörpu í gær.
Annar dagur prufanna fer fram í dag og
því um að gera fyrir fótafima landsmenn
að freista gæfunnar. Frekari upplýsingar
má finna á Facebook-síðu Dans dans dans.
- áp
Vongóðir dansarar í Hörpu
DANSFIMI Harpa fylltist af vongóðum dönsurum í gær er dansprufur fyrir
Dans dans dans fóru fram. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON