Fréttablaðið - 12.11.2012, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 12.11.2012, Blaðsíða 19
NETVERSLUN MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012 Kynningarblað Notað og nýtt, netöryggi, tilboð og vefverslunarkerfi. Nýr og glæsilegur uppboðsvefur var opnaður í haust á slóðinni upp-boðshús.is. Fyrirtækið Kljúfur ehf. rekur uppboðsvefinn og vöruhús samhliða honum að Skútuvogi 4 í Reykjavík. Vefurinn hefur fengið mikla aðsókn að sögn Kristjáns Arnar Kristjánssonar framkvæmdastjóra. „Við seljum bæði notaðar og nýjar vörur í mörgum vöruflokkum og vörum fjölg- ar jafnt og þétt. Við höfum fengið mjög já- kvæði viðbrögð enda eru Íslendingar í rík- ari mæli farnir að kaupa og selja vörur á net- inu. Þar komum við sterkir inn enda bjóðum við upp á betri þjónustu en flest sambæri- leg fyrirtæki.“ Þar er Kristján meðal annars að vísa í að verðandi kaupendur geta skoð- að vörurnar í vöruhúsinu áður en þeir leggja inn tilboð. „Það er mikill kostur fólginn í því fyrir kaupendur að geta skoðað vörur vel og vandlega áður en ákvörðun er tekin um kaup. Við verðum vör við að kaupendur eru viljugri en áður til að leggja inn tilboð eftir að þessi möguleiki kom fram.“ Áhersla á góða þjónustu Góð þjónusta uppboðshússins einskorð- ast þó ekki eingöngu við vöruhúsið. Fyrir- tækið býðst til þess að sækja vörur sem á að selja heim til fólks auk þess sem það býður upp á að keyra út vörur til kaupenda. „Við sjáum síðan um allt söluferlið fyrir seljend- ur. Við sækjum vörur ef óskað er eftir því. Við skráum vörur inn í kerfi okkar, sýnum þær í vöruhúsinu og svörum fyrirspurnum frá áhugasömum kaupendum. Viðskipta- vinir geta einnig skráð vörurnar sjálfir á vef fyrirtækisins. Þegar varan er seld greiðum við andvirði hennar inn á reikning seljenda að frádreginni þóknun okkar. Þetta ferli er einfalt og þægilegt fyrir alla þá sem koma að því, þá sérstaklega fyrir seljanda vörunnar.“ Kristján bendir einnig á að í raun þjóni vef- urinn öllu landinu þar sem fyrirtækið býður upp á heimsendingarþjónustu á höfuðborg- arsvæðinu og sendir í póstkröfu um allt land. Margir vöruflokkar eru á vefnum, til dæmis barnavörur, farartæki, fatnaður og heimilisvörur. „Við bjóðum upp á mjög breitt vöruúrval og það er lítið mál að bæta við nýjum flokkum gerist þess þörf.“ Nýjar vörur líka til sölu Það eru ekki bara notaðar vörur sem eru til sölu á uppboðsvefnum. „Við seljum einn- ig nýjar og ónotaðar vörur frá fyrirtækjum sem eru hætt í rekstri eða gamlar lagervör- ur. Núna erum við til dæmis með tuttugu ónotuð rúm til sölu frá Nýborg en fyrirtækið hætti rekstri fyrir nokkru síðan. Vefurinn er einnig tilvalinn vettvangur fyrir listamenn og smærri söluaðila sem hafa ekki bolmagn Frábær þjónusta og gott vöruúrval hjá uppboðshús.is Nú gefst Íslendingum kostur á að selja notaðar og nýjar vörur gegnum uppboðsvefinn uppboðshús.is. Kaupendur geta skoðað vörurnar í vöruhúsi fyrirtækisins áður en tilboð er lagt inn. Fyrirtækið sér um allt söluferlið fyrir seljendur varanna. Kristján Örn Kristjánsson er fram- kvæmda- stjóri upp- boðshús.is. Vefurinn er einstaklega þægilegur og auðveldur í notkun fyrir seljendur og kaupendur vara. Uppboðshús.is var opnað í október og selur bæði nýjar og notaðar vörur í mörgum vöruflokkum. Vörum fjölgar jafnt og þétt og kaupendur geta skoðað vörurnar í vöruhúsi fyrirtækisins. MYND/STEFÁN til að markaðssetja sjálfa sig. Fáir bjóða upp á slíka þjónustu í dag en þetta er kjörin leið fyrir smærri rekstraraðila til ná til alls lands- ins með einföldum hætti.“ Auk þess býður upp uppboðshús.is upp á að sjá um alla umsýslu á skipta-, þrota- og dánarbúum. Uppboðshús.is er til húsa í Skútu- vogi 4 í Reykjavík. Vöruhúsið er opið milli kl. 14-18 alla virka daga og milli klukkan 13-16 á laugardögum. Nánari upplýsingar má finna á www.uppbodshus.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.