Fréttablaðið - 30.10.2012, Page 34
30. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
FJALAR ÞORGEIRSSON skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Val en hann kemur til liðsins frá KR
þar sem hann var í eitt ár. Fjalar er 35 ára og hefur lengst af á ferlinum leikið með Þrótti og Fylki en einnig með
Fram. Hann á að baki vel á þriðja hundrað leikja í deild og bikar og hefur spilað fimm A-landsleiki.
Lengjubikar karla
A-RIÐILL
Haukar - Skallagrímur 83-82 (43-38)
Haukar: Arryon Williams 25/10 fráköst, Haukur
Óskarsson 25/5 stoðsendingar, Andri Freysson
10/6 stoðsendingar, Helgi Björn Einarsson 10/13
fráköst, Þorsteinn Finnbogason 5/9 fráköst, Krist-
inn Marinósson 4, Davíð Hermannsson 4.
Skallagrímur: Carlos Medlock 28/4 fráköst/7
stoðsendingar, Páll Axel Vilbergsson 25/5 fráköst,
Orri Jónsson 7/8 fráköst, Trausti Eiríksson 6/12
fráköst, Sigmar Egilsson 5, Davíð Ásgeirsson 4,
Birgir Þór Sverrisson 4, Davíð Guðmundsson 3.
Keflavík - Grindavík 99-91
Staðan: Keflavík 6, Grindavík 4, Skallagrímur 2,
Haukar 2.
C-RIÐILL
Breiðablik - Fjölnir 86-82 (41-31)
Breiðablik: Þorsteinn Gunnlaugsson 22/15
fráköst, Ægir Hreinn Bjarnason 20/4 fráköst, Atli
Örn Gunnarsson 18/9 fráköst, Hraunar Karl Guð-
mundsson 16, Sigmar Logi Björnsson 6/4 fráköst,
Rúnar Pálmarsson 3, Garðar Pálmi Bjarnason 1.
Fjölnir: Sylverster Cheston Spicer 32/8 fráköst,
Róbert Sigurðsson 12, Jón Sverrisson 11/7 fráköst,
Christopher Matthews 10, Gunnar Ólafsson 9,
Arnþór Freyr Guðmundsson 6, Tómas Heiðar
Tómasson 2.
Staðan: Tindastóll 6, Stjarnan 4, Breiðablik 2 ,
Fjölnir 0.
Keppt er í fjórum riðlum. Efsta liðið úr hverjum
riðli kemst áfram í undanúrslit.
ÚRSLIT
Oddur í ómskoðun í dag:
Bara misst af
einum leik
ODDUR GRÉTARSSON Lykilmaður í liði
Akureyrar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Ísland mætir Hvíta-
Rússlandi í undankeppni EM 2014
á morgun en einn lykilmanna
íslenska landsliðsins, Aron Pálm-
arsson, verður með liðinu eftir að
hafa jafnað sig á meiðslum í oln-
boga sem hafa plagað hann síðustu
vikurnar.
„Ég er ágætur. Ég gat spilað
á laugardaginn og þó svo að ég
finni aðeins til sögðu læknarnir
að meiðslin verði ekkert verri. Ég
má því gera allt sem ég geri venju-
lega,“ sagði Aron í samtali við
Fréttablaðið fyrir æfingu lands-
liðsins sem fór fram í Víkinni í
gærkvöldi.
Aron skoraði þrjú mörk í ótrú-
legum leik Kiel og Hamburg um
helgina. Kiel var fimm mörkum
undir þegar tíu mínútur voru til
leiksloka en vann þriggja marka
sigur eftir ótrúlegan viðsnúning.
Það var hans fyrsti leikur með
Kiel síðan hann meiddist í leik
liðsins gegn Sävehof frá Svíþjóð í
Meistaradeild Evrópu en hann fór
fram snemma í október.
Alltaf pressa á okkur
Kiel fékk fullt hús stiga í þýsku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili
og varð þar að auki bikarmeist-
ari sem og Evrópumeistari. Aron
segir að í ár sé lagt að leikmönn-
um að ná árangri, rétt eins og áður.
„Það hefur auðvitað mikið
breyst hjá okkur, ekki síst í leik-
mannamálum. Við misstum Kim
Andersson sem var okkar besti
maður í fyrra en erum komnir
með nýja leikmenn sem þurfa að fá
tíma til að venjast nýjum aðstæð-
um,“ segir Aron. „Ekki að við
séum búnir að spila illa, þvert á
móti. Okkur hefur gengið vel sem
breytir þó ekki því að það er allt-
af pressa á okkur að vinna hvern
leik.“
Kiel tapaði sínu fyrsta stigi í
deildarleik í langan tíma þegar
liðið gerði jafntefli við Füchse
Berlin, lið Dags Sigurðssonar, á
útivelli um miðjan síðasta mánuð.
„Ég held nú að bærinn hafi
andað léttar við það,“ sagði hann
og brosti. „Þetta var búið að ganga
í langan tíma og þetta var staðfest-
ing á því að við getum enn tapað
stigi og stigum,“ bætti hann við en
Kiel hefur ekki tapað deildarleik
síðan í maí í fyrra.
Erfiðir dagar eftir leikana
Aron klæðist á morgun íslensku
landsliðstreyjunni í fyrsta sinn
síðan að Ísland mátti þola grátlegt
tap fyrir Ungverjalandi í tvífram-
lengdum leik í fjórðungsúrslitum.
