Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.10.2012, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 30.10.2012, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 30. október 2012 Nýlegar rannsóknir vísinda-manna við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum velta því upp að lífræn ræktun sé ekki hollari en önnur ræktun ef undanskilið er að vera útsettur fyrir skordýraeitri sem víða er notað, en er minna tengt lífrænum afurðum. Þá er einnig bannað að nota sýklalyf, bætiefni eða hormóna við lífrænar afurðir ólíkt því sem getur gerst við venjubundna ræktun. Það er því afar áhugavert þegar litið er til rannsóknarnið- urstaðna ofangreindra vísinda- manna sem fóru yfir margar rannsóknir með svokallaðri meta-analysis aðferð til að greina þær rannsóknir sem gerðar hafa verið um hollustu afurða hvort sem er svokallaðar lífrænar eða hefbundar, að ekki skuli vera neinn afgerandi munur á holl- ustu þeirra. Fæðuflokkarnir sem voru skoðaðir voru meðal annars ávextir, grænmeti, egg, mjólkur- vörur og fuglakjöt. Í markaðslegu tilliti hafa líf- rænar vörur selst í auknum mæli um allan heim og er því um veru- lega hagsmuni að ræða fyrir bæði framleiðendur og seljendur að geta flaggað sinni vöru sem hollari auk þess sem hægt er að nota það sem ástæðu fyrir dýrari vörum en ella. Þá hefur verið rætt í þessu samhengi að dýrari vara í augum kaupandans þýðir oftsinnis aukin gæði, sem þessi rannsókn virðist stangast á við ef horft er til hollustusjónarmiða. Ekki var hægt að sýna fram á aukið víta- míninnihald né marktækan mun á prótein- eða fituinnihaldi þess- ara afurða og niðurstaða vísinda- mannanna því sú að enginn munur væri á hollustu þessara vara þegar þessir hlutir eru mældir. Þegar horft er til bragðgæða, útlits eða annarra þátta sem ekki er hægt að tengja beint við holl- ustu er ljóst að þar er fyrst og fremst um að ræða tilfinninga- lega þætti sem er erfitt að mæla og einstaklingsbundna upplifun hvers og eins. Það er þó ljóst að margir kjósa að neyta lífrænna afurða vegna skoðana sinna á umhverfisvernd og félagslegra þátta og er það góðra gjalda vert og ánægjulegt, þó með þessum fyrirvara að því er virðist, að ekki sé neinn marktækur munur þegar tekið er tillit til hollustu einstakra vöruflokka. Nú verður að skoða veikleika þessarar rannsóknar einnig og eru þeir einna helst að ekki er um langtímaeftirfylgni að ræða með einstaklingum og tímaramminn að hámarki tvö ár sem er í styttra lagi. Þá voru rannsóknir þær sem skoðaðar voru mjög margvís- legar, ræktun og meðferð afurða mismunandi svo og munur milli ræktunarsvæða hvað varðar jarð- veg og margt fleira sem vert er að telja upp sem annmarka. Þetta leiðir til þess að gera þarf lang- tímarannsóknir með tilliti til mæl- anlegra þátta sem snerta heilsufar með tvíblindri rannsóknaraðferð til að svara frekar þeim fullyrð- ingum sem fram koma. Kostnaður við slíkar rannsókn- ir er mjög mikill og umfangið einnig mikið þar sem svo margar breytur eru í menginu. Ég leyfi mér því að efast um að við munum fá úr þessu skorið með afgerandi hætti á næstunni. Því verðum við að láta tilfinningar okkar, pyngj- una og umhverfisvitund okkar ráða um fæðuval og innkaup hverju sinni en ekki auglýsing- ar um meinta hollustu eða óholl- ustu þeirrar vöru sem við setjum í kerruna okkar. Hollusta eða bara plat? Í dag hefst Norðurlandaráðsþing í Helsinki, helsti viðburður nor- rænnar samvinnu ár hvert. Norð- urlandaráð