Fréttablaðið - 30.10.2012, Síða 8

Fréttablaðið - 30.10.2012, Síða 8
30. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR8 ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook HVERNIG ER VEÐRIÐ Í DAG? FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP - oft á dag LÖGREGLUMÁL Lögregla rannsak- ar enn mál konu sem var kærð árið 2009 fyrir að draga sér fé frá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Á meðan bíður skaðabóta- mál hennar gegn skólanum með- ferðar fyrir dómi. Konan var kærð til lögreglu haustið 2009. Við reglubundið eftir- lit Ríkisendurskoðunar á bókhaldi Háskóla Íslands hafði komið í ljós misræmi upp á tæpar tvær milljón- ir króna, að því er sagði í frétt DV sumarið 2010. Konan var grunuð um að hafa dregið sér féð smátt og smátt á nokkurra mánaða tímabili. Lögreglan hefur síðan haft það til rannsóknar en engin ákæra hefur verið gefin út og málið ekki verið látið niður falla. Konunni var sagt upp störf- um eftir að málið kom upp. Hún taldi að ólöglega hefði verið stað- ið að uppsögn- inni og höfðaði skaðabótamál á hendur skól- anum, Magn- úsi T u m a Guðmunds- syni, deildar- stjóra jarðvís- indadeildar, og Sigurði Guðnasyni, framkvæmdastjóra Raunvísinda- stofnunar. Það mál verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku, en er engu að síður í biðstöðu á meðan ekki er fengin niðurstaða í fjárdráttarrann- sókninni. - sh Skaðabótamál fyrrverandi starfsmanns gegn HÍ og tveimur stjórnendum bíður: Fjárdráttur við HÍ í rannsókn í þrjú ár PENINGAR Konan er sökuð um að hafa dregið sér hátt í tvær milljónir. STJÓRNSÝSLA Flugmálastjórn segir WOW air nota mjög villandi tungutak í lýsingum á starfsemi sinni. Eftir að WOW tók yfir Iceland Express setti Flugmálastjórn saman tilkynningu þess efnis að félagið sé ekki flugrekstrarfélag í þeim skilningi að félagið eigi og haldi úti loftfari. Ástæðan er sú að félagið sagðist hafa tekið yfir flugrekstur Express. „Iceland Express og WOW air hafa vissulega stuðlað að reglu- bundnum flutningi á fólki og vörum til og frá Íslandi og auk- inni samkeppni, en þeir hafa til þess þurft að fá flugrekenda frá Evrópska efnahagssvæðinu með tilskilin flugrekstrarleyfi til að annast flugið fyrir sig,“ segir Flugmálastjórn. - sv Flugmálastjórn um WOW: Nota mjög vill- andi tungutak ÚKRAÍNA, AP „Þegar hliðsjón er höfð af misnotkun valda og óhóf- legu hlutverki peninga í þessum kosningum þá virðist sem lýð- ræðisferlinu hafi farið aftur í Úkraínu,“ segir Walburga Habs- burg Douglas, yfirmaður eftir- litssveitar á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, sem fylgdist með framkvæmd þing- kosninganna í Úkraínu á sunnu- dag. Viktor Janúkovitsj forseti hrós- ar sigri. Endanleg úrslit verða ekki tilkynnt fyrr en í dag, en þegar búið var að telja um helm- ing atkvæða stefndi allt í að Hér- aðaflokkurinn, sem er flokkur forsetans, fái 240 til 260 þingsæti á 450 manna þjóðþingi landsins. Kommúnistaflokknum, sem hefur veitt Janúkovitsj for- seta stuðning, er spáð fimmtán prósentum atkvæða, en þessir tveir flokkar vilja halda góðum tengslum við Rússland. Stjórnarandstöðuflokkarnir, sem vilja frekar tengjast Vest- urlöndum en Rússlandi, ná ekki meirihluta og sitja því áfram í stjórnarandstöðu. Flokkur Júlíu Tímósjenkó, sem nú situr í fangelsi, hafði fengið 22 prósent og flokkur boxkappans Vitali Klitsjkó var kominn með þrettán prósent. Þá er kominn fram nýr flokkur þjóðernissinna, sem virtist ætla að fá um átta prósent atkvæða. Í tilkynningu frá kosningaeft- irliti ÖSE segir að stjórnarflokk- arnir hafi staðið betur að vígi fyrir kosningarnar, bæði vegna þess að stjórnarflokkarnir hafi óspart notfært sér aðstöðu sína í ríkisfjölmiðlum og stjórnkerf- inu almennt, auk þess sem fjár- mögnun flokksstarfs og kosn- ingabaráttu er engan veginn nógu gegnsæ. Þá gagnrýnir ÖSE að tveir þekktir stjórnarandstæðingar, þau Timosjenkó og Júríi Lútsj- enkó, sitji í fangelsi í kjölfar rétt- arhalda, sem ÖSE gagnrýndi á sínum tíma. „Maður ætti ekki að þurfa að fara í fangelsisheimsókn til að heyra hljóðið í stjórnmála- leiðtogum landsins,“ segir Dou- glas. ÖSE segir að fjarvera þeirra frá kosningabaráttunni hafi greini- lega haft áhrif á úrslit kosning- anna. Tímósjenkó brást í gær við úrslitunum með því að hefja mót- mælasvelti í fangelsinu. Hún sakar stjórnina um kosninga- svindl og segir þessar kosningar hafa verið þær óheiðarlegustu í sögu landsins. gudsteinn@frettabladid.is Úkraínustjórn sögð misnota valdastöðu Kosningaeftirlit ÖSE segir lýðræði hafa farið aftur í Úkraínu. Stjórnarandstöðu var haldið frá fjölmiðlum og fjármagni. Viktor Janúkovitsj forseti hrósar sigri. Júlía Timosjenkó mótmælir með mótmælasvelti. KOSIÐ Í ÚKRAÍNU Júlía Tímósjenkó segir kosningarnar um helgina hafa verið þær óheiðarlegustu í sögu landsins. NORDICPHOTOS/AFP Maður ætti ekki að þurfa að fara í fang- elsisheimsókn til að heyra hljóðið í stjórnmálaleiðtogum landsins. WALBURGA HABSBURG DOUGLAS YFIRMAÐUR KOSNINGAEFTIRLITS HJÁ ÖSE

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.