„Það var gríðarlega erfitt að
kyngja því. Við ætluðum okkur
lengra,“ sagði Aron og fannst erfitt
að rifja þetta upp. „Maður fattaði
ekki alveg strax hvað hafði gerst
og var þetta mjög erfitt í nokkra
daga.“
Nafni hans Kristjánsson stýrði
í gærkvöldi sinni fyrstu landslið-
sæfingu en hann tók við starfinu
af Guðmundi Guðmundssyni sem
hætti eftir Ólympíuleikana. Nýi
þjálfarinn tók langan fund með
leikmönnum fyrir æfinguna í gær.
„Þetta byrjaði ekki vel – fundur-
inn var allt of langur,“ sagði Aron
og hló. „Mér líst auðvitað mjög vel
á hann enda tala vinir mínir sem
hafa spilað undir hans stjórn mjög
vel um hann. Hann greinir and-
stæðinginn mjög vel og við erum
vanir því. Við þurfum á því að
halda.“ eirikur@frettabladid.is
BÆRINN ANDAÐI LÉTTAR
Aron Pálmarsson verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu á ný þegar það
mætir Hvít-Rússum í vikunni. Hann er kominn af stað með Kiel á ný eftir
meiðsli en Aron segir að það fylgi því ávallt mikil pressa að spila með liðinu.
NAFNARNIR Aron Pálmarsson ræðir við Aron Kristjánsson, nýjan landsliðsþjálfara
Íslands, fyrir æfingu landsliðsins í Víkinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Maður fattaði ekki
alveg strax hvað hafði
gerst og var þetta mjög erfitt
í nokkra daga.
ARON KRISTJÁNSSON
LEIKMAÐUR ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS
FÓTBOLTI Enn eitt kynþáttaníðs-
málið er í uppsiglingu í ensku
úrvalsdeildinni en enska knatt-
spyrnusambandið hefur hafið
rannsókn á ásökunum um að
Mark Clattenburg knattspyrnu-
dómari hafi haft niðrandi
ummæli um tvo leikmenn Chel-
sea í leik liðsins gegn Manchester
United um helgina.
Chelsea kvartaði undan dómar-
anum og mun Clattenburg ekki
dæma leik í deildinni um næstu
helgi. Mannréttindalögmaðurinn
Peter Herbert, sem fer fyrir hópi
manna sem vill stofna sérstök
leikmannasamtök fyrir þeldökka
knattspyrnumenn, hefur farið
fram á að lögreglan í Lundúnum
hefji sína eigin rannsókn á mál-
inu.
Mikið hefur verið fjallað um
kynþáttafordóma í tengslum við
enska knattspyrnu síðustu vikur
og mánuði. John Terry í Chel-
sea og Liverpool-maðurinn Luis
Suarez hafa báðir verið dæmdir
í bann fyrir niðrandi ummæli og
hafa þeirra mál haft víðtæk áhrif
á knattspyrnuna í Englandi. - esá
Enn eitt hneykslismálið:
Ummæli dóm-
ara rannsökuð
HANDBOLTI Oddur Gréetarsson,
hornamaður Akureyrar, meidd-
ist á hné eftir aðeins átta mínútur
í tapleiknum á móti Haukum í
N1 deild karla um helgina en það
kemur ekki í ljós fyrr en í hádeg-
inu í dag hversu alvarleg meiðsl-
in eru.
„Ég fer í nánari skoðun á
morgun (í dag) og þá ætti þetta
að koma betur í ljós. Það var ekki
möguleiki að fá tíma fyrr en þá,“
sagði Oddur í gær en í fyrstu
var búist við að hann kæmist í
myndatöku í gær. Oddur gæti
verið með slitið krossband.
„Vonandi er þetta eitthvað
minna en maður veit ekkert og ég
get því alveg búist við nokkrum
mánuðum. Ég yrði ánægður ef ég
væri kominn af stað í fyrstu leiki
eftir áramót,“ segir Oddur sem
hefur hingað til verið heppinn
með meiðsli.
„Ég hef bara misst af einum
leik vegna meiðsla á öllum
mínum meistaraflokksferli. Þetta
eru mín fyrstu alvöru meiðsli,“
segir Oddur og þetta gerðist á
versta tíma fyrir Akureyrarliðið.
„Það er meiðslahrina í gangi hjá
okkur núna en menn koma von-
andi bara sterkir til baka,“ segir
Oddur. -óój
FÓTBOLTI FCK tapaði í gær sínum
fyrsta leik á tímabilinu í dönsku
úrvalsdeildinni. Liðið mætti þá
Horsens sem vann, 1-0. Ragnar
Sigurðsson var einn Íslending-
anna hjá liðinu í byrjunarliðinu
en Sölvi Geir Ottsen kom inn á
seint í leiknum. Rúrik Gíslason
var ónotaður varamaður.
FCK er þrátt fyrir tapið enn á
toppi dönsku úrvalsdeildarinnar
eftir fjórtán umferðir.
Íslendingaliðið Halmstad
þarf að fara í umspil um sæti í
sænsku úrvalsdeildinni. Það varð
ljóst eftir 2-1 tap liðsins fyrir
Assyriska í næstsíðustu umferð
sænsku B-deildarinnar í gær.
Guðjón Balvdinsson lék allan
leikinn með Halmstad en Krist-
inn Steindórsson tók út leikbann.
Spilað á Norðurlöndunum:
Fyrsta tap FCK
CLATTENBURG Ræðir hér við John Obi
Mikel, sem er sagður vera annar þeirra
leikmanna Chelsea er málið varði.
NORDICPHOTOS/GETTY