á 60 ára afmæli í ár og því ber að fagna þar sem ráðið er í lykilhlutverki við að bæta hag almennings á Norðurlöndum með frumkvæði um norrænt samstarf. Verkefnin eru á ýmsum sviðum, á sviði efnahagsmála, menningar- og menntamála, borgara- og neyt- endamála, umhverfismála, og í síauknum mæli á sviði alþjóða- mála. Norðurlandaráðsþingið er ein- stakt að því leyti að þar eiga sér stað umræður milli ráðherra allra Norðurlandanna við þingmenn frá öllum löndunum. Í ár verða sérstakar umræður ríkisstjórna- leiðtoga landanna og stjórna Fær- eyja, Grænlands og Álandseyja um efnahagslegar og aðrar áskor- anir norrænna velferðarkerfa. Þá verða umræður með þátttöku nor- rænu utanríkisráðherranna um alþjóðamál og öryggis- og varnar- mál, og ráðherrar norrænna sam- starfsmála svara óundirbúnum munnlegum fyrirspurnum þing- manna. Landamærahindranir, þ.e. regl- ur og venjur innan stjórnsýslunn- ar sem hindra för og starf ein- staklinga og fyrirtækja milli Norðurlanda skv. norrænum samningum, hafa verið í brenni- depli í starfi Norðurlandaráðs á árinu og verða það einnig á Norð- urlandaráðsþinginu. Í apríl fóru fram samtímis í norrænu þjóð- þingunum umræður um landa- mærahindranir þar sem rauði þráðurinn í umræðunum var hvernig koma mætti í veg fyrir myndun hindrana við lagasetn- ingu og innleiðingu ESB-gerða. Fyrir Norðurlandaráðsþinginu í Helsinki liggur tillaga um að styrkja lagalega stöðu norræns almennings samkvæmt norræn- um samningum með norrænum umboðsmanni. Ætlast er til að norrænir borgarar sem telja sig rekast á landamærahindranir milli Norðurlanda geti leitað til umboðsmanns, auk þess sem hann ráðlegði Norrænu ráðherranefnd- inni, norrænum ríkisstjórnum og norrænum þjóðþingum um hvern- ig komast megi hjá myndun nýrra stjórnsýsluhindrana við lagasetn- ingu og innleiðingu ESB-gerða. Í tengslum við Norðurlandaráðs- þingið verða einnig afhent verð- laun Norðurlandaráðs en þess má geta að tónlistarverðlaun Norður- landaráðs 2012 hlýtur íslenska tón- skáldið Anna Þorvaldsdóttir fyrir verk sitt Dreymi. 60 ára afmælisþing Norðurlandaráðs Teitur Guðmundsson læknir HEILSA Norræn samvinna Helgi Hjörvar formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs Kostnaður við slíkar rannsóknir er mjög mikill og umfangið einnig mikið þar sem svo margar breytur eru í menginu. Ég leyfi mér því að efast um að við munum fá úr þessu skorið með afgerandi hætti á næstunni. til batnaðar á einfaldan og öfgalausan hátt? INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T. kennir ykkur hve einfalt það getur verið að bæta mataræðið og hvaða ráð hún hefur til þess. ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ! Inga er búin að halda yfir 40 fyrirlestra um efnið enda nálgunin einföld, skýr og hentar öllum sem áhuga hafa á breyttum lífsháttum. Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.18:30 - 21:00 Innifalið er mappa með uppskriftum og fróðleik. Verð: 4.900 kr. Nánari upplýsingar og skráning í síma 8995020 eða á inga@inga.is www.heilsuhusid.is FARIÐ VERÐUR MEÐ EINFÖLDUM HÆTTI YFIR: • Hverju er hægt að skipta út og hvað kemur þá í staðinn • Hvernig hægt er að þekkja muninn á hollri og skaðlegri fitu • Hvernig þú getur haldið fullri orku allan daginn og losnað við sykurþörf og þreytuköst Þriðjudaginn 6. nóv. Innifalið er mappa með uppskriftum og fróðleik Nýtt í Lindum Ferskt sushi búið til á stað num!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.